Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Blaðsíða 28
28
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003
Sport
DV
mehr heimavellina í LandsbankadeMinni
Hásteinsvöllur heitir aöalknatt-
spymuvöllurinn i Vestmannaeyjum
og er staösetning hans einstaklega
skemmtileg og útsýniö frábært.
Aðstaða fyrir áhorfendur er tví-
skipt og í heildina ekki nægilega
góð. Þar eru nú sæti fyrir 550
manns en þau voru nýlega sett upp
vegna leiks ÍBV i Evrópukeppninni
í knattspyrnu. Þau eru á lágreistum
steinpöllum eftir endilöngum vellin-
um. Yfirbygging er engin. Að öðru
leyti er áhorfendaaðstaðan alls ekki
nógu góð og er hinn frægi hóll á
suðvesturhomi vallarins þar vin-
sælastur en þar sjá áhorfendur þó
nokkuð vel yfir. Þar eru hins vegar
aðeins stæði i frekar erfíðu lands-
lagi. Salemisaðstaða er í vallarhúsi
og er nægileg.
Það er hins vegar æði sérkenni-
legur siður sem viðhafður er i Vest-
mannaeyjum þar sem heimamenn
koma tímanlega fyrir leik og stilla
bílum sínum upp við endann á vell-
inum og við aöra hlið hans, þaðan
sem þeir fylgjast með leiknum. Að
mati DV-Sport er þetta afar leiðin-
legur siður og komið hefur fyrir að
vallarstarfsmenn þurfa að ganga á
bílana til að fá ökumenn til að
slökkva ljósin.
Aðstaða fyrir leikmenn er viðun-
.HNDSBRNKR
DEILDIN
Hástensvöllup
andi. Búngingsklefar mættu vera
stærri og þá er gangurinn fyrir
freman frekar þröngur. Leikmenn
og dómarar þurfa að ganga yfir bíla-
stæði og niður brekku til að komast
til leiks. Þessi leið er alltof löng inn-
an um almenning og þrátt fyrir ör-
yggisgæslu er of auðvelt fyrir þá
sem sér það ætla að hafa afskipti af
leikmönnum og dómurum á þessari
leið.
Aðstaða blaðamanna- er ekki
nægilega góð en hún er þó i skjóli
fyrir veðrum og vindum. Þokkalega
sést úr henni en hún er of þröng og
mætti standa hærra.
Völlurinn sjálfur er í ágætu ásig-
komulagi og hefur verið það í nokk-
ur undanfarin ár eftir að hann var
byggður upp frá grunni. Vatnsskort-
ur í Eyjum hefur þó gert vallaryfir-
völdum lífið leitt þar sem þeir hafa
ekki náð að vökva völlinn sem
skyldi. Þaö skal tekið fram að Há-
steinsvöllur er yfirleitt með bestu
knattspymuvöllum landsins en í
þetta skiptið eru það utanaðkom-
andi áhrif sem koma í veg fyrir að
hann sé upp á sitt allra besta.
Til þess að uppfylla kröfur um
leikvöllinn þurfa Vestmannaeying-
ar að leggja út í talsverðar fram-
kvæmdir. Þeir eru að vísu með sæti
fyrir um 550 manns í stúku en þurfa
150 sæti í viðbót. Það er því ljóst að
byggja þarf við núverandi stúku, en
einnig hafa verið uppi hugmyndir
um að byggja stúku sunnan megin
vallarins. Þá vantar að byggja yfir
stúkuna.
Einkunnargjöfin
Aðstaða áhorfenda m Leikvöllurinn gi
Aðstaða leikmanna Staða gagnvart staðli 0
Aðstaða blaðamanna ð Heildarstigin 19
Gríndavíkurvölur
Ðnkunnargjöfín
Aðstaða áhorfenda Leikvöllurinn ö
Aðstaða leikmanna © Staða gagnvart staðli Í0
Aðstaða blaðamanna Heildarstigin 26
LRNDSBHNKR
OSIL-DtM
Það eru eflaust fá bæjarfélög i
veröldinni í sama stærðarflokki
sem hafa þá keppnisaðstöðu sem
Grindvíkingar hafa í dag. Stúkan
sem þessir framsæknu knatt-
spyrnuáhugamenn eiga rúmar
rúmlega hálft bæjarfélagið og set-
ur hún punktinn yfir i-ið á þess-
um glæsilega knattspymuvelli þar
sem þegar hefur verið leikiðí Evr-
ópukeppninni í knattspymu.
Aðstaða fyrir áhorfendur er
mjög góð í Grindavík og eins og
áður sagði byggðu þeir nýlega
fallegt stúkumannvirki sem rúm-
ar 1500 manns í sæti og er stúkan
yfirbyggð. Önnur áhorfendaað-
staða er ekki til staðar þó að ein-
hverjir áhorfendur geti staðið við
grindverk við hina hlið vallarins.
Salemisaðstaða mætti vera betri,
sérstaklega í fjölmennum leikjum,
og næsta skref hjá þeim Grindvík-
ingum hlýtur að vera að bæta
markatöflu og vallarklukkuna.
Markataflan er ekki nægilega
greinileg fyrir áhorfendur í
stúkunni hinum megin við völl-
inn og þá er skífuklukka ekki
nægilega nákvæm.
Aðstaða leikmanna er til fyrir-
myndar. Búningsklefar eru í húsi
við suðvesturhom vallarins og
eru þeir stórir og rúmgóðir. Það
er þó smágalli að leið leikmanna
liggur yflr annarri af tveimur leið-
um áhorfenda að stúkunni en það
kemur þó ekki mikið að sök þar
sem leið leikmanna er mjög stutt
og auðvelt að verja hana.
Aöstaða blaðamanna er til fyrir-
myndar en hún er rúmgóð og
björt og það er gott útsýni yfir
leikvöllinn úr blaðamanna-
stúkunni sem er yfirbyggð.
Leikvöllurinn sjálfur er af-
bragðsgóður. Grindvíkingar áttu í
vandræðum með grasið á vellin-
um í fyrrasumar en virðast hafa
náð að ráða bót á þeim vanda.
Grasið sem lagt var á völlinn í
upphafi var alls ekki nógu gott og
réðust heimamenn í það verkefni
i fyrra að skipta um grasið á stór-
um hluta vallarins og virðist það
hafa heppnast með ágætum. Völl-
urinn er í finu ásigkomulagi eins
og staðan er núna.
Grindavíkurvöllur gerir meira
en nóg í því að uppfylla þær kröf-
ur sem UEFA og KSÍ gera til að-
stöðunnar á vellinum. Grindvík-
ingar þurfa að vera með 600 sæti
en eru eins og áður sagði með 1500
sæti. öll eru þau undir þaki sem
er til fyrirmyndar.
Það vart hægt að hrósa knatt-
spymuyfirvöldum og bæjarfélag-
inu í Grindavík nægilega fyrir
þessa aðstöðu sem boðið er upp á
þar á bæ.