Dagblaðið - 29.03.1976, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 29.03.1976, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. MARZ 1976. Iþróttir Sþróttir Iþróttir Iþróttir ABARATTU IUINNLOKS grdag þegar liðið sigraði KR og fyrsta titil eftir 18 óra baráttu manns sagöi eftir leikinn, „strák- arnir unnu þetta á samstillingu og liðið lék sem ein heild.” Jimmy Rogers var stigahæstur Ármenninga með 27 stig, Jón Sig- urðsson og Haraldur Hauksson skoruðu 15 stig hvor. Trukkurinn byrjaði mjög vel og var óstöðvandi í fyrri hálfleik, skoraði þá 20 stig, en í síðari hálfleik kom fram þreyta og hittnin minnkaði og allt í allt skoraði hann 30 stig. Birgir Guð- björnsson skoraði 12 stig og Bjarni Jóhannesson 11 stig. ÍR — UMFN 94-93 ÍR-ingar vissu sem var að til að eygja möguleika á að sigra í mót- inu þá urðu þeir að sigra UMFN og Njarðvíkingar voru ekki á að gefa sitt eftir — fyrir vikið var um hörkuleik að ræða og hvorug- ur gaf eftir. Leikurinn var alltaf jafn — ÍR hafði nauma forystu í hálfleik 49- 36 og í síðari hálfleik skiptust liðin á að hafa forystu. Þegar aðeins 35 sekúndur voru eftir og staðan 91-90 fyrir Suður- nesjamenn fengu þeir tvö víti, sem Kári Marísson skoraði úr — 93-90. ÍR með boltann en illa gekk að komast í gegn. Þó fékk ÍR 2 víti þgar aðeins 15 sekúndur voru eftir og eins og Kára áður urðu Kristni Jörundssyni ekki á nein mistök — hann skoraði úr þeim báðum og þa var staðan 92-93 fyrir Njarðvík og að því er virtist sigur i höfn. ÍR náði boltanum og sekúndurnartifuöu einaf annarri 5...4..3..2.. og þá skaut Kristinn Jörundsson utan af kanti og hvar hafnaði boltinn annars staðar en í körfunni og um leið sigur ÍR, og áhorfendur stóðu á öndinni. Kolbeinn Kristinsson skoraði 33 stig fyrir lR og Kristinn Jör- undsson 22. lljá UMKN bar mest á þeim Br.vnjari Sigmundssyni — 24 stig. Kára Manssyrii 18 stig og Gunnari Þorvarðarsyni 17 stig. Snæfell — UMFN 69-96 Síðasti leikur íslandsmótsins fór fram uppi á Skaga í gær og þá kvaddi Snæfell 1. deildina, að sinni að minnsta kosti. Liðið hefur verið áberandi lakasta liðið í vetur og náði aldrei að ógna Njarðvíkingunum, sem eru í úr- slitum bikarkeppninnar og við sigurinn höfnuðu í fjórða sæti. h.halls. Lokastaðan í islandsmótinu í körfuknattleik varð: Armann 14 13 1 1309-1072 26 ÍR 14 12 2 1331-1106 24 KR 14 10 4 1290-1137 20 UMFN 14 8 6 1157-1104 16 ts 14 6 8 1148-1182 12 Valur 14 5 9 1170-1178 10 Fram 14 2 12 964-1159 4 Snæfell 14 0 14 870-1298 0 Lið Kanada létt bróð — ísland sigraði með ellefu marka mun Islendingar og Kanadamenn léku sinn annan landsleik á tveimur dögum í gærkvöld og í annaö sinn bar íslenzka liðið sigur úr býtum. í gærkvöld á mun meira sannfærandi hátt en á laug- ardag — 22-11. Þrátt fyrir helm- ingsmun er sannleikurinn sá að islenzka liðið átti engan glans- leik, til þess var mótstaðan of lítil. Vörnin var betri hluti ís- lenzka liðsins, mjög þétt og hörð fyrir. Kanadamenn áttu í megn- ustu erfiðleikum með að brjótast í gegn um vörnina, sem sést bezt á því að í fyrri hálfleik skoruðu þeir aðeins f jögur mörk og þar af skoraði markvörðurinn eitt mark, þvert yfir völlinn. I vörninni voru Kanadamenn líkastir klórandi köttum, héngu í íslenzku sóknarmönnunum í tíma og ótíma. Fyrir vikið var pokkrum þeirra vísað af velli af ágætum dómurum leiksins, þeim Birni Kristjánssyni og Óla Ölsen. Heldur fór það í taugarnar á bæði forráðamönnum og leik- mönnum, sem sífellt voru væl- andi, frumstæður handknatt- leikur sem þeir leika. Óskiljan- legt að þetta kanadíska lið skuli hafa sigrað Hamburg SV 15-13 á dögunum — og þó, liðið hans Einars er svo gott sem fallið. Nú, en leikurinn í gærkvöld fór fremur rólega af stað, íslenzku sóknarmönnunum gekk illa að komast framhjá kanadísku varnarmönnunum, enda einatt hangið í þeim. Jón Karlsson skoraði fyrsta mark leiksins og eftir 10 mínútna leik var staðan 1-1 og eftir 23 mínútur 5-4 en þá tóku íslendingar góðan sprett og skoruðu 5 mörk í röð og breyttu stöðunni í 10-4 í hálfleik. Fljótlega í síðari hálfleik var staðan orðin 14-4 og það var ekki fyrr en á 9. mínútu að Kanada skoraði sitt fyrsta mark í hálf- leiknum, en ótrúlegt, eftir það héldu Kanadamenn í við íslenzka liðið og kom þar mest til kæru- leysi Islendinganna en þess ber þó að geta að Kanadamenn voru mjög æstir og ef til vill hefur það haft áhrif á okkar menn. Hvað um það — lókastaðan varð 22-11, landsleikur sem ekki verður lengur í minnum hafður. íslenzka vörnin var eins og á< ur sagði aðall liðsins í gær- kvöld, þó er það íhugunarefni að sárafáir boltar unnust í vörninni og fyrir vikið fá hraðaupphlaup. Gegn jafn slöku liði og því kanad- íska er það ekki nógu gott, það á að vinnast með 20—30 marka mun, toppþjóðir hefðu gert það. I sókninni stóðu menn nokkuð fyrir sínu og ánægjulegt að sjá hve Guðjón Magnússon hefur komið vel frá leikjunum um helg- ina, skoraði drjúgt og átti góðar línusendingar. Jón Karlsson og Guðjón Magnússon skorðu sín fjögur mörkin hvor. Árni Indriðason, Ólafur Einarsson og Bjarni Jónsson 3 mörk hver. Sigur- bergur Sigsteinsson 2 og þeir Pétur Jóhannsson, Hörður Sig- marsson og Friðrik Friðriksson skoruðu eitt mark hver. h.halls. Bikarkeppni Bikarkeppni HSÍ — 8-liða úrslit fer af stað i kvöld í Laugardals- höllinni kl. 21.30 Þá leika Víking- ur og Grótta. IRIl.DEILD! lR leikur í 1. deild næsta haust — ÍR hafði tryggt sér sætið með sigri gegn Þór á fimmtudaginn 30-21 en í gær lék ÍR við KR og steinlá fyrir vesturbæjarliðinu 18-23. Leikur KR og ÍR var alls ekki vel leikinn, kæruleysi einkenndi leikinn og greinilegt að ÍR-ingar voru búnir að tryggja sætið. En þrátt fyrir það virtist sem ÍR ætlaði að kafsigla KR, náði yfir- burða stöðu 10-5 en liðið klúðraði því kæruleysis vegna og KR hafði minnkað muninn í eitt mark í hálfleik 10-11. Brátt kom í ljós í síðari hálfleik að KR-ingar voru mun sterkari og sigu örugglega framúr og lokatölur urðu 23-18 og sannarlega má segja að ÍR hafi sloppið fyrir horn. Liðið byraði mjög vel í haust og fyrri hluta vetrar var liðið langbezt í 2. deild en eftir að Agúst Svavarsson fór hefur stöðugt sigið á ógæfu- hliðina og nú er liðið aðeins svipur hjá sjón. KR-ingar hins vegar geta nagað sig í handarbök- in til næsta hausts og engum örðum en sjálfum sér géta þeir um kennt.Liðið hlaut aðeins stigi minna en ÍR — en tapleikurinn gegn ÍBK í Laugardalshöllinni um miðbik mótsins varð liðinu dýrkeyptur. Aðeins 5 minútur voru til leiksloka í þeim leik og KR hafði 4 mörk yfir — ótrúlega klaufalega klúðruðu þeir því og Keflavík sigraði með eins marks mun. Fylkir tryggði sér sætið í 2. deild í gær með sigri gegn Leikni 29-24 og sendi Breiðablik í 3. deild með þeim sigri. Breiðablik tapaði fyrir ÍBK 20-21 i gær, en sá ósigur skipti ekki máli — liðið var þegar fallið. h.halls. Annað sœtíð hjá Danker- sen er að verða ðruggt! — en Hamborg er svo gott sem fallið niður i 2. deild Þetta leit ekki vel út hjá okkur í byrjun. Altenholz skoraði f jögur fyrstu mörkin, 4—0, og þá loks fórum við af stað hjá Dankersen. Unnum upp muninn fyrir hléið — höfðum reyndar yfir 8—7, og sigruðum í leiknum með 17—12, sagði Axel Axelsson, þegar Dág- blaðið ræddi við hann í morgun. Við þurfum nú að fá tvi) stig úr þeim tveimur leikjum, sem eftir eru til að tryggja okkur annað sætið í norðurdeildinni. Eigum eftir að leika við Gummersbach og Kiel á heimavelli, sagði Axel ennfremur. Gummersbach hefur sigrað í norðurdeildinni. Er með 29 stig, Dankersen hefur 22 stig, Essen 17 stig og hefur leikið ein- um leik minna, og Derschlag hefur 16 stie. Axel skoraði fjögur mörk i leiknum gegn Altenholz á laugar- dag — og Olafur H. Jónss. eitt. Axel er ekki alveg orðinn góður af tognuninni, en er mjög að koma til. Utlitið hjá Hamborg er nú orðið ’afar slæmt — liðið er svo gott, sem fallið i 2. deild. Það tapaði á heimavelli um helgina fyrir Kiel 18—21, þó svo Pickel skoraði 10 mörk í leiknum. Hamborg er með 10 stig — Altenholz er fallið — en 3ja er Bad Schwartau með 12 stig og á eftir tvo heimaleiki. í suðurdeildinni sigraði Göppin- gen Neuhausen, neðsta liðið í deildinni, með 18—16. Gunnar Einarsson skoraði eitt mark í leiknum — hafði á sér sérstakan gæzlumann. Göppingen á tvo leiki eftir og verður að vinna báða til að komast hjá því að keppa um fallsæti. Sigurbergur Sigsteinsson skoraði falleg mörk úr hornunum í landsleikjunum við Kanada — dæmigerð Sigurbergsmörk. DB- mynd Bjarnleifur. Banja Luka í úrslit Júgóslavneska liðið Borac Nanja Luka tryggði sér rétt í úrslit Evrópubikarsins i hand- bolta, þegar liðið sigraði Gummersbach 15-13 í síðari Ieik liðanna í undanúrslitum i Banja Luka á föstudag. Fyrri leik lið- anna lauk með jafntefli 16—16. Staðan í hálfleik var 11—8 á föstudag fyrir Júgóslava. Mörk liðsins skoruðu Popovic 5, Selec 3, Radjenovic 3, Karalic 2, Vujnovic og Golic eitt hvor. Fyrir Gummersbach skoruðu Deckarm 6, Scmidt 4, Brand 2 og Schlaghek 1. Breiðablik i 1. deild i körfunni Breiðablik tryggði sér 1. deildardsætið i körfuknattleik, þegar liðið, með Guttorm Ólafs- son fyrrum Ieikmann KR í farar- broddi, sigraði Grindavik 68-60 á laugardag. Leikurinn var alltaf mjög jafn. Þó virtist í lokin að Grindavik væri með leikinn í höndunum en með mjög góðum endaspretti náði Breiðablik að síga framúr og getur liðið þakkað reynslu Guttorms það öðru fremur. Breiðablik tekur sæti Snæfells í 1. deild. Punktamót Haukur Sigurðsson, Akureyri, varð sigurvegari í punktamóti í svigi á laugardag i Hlíðarfjalli. Keyrði á 110.64 mín. og var rétt á undan hinum 16 ára Karli Frimannssyni, Akureyri, 110.89 sek. Tómas Leifsson varð 3ji og Arni Óðinsson fjórði — báðir Akureyri. I kvennaflokki sigraði Stein- unn Sæmundsdóttir Á á 105.16 sek. rétt á undan Margréti Baldursdóttur, Akureyri, 105.52 sek. Jórunn Viggósdóttir varð 3ja á 106.05. Gísli meistari Gísli Þorsteinsson varð Isl.meistari í opnu flokkunum á meistaramótinu í judó á laugar- dag. Sigraði Viðar Guðjohnsen í úrslitum. í 3.—4. sæti urðu Halldór Guðbjörnsson og Sigurjón Kristjánsson: 1 kvenna- flokki sigraði Þóra Þórisdóttir, sem sigraði Önnu Láru Friðriks- dóttur í úrslitum. i flokki 15—17 ára sigraði Viðar Finnsson, tsa- firði,' í léttvigt, Daði Daðason, UMFK, í millivigt og Sigurður Gunnarsson, JFR, í þungavigt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.