Dagblaðið - 06.04.1976, Page 1
friálst,
úháð
dauhlað
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022.
2. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1976 — 78. TBL.
18 ára gamall piltur viður-
kenndi morðið á Akureyri
— getur enga ástœðu gefið fyrir verknaðinum
LÖGBANN Á ÓSÝNDAN SPURNINGAÞÁTT?
Nú hefur verið farið fram á
endurupptöku þáttarins „Kjör-
dæmin keppa”, á milli Norður-
íands vestra og Norðurlands
eystra. Að beiðni sr. Ágústs
Sigurðssonar að Mælifelli tjáði
sýslumaður Skagfirðinga,
Jóhann Salberg Guðmundsson
Jóni Þórarinssyni forstöðu-
manni hjá Sjónvarpinu þessa
ósk.
Ágreiningur reis um fleiri at-
riði en eitt, þar sem talið var, að
ranglega hefði verið dæmt um
svör. Ein spurningin, sem fram
var sett, var um það, hvaða foss
í Þjórsá væri vatnsmestur.
Töldu vestanmenn undir for-
ystu sr. Ágústs að rétt svar
væri Þjófafoss, enda mun svo
talið m.a. í Árbók Ferðafélags-
ins og kennslubókum. Austan-
menn töldu, að Urriðafoss væri
vatnsmestur. Var það dæmt
rétt svar. í frekari umræðu um
réttmæti dómsins var hann rök-
studdur með því, að Urriðafoss
væri neðar í ánni og hlyti því að
vera vatnsmeiri.
Þessari niðurstöðu vilja vest-
anmenn ekki una, og sem fyrr
segir var þess farið á leit, að
þátturinn yrði tekinn upp aft-
ur.
Umleitun um endurupptöku
var þunglega tekið, og er enn
ekki ljóst, hvort frekar verður
að gert í málinu. —BS
hann framdi verknaðinn var hann
lítils háttar ölvaður. — Hann
verður fljótlega sendur í
geðrannsókn. -ÁT-
Verknaðinn framdi ungur maður,
18 ára gamail. Hann getur enga
haldbæra skýringu gefið á
verknaðinum.
Morðið á Guðbirnileð þeir þekktust ekki og höfðu
Tryggvasyni, sem fannst látinn aldrei átt neitt saman að sælda.
við Heiðarlund á Akureyri á Pilturinn hefur áður komið við
sunnudagsmorgun, er nú upplýst. | sögu lögreglunnar á Akureyri
vegna smáafbrota. Hann telst þó I
ekki hafa verið einn af þeim ötulu
í þeirri innbrotaöldu sem hefur
gengið yfir Akureyri í vetur. Er |
Það var síðla kvölds í gærkvöld
sem játningin lá fyrir. Ungi
maðurinn hafði verið tekinn til
yfirheyrslu eins og margir fleiri,
en framburður hans þótti slíkur,
að ástæða væri til að kanna hann
nánar. Menn frá Laugarvatni,
sem voru á ferð á Akureyri,
þóttust hafa séð hann á ferð
aðfaranótt sunnudags en voru
ekki alveg vissir í sinni sök. Síðar
komu í ljós ýmis smáatriói, sem
lögreglan á Akureyri vildi ekki
greina frá, sem leiddu til þess að
pilturinn játaði.
Eina ástæðan, sem morðinginn
getur gefið fyrir verknaði sínum,
er sú, að hann hafi langað til að
fremja svona glæp. í því
augnamiði brauzt hann inn í
sportvöruverzlun Brynjólfs
Sveinssonar, skaut þar nokkrum
skotum til að prófa byssuna og
hélt síðan út. Guðbjörn heitinn
hefur sennilega verið fyrsti
maðurinn, sem hann mætti, þar
Guðbjörn Tryggvason járn-
iðnaðarmaður var 28 ára.
Hann lætur eftir sig konu og
tvö börn.
tur verið að vorið sé á leiðinni?
Mörgum hefur fundizt eins og þessi vetur muni aldrei taka enda og skal engan undra. En þó er
eins og hitastigið hafi aðeins færzt uppávið undanfarna daga og það þarf ekki mikið til þess að
fólk reyni að fara á stjá, þótt það fiýti sér misjafnlega mikið. DB-mynd BP.
Mótmœlt til öryggisróðsins
Sendiherra Islands hjá Sam-
einuðu þjóðunum, Ingvi
Ingvarsson, hefur afhent for-
seta öryggisráðsins, Huang Hua
frá Kina, bréf um landhelgis-
málið. Bréfinu verður dreift
meðal fulltrúa i ráðinu, en eng-
ar frekari aðgerðir eru ráð-
gerðar, enda ekki um þær
beðið.
ísland kvartar i bréfinu um,
að flotaaðgerðir Breta innan ís-
lenzkrar landhelgi séu um-
fangsmiklar ofbeldisaðgerðir
og hafi jafnvel frekar aukizt.
Það sé skoðun íslenzku stjórn-
arinnar, að tilgangur Breta sé
að valda árekstrum, fyrst og
fremst hugsanlega til að reyna
að sökkva varðskipi. í öðru lagi
njósni Bretar urn ferðir varð-
skipanna, þegar þau séu að
framfylgja lögum.
..Brezku freigáturnar eru
næstum þrisvar sinnum stærri
en íslenzku skipin og komast á
tvöföldum hraða þeirra,” segir í
bréfinu.
Þá er lýst atburðum 27. marz,
þegar brezka freigátan Dio-
mede hafi meira en tuttugu
sinnum reynt að sigla á Baldur.
Prófmál um
sparimerkjamálið?
Kosfaði
milljarð
að bœta
Sjá baksíðu
Gústaf
Agnarsson
sterkasti
maður
á íslandi
Sjá íþróttir i opnu
Eldur i Neptúnusi
Um klukkan níu í morgun
kom upp eldur í togaranum
Neptúnusi, þar sem hann lá við
Ægisgarð. Fjölmennt slökkvilió
kom þegar á staðinn og tókst að
slökkva á tæpum hálftíma.
Eldurinn í Neptúnusi var
niðri í skipi, rétt framan við
fírplássið. — Ekki var vitað ná-
kvæmlega um skemmdir af
völdum eldsins, en þær eru
taldar óverulegar.
—AT
Howard
látinn
i