Dagblaðið - 09.08.1976, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 09.08.1976, Blaðsíða 15
I)A(;Hl,Af)lt). — MANUDACURH. ACUST 1976 15 Hnar Ounnarsson. Steinar Jóhannsson og Einar Olafsson frá Keflavík. karnir and- út og suður sigur gegn ÍBK 3-1. Léku Keflvíkinga grútt — irnir voru með eitt verst leikandi lið 1. deildar Að venju voru áhorfendur fáir I fer fram með hverjum leik. í Kópavogsdalnum og synd að Leikinn dæmdi Valur ekki skuli fleiri sækja leiki liðsins Benediktsso'n. en raun ber vitni — Breiðablik I h halls. Þór kaf sigldi Völsung 7-0! Þórsarar gjörsamlega Kaf- sigldu slaka Völsunga í barátt- unni um efstu sætin í 2. deild hér fyrir norðan á föstudagskvöldið. Þegar yfir lauk höfðu heima- menn sent knöttinn alls sjö sinnum í mark Völsunga. Slikir voru yfirburðir Þórsara að líkja má leiknum við leik kattarins að músinni. Völsungar sem léku gegn hægum vindi í fyrri hálfleik sköpuðu sér ekki eitt einasta marktækifæri í hálfleiknum og áttu aðeins eitt skot að marki Þórs sem eitthvert vit var í, en það varði Samúel mjög auðveldlega. Fyrsta markið kom strax á 3. mín. Markaskorarinn' mikli hjá Þór, Jón Lárusson var þar að verki, skaut góðu skoti rakleiðis í mark Völsunga. Og enn lá stanz- laust á aðkomuliðinu og á 6. mín. kom annað markið. Það gerði Árni Gunnarsson með skalla eftir að hafa fengið góða stungu inn fyrir vörn Völsunga. Eina hættu- lega sóknin sem Húsvíkingar áttu í hálfl. kom á 15. mín., en ekki tókst þeiin að nýta hana. Á 23. min. skoruðu Þórsarar sitt þriðja mark og aftur var það Jón Lárus- son sem gerði markið. Aðalsteinn Sigurgeirsson tók aukaspyrnu og lyfti vel inn í vitateiginn þar sem markvörður Völsunga kom æðandi út á alröngum tíma og hann sló boltann beint fyrir fætur Jóns og eftirleikurinn var honum auðveldur. Aðeins einni mín. síðar skoraði svo Jón sitt þriðja mark og jafnframt fjórða mark síns félags. Sævar gaf vel fyrir eftir að Þórsarar höfðu leikið vörn Völs- unga grátt og þar kom Jón aðvífandi og skallaði af öryggi fram hjá slökum markverði þeirra Völsunga. Og enn hélt stórsókn Þórs áfram og ekki leið á löngu þar til þeir skoruðu sitt fimmta mark. Magnús Jónatansson skoraði á 30. mín. með skalla eftir mjög gott horn Árna Gunnarssonar. Einni mín. síðar gerðu þeir svo sitt sjötta mark og nú var það Sigurður Lárusson að verki. Hann „prjónaði" sig í gegnum vörn Húsvíkinga og skoraði með þrumuskoti. Fimm min. fyrir leikslok fékk Sigurður svo að sjá gula spjaldið, sitt annað nú á stuttum tíma. Síðari hálfleikur var ekki svipaður þeim fyrri að því leyti, að heimamenn slökuðu mikið á og var oft um frekar þófkennda knattspyrnu að ræða. En af og til komu skemmtilegar sóknir og áttu Þórsarar þær flestar. Strax á 4. mín. síðari hálfleiks gerði Einar Sveinbjörnsson sjö- unda mark Þórs og var alveg stór- furðulegt hvernig það bar að. markvörður Völsunga virtist vera búinn að handsama knött- inn, en Einar fylgdi vel á eftir. En viti menn, hann missti knöttinn til Einars á undarlegan hátt og eftirleikurinn varð Einari auð- veldur. Einn leikmaður Völsunga fékk að sjá gula spjaldið, var það Páll Ríkharðsson. Með smá heppni hefðu Þórsarar getað skorað enn fleiri mörk, en það er jú ágætt að vinna með sjö marka mun. Lið Þórs var mjög gott að þessu sinni og eiga flestallir lof skilið fyrir frammistöðu sína. Beztu menn voru Gunnar, Oddur og Jón Lárusson en annars var liðið mjög jafnt. Samúel stóð einnig fyrir sínu þótt hann hefði lítið sem ekkert að gera. Aðeins einum manni er hægt að hrósa í liði Völsunga. Þaö er Guðmundur Jónsson en hann var eins og klettur í vörninni. „Þetta var grófur og mikill sí- brotaleikur," sagði fyrirliði Völs unga Gísli Haraldss., og var þá að tala um lið Þórs, að þeir hefðu verið grófir. Undirritaður er al- gjörlega á annarri skoðun. Hvorugt liðið og sízt Þórsarar voru grófir en taka verður tillit til þess að nokkrir leikmenn Þórs eru þungir og spila fast þótt þeir séu ekki óþarflega grófir. Þess má geta að i lið Völsunga vantaði þá Helga Helgason og Hrein Elliða- son. Dómari i leik þessum var sá hinn sami sem dæmdi leik KA og Reynis daginn eftir, Hreiðar Jónsson og dæmdihann ekki vel. Áhorfendur voru um 700, og virtust skemmta sér vel enda mikið af mörkum og flest þeirra mjög falleg. StA. Vona að ég fói frí til að leika í HM-leikjum íslands! — segir Jóhannes Eðvaldsson, en á laugardag sigroði Celtic eitt frœgasta lið heims, Penoral Uruguay, með 3-0 í Glasgow Þetta var mjög góður leikur hjá okkur í Celtic og ég er á því, að lið okkar verði mun sterkara á þvi keppnistimabili, sem nú er að hefjast, en var á því síðasta, sagði Jóhannes Eðvaldsson, þcgar Dag- blaðið ræddi við hann í gær. Á laugardag lék Celtic við eitt fræg- asta knattspyrnulið heims, Penoral, sem er meistari í Uru- guay, og sigraði með þremur mörkum gegn engu á leikvelli sinum i Glasgow. Geysilegur fiignuður var meðal fimmtiu þús- und áhorfenda með leik Celtic- liðsins — og þar var Jóbannes í hópi albcztu leikmanna sam- kvæmt frásögnum skozku blað- anna. Við fengum miklu fleiri og betri tækifæri í leiknum en Penoral. Það lið spilar allt aðra knattspyrnu; leikmenn nettir og samleikur stuttur og hnitmiðaður. En framherjar liðsins komust lítið áleiðis gegn sterkri viirn okkar, sagði Jóhannes. Staðan í hálfleik var 1-0 — Pat McClusky skoraöi úr vítaspyrnu eftir að John Doyle hafði verið felldur innan vítateigs. í síðari hálfleikn- um skoruðu Kenn.v Dalglish og Bobb.v Lenpoxcg var mark Lennox stór.'-læ.siiegt. Spyriiti kiietlinuin viðstööulaust i mark eftir að hann hafði verið skallaður til hans. Það voru allir ákaflega ánægðir með leik Celtic. Ronnie Glavin er að verða stórgóður leikmaður, og John Doyle, sem keyptur var frá Ayr sl. vor, er nú virkilega að finna sig í liðinu. Miðherjastaðan er nú hans, því Dixie Deans var scldur til Luton fyrir 26 þúsund pund. Þá lék Tommy Burns cinnig með miklum tilþrifum, sagði Jóhannes ennfremur. Jock Stcin heldur nú alveg um stjörnvölinn á ný hjá Celtic — sá maður sem gerði félagið að stórveldi i sko/.kri og evrópskri knattsp.vrnu. Hann stjórnar æf- ingum sem öðru og nýr þjálfari er kominn til okkar, Dave McPar- land, sem var hjá Queens Park — er hættur hjá Morton. Það verður gifurleg barátta um sætin i Celtic-liðinu og margir um bitann. Til dæmis erum við fjórir um miðvarðastöðurnar — auk mín Roddie MacDonald, McClusky og Roy Aitken, sagði Jóhannes — en hann erfyrstileik- maður hjá félaginu í stöðuna nú. Það verður mikið fjör hér á þriðjudaginn. Þá leika Celtic og Rangers til úrslita í Glasgow- bikarnum og leikurinn er nú að þoka öðrum umræðuefnum úr vegi hér í Glasgow. Þar verður hart barizt. Rangers hefur haft undirtökin í leikjunum við Celtic síðustu tvö leiktímabilin — og sigur i þessum leik á þriðjudag gæti haft mikið að segja fyrir okkur. sagði Jóhannes ennfrem- ur. Hvernig verður með þig í sam- bandi við HM-leiki íslands? — Það er erfitt að svara því á þessu stigi málsins. Celtic leikur við Rangers laugardaginn 4. sept- ember og ég gæti komizt heim strax eftir leikinn á laugardag. En á miðvikudag á eftir leikur Celtic í deildabikarnum og það fer mikið eftir því gegn hvaða liði við leikum þá hvort ég fæ frí þá til að leika við Hollendinga 8. septem- ber. Sigur Celtic gegn Rangers í deildinni 4. september gæti auð- veldað þessi mál öll hjá mér. Sigur á Rangers skiptir svo miklu, að þeir myndu þá áreiðanlega gefa mér frí í báða leikina í gleði sinni. Það er þvi enn allt á huldu I sambandi við þátttöku mína i HM- leikjum Islands 5. og 8. september — en ég vona hið bezta og hef mikinn áhuga á að leika með ís- lenzka landsliðinu gegn Belgum •og Hollendingum, sagði Jóhannes að lokum. ' ■ feuBias flflflfl ■ • .-.... Allt loft úrKA Á laugardaginn léku KÁ og Reynir hér fyrir norðan. Leiknum Iauk með marklausu jafntefli, 0-0. Leikurinn var mjög iélegur og hefur annað eins ekki sézt hér á Akureyri í sumar. Sárasjaldan sáust leikmenn gera tilraun til samspils og var heldur reynt að einleika um völl- inn sem aldrei bar árangur. KA lék undan sunnangolunni í fyrri hálfleik en sköpuðu sér ekki eitt einasta marktækifæri og voru Reynismenn sízt lakari en liðs- menn KA og kom það flestum á óvart. KA-menn áttu þó fleiri hættuleg skot að marki en Reynir. Mikið var um að boltanum væri bara hreinlega spyrnt út af og einkenndist leikurinn af ein- tómum kýlingum. Það var ekki fyrr en seint í síðari hálfleik sem einhver tækifæri komu og þau voru flest Reynismanna. Þá höfðu þeir sótt meira en KA. Þeir áttu nokkur hættuleg langskot, einkum Gunnar Valvesson og Al- bert Gunnlaugsson. KA-menn áttu eitt hættulegt tækifæri þegar Gunnar Blöndal skaut þrumu- skoti í þverslá, en hann var að öllum líkindum rangstæður. Já, KA-menn voru sannarlega heppnir, því leikmenn Reynis voru mun nær sigri en þeir og þá sérstaklega undir lokin. Þessi leikur var með eindæmum leiðin- legur fyrir hina 380 áhorfendur sem sáu leikinn. Létu sumir það í ljós með því að fara áður en leikn- um lauk. Slakur dómari þessa leiks var Hreiðar Jónsson. Línuverðir voru þeir Arnar Einarsson og Rafn Hjaltalín. StA. Anderlecht sigraði Evrópúmeistarar bikarhafa í knattspyrnu — Anderlecht frá Belgíu sigruðu fyrrum Evrópu- meistarana Ájax frá Hollandi 3-1 í úrslitaleik knattspyrnumóts, þar sem f jögur lið tóku þátt. En þau voru auk Ánderlecht og Ajax, Leeds frá Englandi og Borussia Mönchengladbach frá V- Þýzkalandi. Nú eins og sagði léku Anderlecht og Ajax til úrslita og þótti leikurinn vel leikinn — sér- staklega af hálfu Anderlecht. Nýjasti leikmaður Anderlecht — Englendingurinn Duncan McKenzie gat ekki leikið með vegna meiðsla. Hollendingurinn Robbie Rensenbrink skoraði fyrsta mark leiksins þegar í upphafi úr viti en þá hafði honum verið brugðið innan vítateigs. Fyrrum Ajaxieikmaðurinn, Arie Haan bætti við öðru marki fyrir Anderlecht á 65. mínútu. Johan Zuidema minnkaði mun- inn í 1-2 þegar hann skoraði á 70. minútu fyrir Ajax. Aðeins þremur mínútum síðar guiltryggði Van der Elst sigur Anderiecht þegar hann skoraði eftir sendingu Rensenbrink. Leeds United og Mönchenglad- bach léku um þriðja sætið og tókst Þjóðverjunum að tryggja sér það — en ekki fyrr en að iokinni vítaspyrnukeppni. Eddie Gray skoraði þegar á fyrstu mín- útu fyrir Leeds en Þjóðverjarnir svöruðu með tveimur mörkum frá Heiderich og Wimmer, fyrir hálf- leik. Á 63. mínútu jafnaði Gray, en aðeins mínútu síðar tóku Þjóð- verjarnir forystu aftur og aftur var að verki Heiderich. Leeds sótti mjög í lokin og Tony Currie átti meðal annars skot í stöng — en loks á síðustu mínútunni tókst Leeds að jafna — Alan Clarke. Þá var vítaspyrnukeppni og f.vrir Þjóðverjana skoruðu Witt- kamp, Vogts, og Kulik úr þeirri þriðju. Aðeins Curry tókst að svara fyrir Leeds. /

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.