Dagblaðið - 21.08.1976, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 21.08.1976, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1976. 5 „Partí aldarinnar" er f lugmálastjórar þinguðu hér: Flugmálastjóri gaf samstarfsmönnum sínum morgungjafir — kostnaður vegna útsýnisflugferða innan- lands um 1 milljón — stöðug lögreglufylgd — tvœr ráðherraveizlur — boð hjá forsetanum „Okkur flugmönnum þykir það hart — eftir að flugmála- stjórinn lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali fyrir tæpu ári að það væri beinlínis lifshættulegt að fljúga hér innanlands vegna skorts á öryggistækjum og vegna lélegra flugvalla sem stafaði af peningaleysi Flugmála- stofnunarinnar — að hann geti nú, án þess að nokkrar endur- bætur hafi verið gerðar á fyrr- nefndu ástandi, haldið partí fyrir flugmálastjóra Evrópu upp á tugi milljóna króna og verður þessa vafalaust minnzt í framtíðinni sem veizlu aldarinnar," sagði flugmaður í viðtali við blaðið fyrir skömmu, en hann er ekki einn flug- . manna sem bent hefur blaðinu á að kostnaður við veizluhöldin hafi líklega farið fram úr öllu hófi. Blaðið hafði samband við ritara flugmálastjóra og bað um að fá dagskrá þessarar heimsóknar flugmálastjóranna, en hún var ekki föl, ritarinn sagði hana búna. Fundurinn var haldinn dagana 2. til 6. ágúst sl. og þar sem dagskránna vantar verða aðeins tínd til þau atriði, sem boðið var upp á, án tillits til réttrar raðar. Áður en flugmálastjórarnir lögðu af stað hingað var stöðvarstjóra Flugleiða í London sent bréf þar sem á var ritaður þríréttaður matseðill sem gestirnir einir áttu að fá um borð, listi um tegundir af Brut kampavini og V.S.O.P. koníaki og beðið um auka flug- freyju til að þjóna þessum mjög þýðingarmiklu gestum, eða V V.I.P gestum eins og það er orðað. Eftir því sem blaðið kemst næst, var gestunum ekki boðið upp á að aka til Reykjavíkur frá Keflavíkurflugvelli, heldur mun flugvél Flugmálastjórnar hafg selflutt marga þeirra, ef ekki alla, til Reykjavíkur, en gestirnir koniu ekki allir samtímis til Keflavíkur. Ekki hefur fengizt staðfest að fleiri smávélar hafi verið fengnar til verksins. Þá gaf Agnar Koefod-Hansen flugmálastjóri starfsbræðrum sínum morgungjafir á morgnana, meðal annars þjóðhátíðarpeninga, og voru slökkviliðsmenn á Reykjavíkur- flugvelli fengnir til að greiða fyrir dreifingu þeirra. Gestirnir, sem munu hafa verið 31, bjuggu á hótel Loftleiðum. Veizla var þeim haldin eitt kvöldið á Hótel Holti þar sem aðalrétturinn var lambakjöt og var lögð áherzla á að það væri af gimbrum. Ekki hefur blaðið fengið staðfest hvort veizla var haldin á Hótel Sögu. Þá var einn daginn flogið til Vestmannaeyja með Fl, farið þar í skoðunarferð og aftur til baka. Annan dag var Fokker vél frá Fl fengin sérstaklega til að flytja hópinn til Mývatns, þar sem veizlumatur beið á borðum annars hótelsins. Þaðan var ekið i skoðunarferð til Akureyrar þar sem Fokkerinn beið gestanna og flutti til Reykjavíkur. Þá þáðu gestirnir hádegisverðarboð utanrikis- ráðherra að Hótel Valhöll á Þingvöllum, en þaðan var ekið til Gullfoss. Eftir þvi sem blaðið kemst næst, óku flug- málastjórarnir aldrei um nema í lögreglufylgd. Skammt frá Gullfossi, við Tungnaá, biðu gestanna tvær Otter flugvélar frá Vængjum sem fluttu þá til Reykjavíkur. Líklega það sama kvöld þáðu þeir svo kokteilboð hjá samgönguráðherra í ráðherrabústaðnum. Einn daginn óku þeir í lögreglufylgd til Bessastaða í boð til forsetans. Spánska flugmálaráðherrann langaði eitt sinn að skreppa upp i Borgarfjörð, og bað flugmála- stjóri Landhelgisgæzluna að skutla honum þangað. Ekki var farin sér ferð með hann. en hann fékk nokkrú seinna að fljóta með þyrlunni á leið henn- ar út í varðskip úti af Vest- fjörðum. Varð hann eftir í Borgarfirði. Blaðinu hefur verið bent á fleiri atriði, sem ekki hafa enn fengizt staðfest, en til að gefa einhverja hugmynd um kostnaðinn við þessa heimsókn, hafa aðeins flugferðalög mannanna hér innanlands kostað um eina milljón, að flugi flugmálastjórnarvélanna og hugsanlega fleiri smávéla slepptu. Loks má geta þess að nokkrum dögum áður en flugmálastjórarnir komu hingað var reist stór, glæsileg og dýr flaggstöng við flug- turninn á Reykjavíkurflugvelli. Blaðið reyndi í gær að ná tali af Agnari Koefoed-Hansen flug- málastjóra og grennslast nánar fyrir um kostnaðarliði, en hann er sagður i Grikklandi vegna skrínar barnabarns síns þar. -G.S. * Símaklefar í borginni: Aldrei liðið eins langur tími án skemmda „Það hefur ekki verið svo mikiðv um skemmdir á símaklefum að undanförnu,“ sagði Ágúst Guð- laugsson skrifstofustjóri bæjar- símans. „Þetta sumar hefur verið nokkuð gott, en ástandið var verra í vetur en þá höfðum við ekki undan að gera við. Það eru bara tveir símaklefar í Reykjavík núna, annar á Lækjar- torgi og hinn í Tryggvagötunni fyrir framan Tollstöðina. Þrír eða fjórir voru við höfnina á vegum .Reykjavíkurhafnar en leggja varð þá niður vegna þess hve mikið var um að unnin væru skemmdarverk á þeim. En þeir eru eitthvað að endurskoða þessi mál núna. Mikið öryggi er í að hafa slíka klefa á almannafæri og einkennilegt að klefarnir fái ekki að vera í friði. Ekki erum við neitt spenntir fyrir að setja upp símkiefa á fleiri stöðum, þar sem reynslan hefur verið slæm, og við erum hræddir við að setja upp klefa á fáfarna staði. Við höfum að vísu lítið haft af símaklefanum í Tryggvagötu að segja, því hann er svo að segja beint fyrir framan miðbæjarstöð lögreglunnar og þeir fylgjast með honum. En aðal skemmdarverkin hafa verið framin á klefanum á Lækjartorgi. Ekki er ég viss um hvaða sektir eru við að skemma símaklefa. Ætli það fari ekki eftir mati á tjóninu. Það hefur aldrei náðst í neinn af þessum skemmdar- vörgum.“ -KL. Biluná kœli í vél Herjólfs Friðrik Öskarsson hjá útgerð Herjólfs óskaði eftir þvi að koma eftirfarandi á framfæri: Það er algerlega tilhæiulaust að sjór hafi flætt um borð í m/s Herjólf. Það varð bilun á kæli i vélinni en sjórinn, sem vakt- maðurinn sá flæða út, var notaður við kælingu. Sjórinn skemmdi ekkert. Allt gert fyrir sjúkrahúsið: Blóm seld, skip máluð, kaff isala og bingó Félagar í Lionsklúbbi Seyðis- senn raflostgjafi og rafsjá, sem fjarðar héldu upp á 10 ára afmæli sýnir hjartslátt sjúklings og gefur um leið hljóðmerki, svo greina má óreglu á hjartslættinum með sjón og heyrn. Rafstraum fær tækið úr innbyggðum rafhlöðum sem hlaða má á mjög stuttum tíma. Tækið kostaði 900 þúsund krónur án aðflutningsgjalda sem voru eftirgefin. Þessi vegiega gjöf var afhent sjúkrahúsinu i viðurvist bæjar- ráðsmanna, hjúkrunarfólks og klúbbfélaga. Hafði formaður klúbbsins, sr. Jakob Ág. Hjálmars- son, orð fvrir gefendum. Fjár til tækisins var aflað með sólarkaffisölu, bingói, getraunum, sölu ióladagatala og blóma, skipa- málun o.fl. félags síns með þvi að afhenda sjúkrahúsinu veglega gjöf. Er þetta tæki til eftirlits og með- ferðar hjartasjúklinga. Tækið er í 900 þúsund króna tækið afhent sjúkrahúsinu. Endurtekið: Karateheimsmeistari --------1 í Laugardalshöllinni Dönsku karatemennirnir slógu bókstaflega í gegn í Laugardalshöllinni á fimmtudags- kvöldið. Þeir endurtaka sýninguna kl. 13.30 í dag og verða þá með 1 klst. nýtt pró- gramm. Sjáið Tanaka Sensei heimsmeist- ara berjast við fimm fremstu karatemenn Norðurlanda. Síðasta tækifæri til að sjá einstakan íþróttaviðburð. Miðaveró aðeins kr. 400 fyrir börn og kr. 800 fyrir fullorðna. Nýbakaðir islandsmeistarar Karatefélags Reykjavíkur sýna undir stjórn Kenichi Takefusa 3. dan. Handknattleiksdeild Leiknis Athugið að sýningunni verður lokið óður en landsleikurinn hefst á Laugardalsvellinum

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.