Dagblaðið - 03.09.1976, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 03.09.1976, Blaðsíða 10
10 frfálst. nháð dagblað l'ti'ffandi Daublaðirt hf. Framkvæmdastjóri: Svcinn H. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Fróttastjóri: Jón Biruir Pótursson. Ritstjornarfulltrúi: HaukUT“Helgasön. Aöstoóarfrétta- stjón: Atli Steinarsson. íþróttir. Hallur Simonarson. Hönnun: Jóhannes Reykdal. Handrit Ásgrimur Pálsson. Blaöamenn: Anna Bjarnason. Ásgeir Tómasson. Berglind Ásgeiisdóttir. Bragi Sigurðsson. Krna V. Migolfsdóttir. Clissur Sigurösson. Hallur Hallsson. Helgi Pétursson. Jóhanna Birgis- dóttir. Katrin Pálsdóttir. Kristin Lýösdóttir. Olafur Jónsson. Ómar Valdimarsson. Ljósmyndir Árni Páll Jóhannsson. Bjarnleifur Bjarnleifsson. Björgvin Pálsson. Ragnar Th. Sigurósson C'ijáldkeri: Þrátnn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: MárE.M. Halldórsson. Áskriftargjaid 1000 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 30 kr. eintakiö. Hitst jórn. Síóumúla 12. sími 83322. auglýsingar. askriftir og afgreiðsla Þverholti 2. sími 27022. Setning og umbrot: Dagbláóió hf. og Steindórsprent hf.. Armúla 5. Mynda- og plötugeró: Hilmir hf.. Sióumúla'12. Prentun: Árvakur hf.. Skeifunni 19. Vekja ekki traust Stjórnmálamenn. sem vilja njóta trausts almennings, þurfa að vera sannorðir. Þeir þurfa að venja sig á að segja sannleikann, allan sann- leikann og ekkert nema sannleik- ann. Þetta er stundum erfitt, þegar • illa stendur á. En það borgar sig vel, þegar til lengdar lætur, því að almenningur er fljótur að læra að meta sann- orða stjórnmálamenn. Hér á landi er því miður allt of algengt, að stjórnmálamenn reyni að ljúga sig út úr vanda- málum líðandi stundar, jafnvel þótt þeir viti, að upp komist um síðir. Sennilega byrjar þetta með því, að þeir freistast til að fresta vanda- málum sínum, en getur endað með því, að þeir blekki ekki aðeins aðra, heldur einnig sjálfa sig. Tvö dæmi um þetta vandamál verða rakin hér lauslega. Þau eru í sjálfu sér ekki merkileg, en sýna þó, hvernig stjórnmálamenn hafa stundum blekkingar á hraðbergi án þess að blikna né blána og jafnvel án neinnar sjáan- legrar ástæðu. Dagblaðið skýrði frá því 18. ágúst, að væntan- legur væri annar þýzkur sérfræðingur til rann- sóknarlögreglunnar til viðbótar við Schútz, sem þá var búinn að vera hér um skeið. Þessar upplýsingar hefðu ekki átt að skelfa Ólaf Jóhannesson dómsmálaráðherra. Samt sá hann ástæðu til að bera fréttina strax til baka. Hann sagði ,í Tímanum 19. ágúst: Ég kannast ekki við það, að væntanlegur sé hingað til lands annar þýzkur sérfræðingur til rannsóknarlög- reglunnar og þaö hefur ekkert komið til tals, svo ég viti, að fá annan þýzkan sérfræðing“ Daginn eftir þessar eindregnu afneitanir skýrðu blöðin frá því, að þessi sérfræðingur væri samt væntanlegur. Síðan hefur þessi maður komið og verið í fréttunum vegna nýjasta morðmálsins. Dagblaðið skýrði frá því 20. og 21. ágúst, að sjómenn á Halamiðum teldu Vestur-Þjóðverja moka þar upp þorski undir því yfirskini, að um karfa væri að ræða. Ennfremur, að ekki væri að treysta löndunartölum, þar sem Þjóðverjarnir gætu sagzt hafa veitt þorskinn við Austur- Grænland og Færeyjar. Loks sagði blaðið að íslendingar hefðu ekkert eftirlit með þessu. Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra bar þetta eindregið til baka í Vísi 24. ágúst. Hann sagði þar: ,,Þetta á ekki við nein rök að styðjast. Það er fylgzt vel með veiðum Þjóð- verja. Bæði eru tekin sýnishorn úr aflanum og ennfremur eru skýrslur“ frá Þjóðverjum. Tveim dögum síðar upplýsti forstjóri Land- helgisgæzlunnar í Dagblaðinu, að „við höfum aldrei kannað aflasamsetningu né aflamagn vestur-þýzku togaranna“. Sagði hann gæzluna aðeins hafa kannað möskvastærðir, en mundi einnig kanna hitt, ef ráðuneytið óskaði þess. Og hinn 27. ágúst upplýsti svo Dagblaðið, að sjávarútvegsráðuneytið hefði þó óskað eftir því, að gæzlan kannaði sérstaklega aflasam- setningu og aflamagn vestur-þýzku togaranna. Engin skýring er til á því, hvers vegna reynt var að beita blekkingum í þessum málum. Kannski er það bara vaninn sem ræður. DAGBLAÐIÐ. — FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1976, Víkingur 2. lendir á Mars í dag: Vikingur 2., geimfarið banda- ríska, mun lenda á reikistjörn- unni Mars skömmu eftir sólar- uppkomu þar á stjörnu í dag, ef allt fer að óskum vísinda- manna. Lendingarstaðurinn (Jtópía er hrjóstrugt landsvæði en þar telja vísindamenn samt að auðveldara verði að finna líf en á lendingarstað Víkings 1. sem enn starfar á reikistjörn- unni. Skömmu fyrir klukkan átta í kvöld mun geimferjan losna frá flauginni og með aðstoð bremsumótora og fallhlífa mun hún lenda á Mars þrem tímum síðar. Vísindamenn vonast til þess að svona fari lending Víkings 2. fram. Með hjálp fallhlífa og bremsueldflauga mun geim- ferjan lenda mjúklega á sand- breiðu í Útópíu. Á BAK V® BYRGDA GLUGGA Nú haustar og þá hefjumst við handa. Enn hafa bankarnir skotiztmillitannanna á fólki. Og ekki að ófyrirsynju. Nú vegna þess að vegna fr*amhalds- rannsóknar svokallaðra Geir- finnsmála setti Seðlabankinn af stað athugun á ávísana- viðskiptum tiltekinna manna, og upplýst hefur verið, þótt hægt gangi, að þar sé um að ræða fjársvik sem nema stórum upphæðum. Að vísu er ennþá óljóst hvort landslög ná yfir fjársvik af þessu tagi, það eru heldur ekki nema tólf ár síðan fyrst komst upp um slíkt. og eins og kunnugt er er iöggjafi landsins ekki methafi i spretthlaupum.Eins er óljóst að hve miklu leyti bankarnir eða ábyrgðarmenn þar hafa verið í vitorði með ávísanaútgéfendun- um — og óvíst er hvort það verður nokkurn tímann upp- lýst. Það eru misseri síðan það fór almennt að renna upp fyrir mönnum hvers konar óheilla- sukk hugsanlega viðgengst og hefur viðgengizt á bak við byrgða glugga bankakerfisins. Landsmönnum var á síðastliðn- um vetri opnuð sýn inn í einn banka — einkabanka reyndar, Alþýðubankann. Og þvílík sjon! Verðbólgan og pólitísk ob hugsjónalaus bankaráð hafa framkallað nýja stétt manna. bankabraskara, og þessi nvja Kjallari á föstudegi Vilmundur Gylfason stétt hagnast um upphæðir. stundum svo ótrúlegar, að það þarf áreiðanlega að segja þeim, sem fyrir utan þetta kerfi standa, það tvisvar eða þrisvar. Og þetta eru meira að segja orðin svo opinber sannindi, að fyrir nokkrum dögum sá hjal- miðillinn íslenzki. Morgunblað- ið. ástæðu til þess að fara nokkrum almennum og merkingarlausum orðum um bankaspillinguna í forustu- grein. Þá má gera ráð fyrir að ástandið sé orðið svart. Prinsípmál. Vegna ávísanamisferlisins hefur merkilega grundvallar- spurningu borið á góma. Á að birta nöfn þeirra sem með þessum hætti hafa *verið að leika á bankakerfið, með eða án þess vitundar? Nú er það auðvitað svo að slík nafnbirting felur ekki i sér sakfellingu, hún væri einasta til þess fallin að upplýsa landsmenn um hverjir hafa verið að komast yfir fjármuni með þessum hætti. Það væri svo dómstóla seinna meir að finna út hvort það væri saknæmt. Auðvitað er slík nafnbírting álitamál — en eins og dómskerfinu háttar og eins og fólk í vaxandi mæli og að gefnu tilefni vantreystir því og eins og sögusögnum háttar, þá var auðvitað ekki um annað að ræða en að birta þessi nöfn strax. Eins og raunar dóms- málaráðherra vildi að gert yrði. hvernig sem á því stendur. Hitt er svo einkennilegra að í sjónvarpsfréttum var það haft eftir yfirsakadómaranum í Reykjavík, Halldóri Þorbjörns- svni. — að á meðal ávísana-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.