Dagblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 7
HELGI PETURSSON REUTER ASGEIR TÓMASSON DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976. CARTER TILKYNNIR 6% EFNAHAGSBATA — vill halda seðla- bankastjóranum áfram Jerry Lee Lewis handtekinn: Hugdist skjóta Elvis Presley Dómari í Memphis í Tennesee fylki gaf í nótt út handtöku- skipun á bandaríska rokksöngv- arann Jerry Lee Lewis. Hon- um var gefið að sök að neita að mæta fyrir rétti eftir að hafa verið handtekinn blindfullur og vopnaður skammbyssu fyrir utan heimili Elvis Presley. Að sögn lögreglunnar var Jerry handtekinn í gær- morgun 'við hliðið á heimili Presleys. Þar hrópaði hann formælingar og veifaði skammbyssunni um leið og hann krafðist þess aö sjá Presley. Daginn áður en þetta gerðis er haft eftir*Jei'rv Lee, að ávallt siðan þeir Presley urðu rökkstjörnur hafi . sá síðarnefndi hlotið meiri at- hygli i blöðum. Stjörnurnar eru báðar 41 árs og hafa staðið i sviðsljósinu í 20 ár. A mánudaginn var JerryLee Lewis handtekinn í Collier- ville í Tennessee vegna ölvunar við akstur Við allt bættist að hann hefur ekki ökuleyfi eftir að hafa lent í umferðarslysi fyrir nokkru. Jimmy Carter sagði, að efna- hagsmál myndu hafa mun meiri þýðingu í stefnu Banda- ríkjanna i utanríkismálum og því yrði þýðingarmikið að góður maður veldist til starfa, sem fjármálaráðherra. Þá tilkynnti hinn verðandi forseti landsins, að hann myndi eiga mun betra og áður óþekkt samstarf við þing landsins og að efnahagsbati þjóðarinnar myndi nema um 6% á næsta ári. Hann tilkynnti ennfremur, að ef Arthur Burns, seðla-, bankastjóri vildi halda áfram starfi sínu „kemur það sér vel fyrir mig.‘‘ Seðlabankastjórinn hefur tilkynnt, að hann vilji gjarna halda áfram þar til kjör- tímabili hans lýkur í janúar 1978. YIÐ FLYTJ ámorguní ' húsnæði við Strandgötuna Önnumst alla almenna bankaþjónustu. Höfum tryggingaumboó fyrir Samvinnutryggingar g.t. og Líftryggingafélagið Andvöku. Opið alla daga kl. 9.30 — 12.30 og 13.00—16.00 nema laugardaga. Ennfremur á föstudögum kl.17.30—18.30 Nýtt símanúmer: 5-39-33 Samvinnubankinn STRANDGÖTU 33, HAFNARFIRÐI SÍMI 53933 Carter með varaforsetanum, Walter Mondale. Mesti jarðskjálfti í Tyrklandi síðan 1939 3000 manns hafa látið Björgunarsveitir hafa brotizt í snjókömu og slæmri færð til austurhluta Tyrklands i leit að þeim semkynnu að vera enn á lífi þar eftir mikinn jarð- skjálfta, er talinn er hafa orðið a.m.k. 3000 manns að bana siðdegis í gær. Varnarmálaráðherra Tyrk- lands, Ferit Melen, sagði frétta- mönnum í gærkvöldi, að sam- kvæmt þeim viðtölum, sem hann hefði átt við yfirvöld í hinum afskekktu héruðum þarna i austurhluta landsins. eins og t.d. Van-héraðinu nálægt írönsku landa- mærunum, mætti búast við því að finna a.m.k. 3000 lík strax á fyrsta degi en óttast er að miklu fleiri hafi farizt. Samkvæmt heimildum yfirmanna björgunarsveita var búið að til- kynna lát 600-700 manna innan nokkurra klukkustunda frá því að jarðskjálftinn varð, á um 500 km breiðu svæði. Miðbik skjálftans var við þorpið Kuradye en skjálftinn mældist 7.6 á Richterskvarða. Segja yfirvöld í þorpinu, að um 500 af 6000 íbúum þess hafi látizt og að næstum því öll hús hafi skemmzt meira eða minna. Ekki bætti það úr skák, að er björgunarsveitir hófu að búa sig undir að komast til jarðskjálftasvæðisins, hófst mikil snjókoma og tók að frysta. þannig að þarna eru nú um 12 stiga frost. Mikill jarðskjálfti varð í austurhluta Tyrklands í fyrra og mældist hann um 6.8 stig á Richter. Þá er talið að a.m.k. 2.500 manns hafi látið lífið og 3000 hafi slasazt. Upptök þcss skjálfta var við bæinn Lice, skammt vestur af núverandi jarðskjálftasvæði. yfsindamenn óttast að jarðskjálftinn sem varð í gær kunni að vera einn sá versti sem prðið hefur í Tyrklandi síðan árið 1939, er röð jarðskjálfta varð um 25.000 manns að bana. Samkvæmt fréttastofunni Tass, varð jarðskjálftans vart í sovétlýðveldinu Armeniu, en ekki var getið um skemmdir af völdum hans þar, né manntjón. „Nudd- stofur” aflagðar r I Bangkok Herforingjastjó™ Thailands hefur látið þau boð út ganga að ekki megi ráða frekari starfskrafta til blómlegustu iðngreinar í Bangkok, — hinna frægu nuddstofa. I útvarpsræðu, sem allur landslýður hlýddi á, sagði forsætisráðherra stjórn- arinnar.Thanin Kraivichien, að ekki myndu verða gefin leyfi fyrir fleiri slíkum stofnunum eða svipuðum „skemmtistöðum". Forsætisráðherrann bætti því við að frá og með þeirri stundu myndu yfirvöld sjá til þess, að stúlkurnar yrðu látnar læra einhverja aðra iðn. Erlendar fréttir Auglýsingadeildin

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.