Dagblaðið - 31.05.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 31.05.1977, Blaðsíða 1
3. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 31. maí 1977 — 117. TBL. RITSTJÖRN SÍÐUMÚLA ‘12, AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI lir AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSÍMI27022 Sérkröf uhnúturinn enn óleystur Látum ekki stilla okkur upp við vegg” sagði formaður málm- og skipasmiða fmorgun—beðið eftir samþykki iðnaðarmanna við2,5 prósentunum Sérkröfuhnúturinn er ekki leystur, þótt Verkamannasam- bandið hafi samþykkt 2,5 prósentin. Enn var í morgun beðið eftir svari frá iðnaðar- mannafélögunum, hvort þau féllust líka á 2.5%. „Við látum ekki stilla okkur upp við vegg,“ sagði Guðjón Jónsson, for- maður Málm- og skipasmiða- sambandsins, í viðtali við DB í morgun. „Við byrjuðum í gær að ræða við atvinnurekendur um ýmsar sértillögur okkar sem ekki hafa mikil útgjöld i för með sér. Við viljum sjá, hvernig þeim reiðir af áður en við tökum afstöðu til 2,5 prósentanna." „Ánnað væri fullkomlega siðlaust. Iðnaðarmannafélögin hljóta að samþykkja 2,5 prósentin," sagði Davíð Scheving Thorsteinsson, for- maður Félags íslenzkra iðnrek- enda, í morgun. „Fyrr en þessu er lokið er engin leið að halda áfram með forgangs- kröfurnar." Davið lagði áherzlu á að sérkröfumálið væri engan veginn leyst þótt Verkamanna- sambandið hefði gengið frá sín- um málum. „Verkamannasam- bandið hefur lagt spilin á borð- ið og væntir þess, að önnur sambönd geri hið sama,“ sagði Karl Steinar Guðnason, vara- formaður Verkamannasam- bandsins, í viðtali við DB í gær. Hann sagði, að það væru þátta- skil í sérkröfumálinu, að Verkamannasambandið, með helming félaga í ASÍ, hefði samið um sérkröfurnar. Ekki ætti að vera margra daga verk að ganga frá sérkröfum annarra. Sérstök - vandamál hefðu verið með Verkamanna- sambandið, sem hefði ótal stéttir innanborðs með mjög mismunandi kjörum. Verkamannasambandið féllst á að 2,5% færu í sér- kröfur eftir að forystumenn þess höfðu tekið þeirri tillögu fálega í fyrstu. Karl Steinar sagði að nú kæmi til 2,75 prósenta aldurshækkun eftir .4 ár í starfi. Þessa nýju aldurshækkun mætu menn á 1,25% hækkun á kaupi almennt að meðaltali'.Þá kæmu tjl taxta- tilfærslur sem væru metnar á önnur 1,25 prósent. -HH. Á nýjum gallabuxum og strigaskóm á leið ísveitina Það var eftirvænting í svip krakkanna, sem voru að leggja af stað í sveitina í morgun. E.t.v. var svolítill kvíði innst inni, enda sumir að fara í fyrsta sinn frá mömmu og pabba. En flestir skörtuðu nýjum gallabuxum og strigaskóm, albúnir að vinda sér í sauðburð og kúarekstur. Krakkarnir, sem eru á vegum Félagsmálastofnunar Reykjavíkur, voru að fara til tveggja til þriggja mánaða sumard"alar á ýmsum bæjum allt frá Borgarfirði norður í Skagafjörð. Allir voru vel merktir, bæði nafn og bæjarnafn á brjóstinu þannig að tryggt væri að hver færi á sinn stað. .jh. íslenzkt skip reyndi að landa í Skotlandi ígær: Löndun stöövuö eftir 50 tonn — útgerðingaf skipst jóranum fyrirmæli um aðforðastallan Mhasar”eftirað mótaðgerðir hóf ust íslenzka skipið Stapavík landaði um sjö tonnum af fiski í skozku smáhöfninni Troon í gær og rauf þannig einangrun íslenzkra fiskiskipa frá brezk- um höfnum, sem hafnarverka- menn og sjómenn hafa sett á, að sögn Reuters i morgun. Skv. síðustu fréttum í gær voru þrír bílfarmar úr skipinu á leið til verksmiðja í Hull og Grimsby, en samband flutn- ingaverkamanna, sem í eru m.a. hafnarverkamenn, hefur farið þess á leit við forráða- menn verksmiðjanna að þeir taki ekki á móti fiskinum. Formælendur fiskiðnaðarins í Bretlandi telja um níu þúsund manns hafa misst atvinnu i kjölfar brottvísunar brezkra skipa úr íslenzkri landhelgi. Reuter segir að Stapavík hafi fyrst reynt að landa í Fleet- wood en mistekizt og hafi þá verið búizt við að skipið landaði í smáhöfninni Ayr. Kom fyrr- nefnt hafnarval skipsins sjó- mönnum og hafnarverkamönn- um í opna skjöldu og voru laus- ráðnir menn fengnir til losunarinnar. Haft er eftir brezkum skip- stjóra að hefði hann vitað af þessu hefði hann gengizt fyrir því að sjómenn lokuðu höfninni og það væri óverjandi að íslenzk skip gætu fengið að landa í Bretlandi fiski af Islandsmiðum um leið og Bret- ar hafi verið reknir af þeim miðum. Þegar landað hafði verið um sjö tonnum gripu sjómenn og hafnarverkamenn inn í og stöðvuðu frekari löndun. I fréttum Reuters í morguh segir ekki frekar af ferðum Stapa- víkur. Þormóður Rammi á Sigiu- firði gerir út Stapavík, sem áður hét Reykjaborg. Ömar Hauksson skrifstofustjóri sagði í viðtali við DB í morgun að löndun hefði ekki verið stöðvuð fyrr en eftir 50 tonn, sem voru % hlutar aflans, skv. samtali við skipstjórann í gær eftir að skipið var farið frá bryggju aftur. Fékk skipstjórinn þau fyrir- mæli héðan að forðast allan „hasar" eins og Ömar orðaði það og halda til Færeyja til að landa afgangnum. Mun skipið á leið þangað nú. G.S. Algjört bann viðúðabrúsum framundan! — gasmengunin talin hættuleg jarðlrfi — sjá bls. 5 Enn einn stórgallaður skuttogari f rá PóSlandi -sjábls.4 ÖlvunáHvrta- sunnumótinu „ekki meiri en í samfélaginu yfirleitt” — sjá bls.8 Islenzka sfldin ásér litla viðreisnarvon — sjá kjallaragrein Reynis Hugasonar ábls. 10-11 Eigaátthaga- f jötrar að ráða námsvali? — sjá bls. 12

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.