Dagblaðið - 06.06.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 06.06.1978, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978. Þau eru talin fyrstu feðginin, sem stjórna farþeganugvél saman í áætlunarflugi, Debra Ann Powers tuttugu og fjögurra ára bandarfsk stúlka lauk nýlega prófum sem vélstjóri á DC 8 þotur og hefur nú hafið störf með föður sinum Art Powers flugstjóra hjá bandarfska flugfélaginu United Airlines. Fletti ofan af Springerpressunni: Á NÚ ERFITT MEÐ AÐ FÁ VINNU Giinter Wallraff hinn þekkti blaðamaður, sem undanfarin ár hefúr stundað það að ráða sig til ýmissa starfa undir fölsku flaggi og skrifa síðan um reynslu sfna á orðið erfitt með að fá vinnu nokkurs staðar f Vestur-Þýzkalandi. Hann starfaði meðal annars sem tyrkneskur verkamaður um nokkurt skeið og vakti sú reynsla hans, sem hann kynnti Þjóðverjum í greinum sinum, mikla athygli og benti hann á margan vanda þessara farandverkamanna. Frægastur varð Wallraff þó fyrir að ráða sig 1 já Bild, stærsta blaði Vestur-Þýzkalands sem er i eigu blaðakóngsins SpringersSagði hann frá ýmsum vafasömum aðferðum við fréttaöflun og störf á blaðinu og hlaut litla þökk útgáfunnar eða samstarfsmann sinna þar. Wallraff hefur skrifað bók um störf sin hjá Springer blaðahringnum en hefur átt f erfiðleik- um við útgáfu hennar vegna stöðugra málaferla á hendur honum. Fjárhagur New York enn í fári Edward Koch borgarstjóri yfirheyrður hjá þingnefnd ídag Enn einu sinni eru fjármál New York nefnd á vegum öldungadeildar banda- borgar í fári og borgarstjórinn Edward rískaþingsinstilaðgeragreinfyrirstöðu Koch mun í dag mæta til yfirheyrslu hjá borgarinnar. Formaður þeirrar nefndar er öldungadeildarþingmaðurinn William Proxmire, sem hefur verið mjög and- stæður frekari aðstoð bandarísku alrikis- stjórnarinnar við New Yorkborg. Telur hann enga þörf á frekari lánum. Fundinum verður sjónvarpað beint op bíða New York búar spenntir eftir að sjá hvernig Koch borgarstjóra þeirra gengur að verja mál sitt en meðal þess sem hann verður vafalaust krafinn skýringa á eru nýgerðir launasamningar við starfsmenn borgarinnar. Þar fengu þeir meiri hækkun en Koch vildi fallast á í byrjun. Þau lán og fjárhagsaðstoð, sem alríkisstjórnin veitti New York renna út í lok þessa mánaðar. Hafa þau þó ekki gert meira en að sjá fyrir brýnustu greiðslum þannig að rekstur og nauðsyn- legustu framkvæmdir stöðvuðust ekki. Framtíðin er aftur á móti svört og enginn er talinn vilja lána New York borg án ábyrgðar alrikisstjórnarinnar. Þó vitað sé að margir þingmenn í Washington sét: fylgjandi aðstoð við stórborgina eru andmælendur margir. Óttast þeir meðal annars að slík aðstoð gefi slæmt fordæmi og engan veginn er vitað hvernig þingmannanefndin, sem tekur málið til rannsóknar i dag, muni snúast við þvi er til atkvæðagreiðslu kemur að lokum. Hitunarkerfió sprakk í skrif- stofubygging- unni Einn lézt og sextán manns slösuðust, þar af þrír mjög alvar- lega, er mikil sprenging varð í skrifstofubyggingu í miðborg Aþenu á laugardaginn. Upptökin virðast hafa verið í kjallara hússins og eru talin stafa frá hitunarkerfi. Eldur brauzt út við sprenginguna og skemmdir urðu miklar. Sex ákærðir fyrir rán og morð á Aldo Moro Sex menn sem grunaðir eru um að vera viðriðnir ránið og morðið á Renault verk- smiðjur her- teknar Verkfallsmenn lokuðu í gær al- gjörlega öllum aðgangi að tveim verksmiðja Renault bifreiðaverk- smiójanna í Frakklandi. Þykir Aldo Moro fyrrverandi forsætis- ráðherra Ítalíu hafa verið formlega ákærðir fyrir verknaðinn. Einn mannanna gengur enn laus en hinir fimm eru í gæzluvarðhaldi. Einn þeirraereigandi prentsmiðju einnar í Róm en þar fundust hlutir í eigu Rauðu herdeildanna það er skæruliðasveitarinnar sem talin er hafa rænt Moro. Einnig fundust skjöl tengd hreyfingunni. þetta benda til að forustumenn þeirra hyggist halda kröfum sínum til streitu. Verksmiðjum í Normandy og í nágrenni París hefur verið lokað siðustu fimm daga vegna krafna starfsmanna um launahækkanir og fimm vikna sumarleyfi. Dómstólar hafa skipað verkfallsmönnum að yftrgefa aðra verksmiðjuna en höfnuðu kröfum um hiðsamaíhinni. Blaðamaður sviptur gögnum sínum í Pól- landi Norskur blaðamaður frá Oslóar- blaðinu Morgenblad var sviptur öllum minnismiðum og gögnum, sem hann hafði safnað á meðan hann dvaldi í Póllandi fyrir skömmu. Gerðist þetta er hann fór úr landinu 28. fyrra mánaðar. Norska utanrikisráðuneytið hefur krafizt þess að gögn blaðamanns- ins Magne Haug veröi afhent honum aftur. Fjórir kommar horfnir spor- laust í Argen- tínu Fjórir félagar í argentínska kommúnistaflokknum hafa horfið á undanförnum dögum og ekkert til þeirra spurzt að sögn félaga þeirra. Eru mennirnir sagðir hafa verið sóttir heim af vopnuðum aðilum, sem sögðust tilheyra öryggislögreglu Argentinu. Einn mannanna er í heimsfriðarráði Sameinuðu þjóðanna. Öllum litum hleypt saman i leikhúsið í Suður-Afriku Tuttu og sex leikhúsum í Suður- Afríku hefur verið heimilað að selja öllum kynþáttum aðgang að sömu sýningum. Þykja þetta miklar framfarir frá því sem áöur var, er sækja þurfti um leyfi til að halda slíkar sameiginlegar sýn- ingar. Kínverjar ná í sitt fólk til Vietnam Opinberlega var staðfest i Peking í gær, að tvö kinversk far- þegaskip mundu sigla á næstunni til Vietnam og taka þar það fólk af kínverskum uppruna, sem óskaði eftir að fara úr landi. Kínverjar hafa undanfarið ásakað Vietnama um að hafa ofsótt þetta fólk og jafnvel skotið á það á leið þess yfir landamærin til Kína. Stjórn Viet- nam hefur tilkynnt að hún muni leyfa kinversku skipunum að koma til hafnar. Um það bil 100.000 Kinverjar eru sagðir hafa farið frá Vietnam á undanförnum vikum. Sovétkonur vilja meiri vara- lit og augn- skugga „Við viljum líka vera fallegar,” sagði i kvörtunarbréfi til sovézks snyrtivörufyrirtækis, sem barst því frá stúlkum i Siberiu. Sovézkar konur virðast vera orðnar leiðar á að geta ekki fengið eins miklar snyrtivörur og þær óska. Mikill skortur er á varalit, ýmsu húð- kremi og augnskuggum og ekki eru taldar horfur á að eftirspurn- inni verði fullnægt á næstupni. Dagblaðið Izvestia sagði að franskur málsháttur segði að til þess að verða fagrar yrðu konur að þjást. „Konur okkar þjást af þreytu við leit,” sagði blaðið. Þrír farast í snjóskriðu Þrír ungir fjallgöngumenn fórust í norð-vesturhluta Júgó- slavíu ersnjóskriða féll á þá. REUTER

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.