Dagblaðið - 18.05.1979, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 18.05.1979, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1979. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. MAÍ1979. Iþróttir Iþróttir Shrewsbury efstí3. deild — en Millwall féll 13. deild Shrewsbury varð sigurvegari i 3. deild á Englandi í gær, þegar liflið sigraði Exeter á heimavelli 4—1 í siðasta leik sínum á leiktímabilinu. Það er í fyrsta sinn, sem Shrewsbury vinnur sér rétt til að ieika i 2. deild á Englandi — og liðiö tapafli ekki leik á heima- velli í 3. deild á keppnislimabilinu. Staða efstu liöannaí deildinni var þannig. Shrewsbury 46 21 19 6 62—41 61 Watford 46 24 12 10 83—52 60 Swansea 46 24 12 10 83—61 60 Swindon 46 25 7 14 74—52 57 Gillingham 45 20 17 8 69—43 57 W'atford og Swansea færast því upp í 2. deild ásamt Shrewsbury og þau taka þar sæti fræga liöa, Blackburn, Sheff. Utd. og Millwall, sem féllu niður í 3. deild. Millwall lék i gær við Wrexham i 2. deild á heimavelli og náði ekki nema jafntefli, 2—2. Mill- wall varð að sigra i leiknum til að hafa möguleika á að halda sæti sinu og það með miklum mun. Það tókst ekki og Millwall, sem á einn leik eftir gegn Preston á heimavelli, getur nú ekki lengur náð Charllon að stigum. Úrslit íleikjunum í gær. 1. deild Leeds-Liverpool 0—3 2. deild Millwall-Wrexham 3. deild Sheff.Wed.-Blackppol Sh rewsbury-Exeter 4. deild Hartiepool-Northampton Wimbledon-Darlington 2—2 2—0 4—1 2—0 2-0 24 lönd leika á HM á Spáni — Skipulagsnefnd FIFA hefur samþykkt fjölgun en fram- kvæmdastjóm FIFA á eftir að fjalla um málið Skipulagsnefnd FIFA, alþjóðaknattspyrnusam- bandsins, samþykkti eínróma í gær afl fjölga þátt- tökulöndum í úrslitakeppni heimsmcistarakeppn- innar úr 16 i 24. Þessi samþykkt nefndarinnar fer nú fyrir framkvæmdastjórn FIFA tíl nánari athugunar og er talið fullvist, að stjórnin samþykki einnig þessa breytingu. Það má því telja öruggt að i úrslilakeppni HMáSpáni 1982 leiki 24 lönd. Skipting milli hcimsálfa verður þannig að 13 lönd leika í úrslitunum frá Evrópu ásamt gestgjöfunum Spáni, þrjú lönd verða frá Suöur-Ameriku ásamt heimsmeisturum Argentinu. Þá verða tvö lönd frá Afriku, tvö lönd frá Mið- og Norður-Ameríku og tvö lönd frá Asiu og Eyjaálfu. Það þýðir aö heims- meistarakeppnin á Spáni verður sú umfangsmesta hingaö til og mun standa i tæpan mánuð frá 16. júní til ll.júli 1982. Á fundi skipulagsnefndar FIFA í gær var lögð fram skýrsla frá framkvæmdanefnd Spánverja í sambandi vifl keppnina og einnig frá formanni skipulagsnefndarinnar, Hermann Neuberger, Vestur-Þýzkalandi. Hann hefur ásamt fleiri nefndarmönnum kynnt sér 15 knattspyrnuvelli i 14 borgum á Spáni. Spánverjar eru mjög vel í slakk búnir til að sjá um framkvæmd kcppninnar — frægustu knattspyrnufélög Spánar ciga stórkostlega velli, sem leikirnir á HM verða leiknir á. Golfmót á Hólms- velli um helgina Mikil golfkeppni — Michelin-keppnin svonefnda — hefsl á golfvellinum á Hólmsvelli í Leiru í fyrra- málið kl. niu. Þann dag lýkur keppninni með forgjöf og geta allir sem vilja tekið þátt i henni. Þá verða cinnig leiknar fyrri 18 holurnar i keppni án forgjafar. Þeir, sem verða í 30 efslu sætunum, vinna sér rétt til þátttöku siðari daginn, það er sunnudag. Þá hefst keppnin kl. 10.00 og cr reiknað með að henni Ijúki kl. 15.30. Michelin-umboflið hefur geflð verðlaun til keppn- innar en umboðsmaður þess i Keflavík er ísleifur Sigurflsson. Veitt verfla aukaverfllaun þeim til handa, sem verður næstur holu á þriðju braut. í fyrra sigrafli Gylfi Kristinsson í Michelin-keppn- inni. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir —sigraði Leeds á Elland Road í gærkvöld Ásdís Alfreðsdóttir. DB-mynd Þorri. Keppt á harðfenni brautir gróf ust ekki Laugardaginn 5. maí var keppt í síðari hluta innanfélagsmóts Ármanns, stórsvigi. Gott veður var í Bláfjöllum en haröfenni mikið svo brautir grófust ekkert. Allir flokkar kepptu í sömu braut nema 10 ára og yngri, sem fóru styttri braut og aðeins eina ferð. Úrslit urðu þessi: Slórsvig Kvcnnailokkur: sek sek. sek. 1. Ásdís Alfreðsdóttir 55,65 54,47 110,12 2. Ása Hrönn Sæmundsd. 104,36 58,07 162,43 Karlaflokkur: 1. Jónas Ólafsson 55,27 53,54 108,81 2. Sigmundur Ríkharðsson 62,72 61,35 124,07 3. Skúli Þorvaldsson 65,85 60,24 126,09 Stúlkur 13—15ára 1. Björk Harðardóttir 63,44 63,90 127,34 2. Þórunn Kgilsdóttir 3. Rugnhildur Skúlad. Drengir 15—16ára 1. Ríkharð Sigurðsson 2. Einar Úlfsson 3. Theódór Snorrason Drengir 13—14 ára 1. Tryggvi Þorsteinsson 2. Kristinn Guðmundsson 3. Árni Alvar Arason Stúlkur 11—12 ára 1. Dýrleif Arna Guðmdsd. 2. TinnaTraustad. 3. Kristjana Skúlad. Drengir 11—12 ára 1. Baldvin Valdimarss. 2. Hilmar Skúlason 3. Sigurjón Sigurðss. 65,51 65,96 64,82 67,17 131,47 131,99 52,46 53,26 105,72 53,26 52,55 105,81 58,29 60,83 119,12 56,39 59,07 115,46 64,88 61,36 126,24 68,18 63,37 131,55 68,51 69,67 138,18 71,01 67,85 138,86 83,25 87,35 170,60 69,03 65,66 134,69 69,01 69,24 138,25 69,49 71,08 140,57 Stúlkur 10 ára og yngri 1. Svava Skúladóttir 2. Hulda Valdimarsdóttir 3. Inga K. Guðmundsdóttir Drengir 10 ára og yngri 1. Guðmundur Pálmason 2. Haukur Arnórsson 3. Kggert Kristinsson 50.15 sek. 52.15 sek. 54,31sek. 39,37 sek. 44,34 sek. 44,84 sek. Þorri. Námskeið í badminton Badmintonsamband íslands gengst fyrir fyrri hluta A-stigs leiðbeinenda- námskeiðs nk. laugardag og sunnudag, 19.—20. maí. Það hefst kl. 10.30 á laugardagsmorgun í TBR-húsinu. Námsskeiðsgjaldið er 7500 kr. fyrir fyrri hlutann. „Við hefðum ekki getað vonast eftir að slá stigametiö á betri stað en í Leeds. Við höfum sýnt frábært öryggi í leikjum okkar og staðfestu. Ég er viss um að það þarf mjög gott liö til að bæta þetta met. Ég held það komi til með að standa í mörg ár”, sagði fram- kvæmdastjóri Liverpool — Bob Paisley — mjög ánægður eftir að lið hans hafði sigraö Leeds á Elland Road í Leeds með þremur mörkum gegn engu i gærkvöld. Þar með hafði Liverpool sett nýtt stigamet í 1. deildinni ensku — hlotiö 68 stig í 42 leikjum og bætt eldra stigamet Leeds í deildinni um eitt stig. Stigunum 66 náði Lceds á leiktímabil- inu 1968—1969 svo það met stóð í tiu ár. En þetta var ekki eina met Liverpool í 1. deildinni á leiktímabilinu. Liðið fékk aðeins á sig sextán mörk í leikjun- um 42 — miklu færri en nokkru sinni hefur áður átt sér stað í deildinni. í leiknum á Elland Road hafði Liver- pool mikla yfirburði og lék hið ágæta Leeds-lið sundur og saman. Áhuginn gneistaði af hverjum leikmanni Liver- pool — þeir voru ákveðnir í að setja nýtt stigamet. Liverpool náði fljótt forustu með marki David Johnson. Síðan skoraði Jimmy Case og Johnson aftur — og nýja stigametið hafði séð dagsins Ijós einmitt á þeim velli, sem' Leeds setti nýtt stigamet fyrir tíu árum undir stjórn Don Revie. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, bæði hjá Revie og Leeds. Eini leikurinn, sem nú er eftir í ensku deildakeppninni, og einhverja þýðingu hefur, verður í kvöld í West Bromwich. Þá leika WBA og Notting- ham Forest um silfurverðlaunin í I. deild. West Bromwich Albion þarf aðeins jafntefli í þeim leik til að tryggja sér annað sætið — hefur 59 stig en Aðeins óráðið nú hvert fjórða fallliðið verður VFL Gummersbach er Evrópumeisl- ari bikarhafa! Liðið sigraði SC Magde- burg með 15 mörkum gegn 11 — áhorf- cndur 13 þúsund — i Dortmund á sunnudag. Eftir þcnnan sigur Gummersbach efast enginn um þá stað- reynd, að v-þýzkur handknattleikur hefur lyft sér á toppinn í heiminum i dag. Það, sem gerði sigur Gummers- bach enn athyglisverflari, er sú stað- reynd, að liðið lék án síns bezta manns, Joachim Decharm, sem enn liggur meðvitundarlaus eftir slysið, sem hann lenti í fyrir um 6 vikum. Fyrri leikinn hafði Magdeburg unnið með 18—15 og möguleikar Gummers- bach voru því nokkuð góðir — þriggja marka forskot telst ekki mikið i Evrópukeppni, hvað þá þegar mótherj- inn er VFL Gummersbach. Að mæta liðinu í Westfalen-halle í Dortmund fyrirframan 13 þúsund-áhorfendur er ekki svo auðvelt. Það hafa flest beztu lið Evrópu fengið að reyna. Leikurinn á sunnudag mótaðist mest af mikilli baráttu og sænsku dómararnir, Lundin og Nilsson, áttu fullt í fangi með að halda leiknum innan ramma laganna. Gummersbach náði strax forystu og leiddi lengst af með 2—3 mörkum. í hálfleik var staðan 8—6 Gummersbach í vil. Um miðjan seinni hálfleikinn var staðan orðin 14—10 fyrir Gummers- bach og þannig stóð þar til um 3 mín. voru til leiksloka, að Magdeburg náði að minnka muninn í 3 mörk — 14—11. Þessi úrslit hefðu nægt Gummersbach til sigurs því liðið skoraði fleiri mörk á útivelli. Mikill taugaæsingur var síðustu mmúturnar, en Gummersbach tókst að halda knettinum og skora síðan 15. markið rétt fyrir leikslok. Gífurlegur fögnuður brauzt út á meðal leikmanna Gummersbach svo og áhorf- enda að leikslokum. í annað sinn á einni viku hafði v-þýzkum handknatt- leiksliðum tekizt að leggja að velli a- þýzk lið. Fyrst Grosswallstadt gegn Rostock og nú Gummersbach gegn Magdeburg. Bundeslígan Úrslit í meistarakeppninni réðust um helgina. Grosswallstadt tókst að verja titil sinn frá í fyrra. Eina liðið, sem ógnað gat liðinu var Hofweier, sem hins vegar tapaði í Göppingen 10—16 og þar með fór síðasta vonin um meist- aratitil. Úrslit leikja um helgina urðu þessi: Nettelstedt-Leverkusen 17—23 Gummersbach-Rheinhausen frestað Hlittenberg-Rintheim 23—16 Göppingen-Hofweier 16—10 Milbersthofen-Kiel 14—16 Grosswallstadt-Grambke 21 — 13 Gensungen-Dankersen 14—16 Hvað meistarakeppnina snertir er aðeins spenna varðandi fjórða fall- sætið. Björgvin Björgvinsson og félag- ar töpuðu í Grosswallstadt, en verða að vinna siðasta heimaleik sinn gegn Mil- bertshofen. Grambke, Kiel og Rint- heim berjast öll við fall — eitt þeirra mun falla. Rintheim á eftir útileik i Nettelstedt, en Kiel á Húttenberg heima. Það verður því mikil spenna síðasta leikdaginn. GW Dankersen lék í Gensungen og þó að Gensungen sé fallið var mesta furða hve liðið barðist vel. Greinilegt er, að fallið hefur ekki leitt skipbrot af sér í Gensungen eins og t.d. í Rheinhausen, þar sem flestir leik- mannanna hafa yfirgefið félagið, heldur er unnið markvisst að því að styrkja liðið. Mest kom á óvart sigur Leverkusen í Nettelstedt, 23—17 eru ótrúlegar tölur og eitthvað hafa þeir verið áhugalausir leikmenn Nettelstedt. Heyrzt hefur, að Júgóslavinn Miljak komi og leiki næsta ár í Nettelstedt, einnig að GW Danker- sen leikmaðurinn Waltke styrki liðið. Hvað svo sem til er í þessu verður Nett- elstedt að styrkja sig ef liðið ætlar að hefja sig upp úr meðalmennskunni. Staðan í deildinni er nú þessi: Grosswallstadt Hofweier Gummersbach Göppingen Dankersen Nettelstedt Hiittenberg Milbertshofen Rintheim Kiel Grambke Leverkusen Gensungen Rheinhausen 25 10 4 1 445—357 44 25 19 3 3 470-385 41 24 17 4 3 437—346 38 25 15 1 9 445—410 31 25 13 3 9 443—402 29 25 12 3 10 446—414 27 25 9 5 11 401—409 23 25 10 3 12 400-413 23 25 9 3 13 399-420 21 25 9 2 14 419—441 20 25 8 4 13 395—460 20 25 4 3 18 391—465 11 25 5 1 19 385-461 11 24 4 1 19 3 61-454 9 Kær kveðja. Axel Axelsson ÓlafurH . Jónsson. Forest 58 stig. Everton varð í fjórða sæti með 51 stig. Leeds fimmta með 50 stig. Ipswich náði sjötta sæti — hlaut 49 stig — en siðan komu bikar- meistarar Arsenal í áttunda sæti með 48 stig.___________________ Faldo lék á 65 á St. Andrews Eflir fyrstu umferðina á brezka PGA (samband brezkra atvinnumanna í golfi), sem leikinn var á St. Andrews- golfvellinum fræga á Skotlandi í gær, var Nick Faldo í fyrsta sæti. Náði hreint frábærum árangri. Lék holurnar 18 á 65 höggum og það á einum erfiðasta golfvelli heims. Næstir komu Nick Job og Gordon Brand, Bretlandi, með 68 högg. Andy North, USA, og Garry Cullen, Bretlandi, léku á 69 höggum. Af árangri annarra keppenda má nefna Severino Ballesteros, Spáni, 70, Bob Charles, Nýja-Sjálandi, Simon Owen, Nýja-Sjálandi,71 högg. Björn Borg slasaðist Tveir af beztu tennisleikurum heims, Björn Borg, Svíþjóð, og John McEnroe, Bandaríkjunum, urðu að draga sig í hlé i gær vegna meiðsla á opna þýzka meistaramótinu i tennis, sem nú stendur yfir í Hamborg. Borg var að leika við Eliott Teltscher, USA, þegar hann féll við netiö og slasaðist. Staðan var þá 4—1 fyrir Svíann. Eftir atvikið sagði Borg að hann mundi ekkert taka þátt í keppni fyrr en á Wimbledon, sem hefst eftir mánuð. Þar mun hann reyna að sigra fjórða árið í röð. Þegar McEnroe varð að hætta keppni stóð hann verr gegn Pat Dupre. Þeir voru á ænngu með iandsuoinu isienzka í gær og halda til Bern i fyrramálid. Frá vinstri Sævar Jónsson, Val, Jón Oddsson, KR, Bjarni Sigurðsson, Akranesi, og Ottó Guðmundsson. Þeir hafa ekki leikið i islenzka landsliðinu — Bjami og Ottó hins vegar I islenzkum unglingalandsliðum. DB-mynd Bjarnleifur. Haldið til Bem á morgun „Þetta er ágætt, strákar — látum þetta nægja í bili,” sagði dr. Youri Ilit- chev, landsliðsþjálfari, á æfingu ís- lenzku landsliðsmannanna á Háskóla- velli í gær — en erfitt hefur verið fyrir liðið að fá æfingar á grasi. í fyrramálið halda landsliðsmennirn- ir, fararstjórn, þjálfarar og fréttamenn áleiðis til Sviss en á þriðjudag leika Sviss og ísland Evrópuleik sinn í Bern. Það verður forleikur að leik Argentínu og Sviss á Wankdorfleikvanginum í Bern. íslenzka landsliðið verður þar mjög undir smásjá helztu knattspymu- frömuða heims. Til Sviss verður flogið með stanzi í Kaupmannahöfn. Farið frá Keflavík ATTA UR HM-UÐI H0LLANDS í BERN — Leikmennirnir í Belgíu ekki valdir Átta leikmenn Hollands, sem tóku þátt í úrslitaleik Argentínu og Hollands i heimsmeistarakeppninni í Argentínu, verða í liðinu, sem leikur við Argentínu í Bern á þriðjudag í tilefni af 75 ára af- mæli FIFA, alþjóðaknattspyrnusam- bandsins. Sá leikur verður strax á eftir leik Sviss og íslands í Evrópukeppni landsliða í Bern. Þjálfari hollenzka landsliðsins, Jan Zwartkruis, hefur valið 17 manna landsliðshóp fyrir leikinn á þriðjudag. Þeir átta, sem léku í úrslitaleiknum í Argentínu — Argentína sigraði 3—1 eftir framlengingu — eru Ruud Krol, fyrirliði, Wim Jansen, Ernie Brandts, Rene og Willy van der Kerkhof, Jan Poortvliet, Johnny Rep og Johan Neeskens. Þá valdi landsliðsþjálfarinn einnig Tscheu La Ling frá Ajax en ekki er víst að hann haldi til Sviss. Á við meiðsli að stríða. í leiknum við Argentínu setur Ruud Krol nýtt landsleikjamet hollensks leik- manns — leikur þar sinn 65 landsleik. í hollenzka landsliðshópnum eru þessir leikmenn: Markverðir: Piet Schrijvers, Ajax, og Pim Doesburg, Sparta, Rotterdam. Varnarleikmenn: Ernie Brandts, Jan Poortvliet og Huub Stevens, allir PSV, Ruud Krol, Ajax, Hugo Kovenkamp, AZ ’67 Alkmaar. Framverðir og sóknarmenn: Jan Pet- ers, Cees Kist, Johnny Metgod, allir AZ’67, Willy van der Kerkhof, Rene van der Kerkhof, báðir PSV, Wim Jansen, Enschede, Johnny Rep, Bastia, Johan Neeskens, Barcelona, Jan Peters, Feyenoord og La Ling, Ajax. Jan Zwartkruis, landsliðsþjálfari, valdi því ekki þá leikmenn, sem leika í Belgíu eins og Arie Haan og Robby Rensenbrink, báðir Anderlecht, og veikir það hollenzka liðið nokkuð. Úrslit skozku bikar- keppninnar 28. maí! I gær ákvað skozka knattspyrnusam- bandið, að þriðji úrslitaleikur Hibernian og Rangers skyldi verða síðasti leikurinn á keppnistímabilinu á Skotlandi — verður háður mánudaginn 28. maí. Celtic og Rangers leika í úrvalsdeild- inni næstkomandi mánudag og verður það hinn raunverulcga úrslitaleikur keppninnar um skozka meistaratitilinn. Með sigri tryggir Celtic sér titilinn en hefur vissa möguleika þó jafntefli vcrði. Á miðvikudag mun Rangers leika við Hibernian í úrvalsdcildinni — síðan á föstudag við Partick Thistle og hefur þá lokifl leikjum sínum í úrvalsdeildinni. kl. 8.30 að íslenzkum tíma en ekki komið til Zúrich í Sviss fyrr en kl. 19.10 að íslenzkum tíma. Þá er eftir bílferð til Bern, sem tekur um klukkustund. Jón Pétur, Jönköping, kemur á móts við landsliðshópinn i Kaupmannahöfn — leikmenn íslands á Niðurlöndum, Ásgeir Sigurvinsson, Arnór Guðjohn- sen, Karl Þórðarson og Pétur Péturs- son eru væntanlegir til Bern á sunnu- dagskvöld. Jóh. Eðvaldsson, fyrir- liði íslenzka liðsins, er hins vegar ekki væntanlegur til Bern fyrr en um hádegi á þriðjudag, leikdaginn, og getur því lítið sem ekkert æft með landsliðshópn- Leikurinn i Bern við Sviss hefst kl. 17.15 að íslenzkum tíma og mun Her- mann Gunnarsson, fréttamaður, lýsa síðari hálfleiknum. Einnig er möguleiki á að hann verði með einhverja lýsingu frá síðari leiknum — leik Argentinu og Hollands í tilefni af 75 ára afmæli FiFA. Meðal blaðamanna á leiknum verður Hallur Símonarson frá Dag- blaðinu og mun hann senda daglega fréttir heim af undirbúningnum fyrir leikinn, svo og lýsingu á leikjunum, þegar þar að kemur. HALLUR SÍMONARSON 11UR HM-UÐIARGENTINU Heimsmeistarar Argentinu í knatt- spyrnunni komu til Bcrn i gærkvöld og á þriðjudag munu þeir leika þar við Holland. 17 leikmenn eru í hópnum — sjö, sem léku í úrslitaleiknum á HM við Holland og sigruðu 3—1. Reiknað er með fjórum til viðbótar i dag úr HM- liðinu til Bern. Aðeins Luis Galvan og Omar Larrosa, sem kom inn sem varamaður í úrslitaleiknum fyrir tæpu ári, eru ekki meðal þeirra 13 leikmanna, sem léku við Holland. Þeir fjórir, sem koma í dag eru Osvaldo Ardiles, Tottenham, Alberto Tarantini, Mario Kempes, Valencia, og Daniel Bertoni, sem einnig leikuráSpáni. Aðrir leikmenn, sem tóku þátt i úr- slitum HM, eru komnir til Bern þeir Ubaldo Fillol, Jorge Olguin, Leopold Luque, Daniel Passarella, Americo Gallego, Oscar Ortiz og Rene House- man, sem kom inn sem varamaður Ortiz í úrslitaleiknum. Hector Baley er varamarkvörður, Miguel Ovidio og Daniel Valencia eru einnig í landsliðshópnum og voru í HM-hópnum en aðrir leikmenn eru Juan Barbas, Diego Maradona, Nor- berto Oultes, Enzo Trosssero, Hugo tVillaverde, Jose Reinaldi og Hugo Per- otti. Leikurinn við Holland verður á Wankdorf-leikvanginum i Bern. Hann i! ^rúmar 58 þúsund áhorfendur og reikn- að er með að allir miðar seljist. Knapp farínn að spá í norska landsliðið „Ef ég væri hins vegar spurður um hvort ég vildi þjálfa norska landsliðið næsta ár, mundi ég þakka fyrir. En ég tek fram, að Tor Röste Fossen stendur sig vel sem landsliðsþjálfari svo það er ólíklegt að slikt tilboð eigi sér stafl,” segir Tony Knapp, fyrrum landsliðs- þjálfari íslands í knattspyrnunni, ný- lega í viðtali við norska Dagblaðið. í greininni segir ennfremur að eitt ár sé eftir af samningi Tony Knapp við Víking í Stafangri og hvort sá samning- ur verður framlengdur er ekki vitað um. Hins vegar hefur Knapp ekkert á móti því að sögn blaðsins. „Það er ánægjulegt að vera í efsta sæti i 1. deildinni — í fyrra vorum við í þriðja sæti mest allt keppnistimabilið. Efsta sætið eykur sjálfstraust okkar — hefur örvandi áhrif á okkur,” segir Knapp i viðtalinu við Dagblaðið og blaðið segir: Víking er í efsta sæti og spurningin hvort liðið sé á leiðinni með að verða forustulið í norskri knatt- spyrnu eins og það var fyrir nokkrum árum. Knapp hefur hug á þvi að gera Víking að miklu veldi. „Ég held að það sé alls ekki útilokað að gera Víking að klassaliði eins og til dæmis Malmö FF í Sviþjóð. Allt er til staðar til þess. Fjármál knattspyrnufé- laganna hafa batnað mjög í Noregi og áhorfendafjöldinn er raunverulega meiri en i Svíþjóð. Það sem ég þarf eru fimm góðir leikmenn, sem geta styrkt liðið. Á einu sviði er hægt að bæta norska knattspyrnu — samvinna fé- lagsstjórna og þjálfara verður að vera betri,” segir Knapp. Hver er geta norsku liðanna, það sem af er keppnistímabilinu? spyr blaðið. „Vegna hins óvenju harða vetrar eru liðin ekki eins vel undirbúin nú og á sama tíma í fyrra. Þá er samanburður á völlunum mjög slæmur. Áhorfendur og blaðamenn geta ekki búizt við stór- leikjum við núverandi aðstæður. En með heitara veðri og þurrari völlum mun knattspyrnan lagast mjög,” segir Tony Knapp og segir að lokum að hann verði ánægður ef Víkingur nái fimm stigum af sex mögulegum gegn Valer- engen, Brann og Lilleström „jafnvel mundi ég ekki vera óánægður þó þau yrðu ekki nema þrjú eða fjögur”, sagði Tony að lokum og því má bæta við, að Víkingur gerði jafntefli við Valerengen i Osló og vann Brann i Stafangri þannig, að liðið hefur þegar fengið þrjú stig úr feikjunum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.