Dagblaðið - 14.06.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1979
9
Snorri Jónsson forseti ASÍ:
Ekkiteknar
ákvarðanir
um ákveðnar
aðgerðir
Það hafa ekki verið teknar neinar
ákvarðanir um ákveðnar aðgerðir af
hálfu ASÍ til þess að bregðast við
verkbanni VSÍ,” sagði Snorri Jóns-
son forseti ASÍ í viðtali við DB i
gær. í ályktun miðstjórnar ASÍ á
þriðjudag er skorað á félagsmenn
ASÍ að fylgjast vel með og vera
viðbúnir að rísa til „varnar og
sóknar” gegn ósvífnum hótunum
VSÍ.
„Ef til verkbanns kemur verður
brugðizt við því samkvæmt aðstæð-
um,” sagði Snorri. Þetta er i fyrsta
skipti sem VSÍ beitir svo víðtæku
verkbanni og það á þau félög sem
ekki eiga í neinum deilum við VSÍ.
Verkbannsboðun þessi er einsdæmi
og á ekkert skylt við samúðarverkföll
verkalýðsfélaga gegn þeim atvinnu-
rekendum sem þau hafa átt í deilu
við.” -JH.
VERKBANNI
MÓTMÆLT
Fyrirhuguð verkbannsboðun VSÍ
kemur til framkvæmda á mánudag,
verði ekki gripið til annarra aðgerða
fyrir þann tíma. Verkaiýðsfélög hafa
mótmælt þessu fyrirhugaða verk-
banni harðlega og m.a. í ályktun
miðstjórnar Málm- og skipasmíða-
sambands íslands er verkbannið
fordæmt.
Miðstjórnin vekur athygli á því að
verkbanninu virðist fyrst og fremst
stefnt gegn launafólki innan ASÍ.
Fagnað er afstöðu samvinnu-
hreyfingarinnar og skorað á rikis- og
bæjarfyrirtæki að endurskoða
afstöðu sína til bannsins og aðildar
aðVSÍ.
Verkakvennafélagið Framsókn
mótmælir þessum vinnubrögðum
harðlega, þar sem svipa vinnuveit-
enda níðist á þeim þegnum sem lægst
laun hafa og mesta biðlund hafa
sýnt. Verkbann sé sett á vinnandi
hendur til þess að knýja fram alls
óskyld mál við þriðja aðila, þ.e. ríkis-
valdið. -JH.
Farmannaverkfallið hefur verið tilefni margra funda undanfarnar vikur. Fiestir hafa verið árangurslitlir. Hér koma
fulltrúar VSÍ, Kristján Ragnarsson, Páll Sigurjónsson, Davíð Sch. Thorsteinsson og Þorsteinn Pálsson, af fundi
forsætisráðherra síðdegis i gær.
DB-mynd: Hörður.
Bílaumboðin reyna nýjar leiðir:
TÓLF NÝIR SAAB-BÍLAR
FLUTTIRINN MEÐ SMYRU
— kom til tals að flyt ja Volvo inn með sama hætti en ekkert varð af þvf
Hið nýja Saab-umboð, Töggur
hf., hefur brugðið á það ráð að flytja
inn 12 Saab bíla með Færeyjaferj-
unni Smyrli, vegna farmannaverk-
fallsins.
Samkvæmt upplýsingum Ingvars
Sveinssonar koma bilarnir til Seyðis-
fjarðar um næstu helgi. Þeir voru
fluttir á vagni frá Svíþjóð til Bergen,
þar sem þeir voru settir um borð í
Smyril.
Flestir bílarnir eru seldir og eru
eigendur bílanna tilbúnir að ná í þá
sjálfir á Seyðisfjörð þegar gengið
hefur verið frá öllum pappírum,
skráningu o.fl. Komið hefur til tals
að selja þá bila sem enn eru óseldir á
Austfjörðum.
Ingvar sagði að gert væri ráð fyrir
því að flutningskostnaður vegna
þessara bíla væri svipaður og venju-
legur flutningur. Fraktin með Smyrli
væri ódýrari, en á ntóti kæmi
flutningskostnaður frá Svíþjóð til
Bergen.
„Með þessu erum við að vinna
tíma,” sagði Ingvar „Þótt við náum
engum bíl út fyrir hugsanlegt verk-
bann þá vinnum við samt tíma í hinu
hraða gengissigi, því það tekur sinn
tíma að fá bíla eftir að farmanna-
verkfallið leysist.”
Gunnar Ásgeirsson sagði að
athugaður hefði verið sá möguleiki
að flytja inn Volvobíla með Smyrli en
ekkert hefði þó orðið af því. Ekki
hefði verið pláss i fyrstu ferð og því
hefði þessi möguleiki ekki verið hug-
leiddur frekar.
Gunnar sagði að nú þegar biðu á
annað hundrað Volvobílar í Gauta-
borg sem hefðu verið seldir.
-JH'.
Stúdentabréfahnrfurinn úr sitfri
Magnús E. Baldvinsson sf.,
Laugavegi 8 — Sími 22804.
Skóbúðin Suðurveri
Stígahlíð 45-47 - Sími83225.
Sumar
79
SENDUM
íPÓSTKRÚFU
Sundbolir
Strand-
kjólar
og
frá
Jer Sea
LAUGAVEGI81
SÍMI21444
VALLARTORGI
SiMI 24411
Bikini