Dagblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979. 7 N Alþýðutónlistarmenn stofna samtök: Mál að við sitjum við sama borð og aðrir listamenn hér — „hrun blasirvið” íinnlendri hljómplötugerð „Stærstur hluti tónlistarneyzlu al- mennings í dag er alþýðutónlist en hún hefur um árabil verið flokkuð sem óæðri tónlist af mörgum þeim sem ráða og rikja í tónlistarmálum landsmanna. Hefur lengi verið skoðun alþýðu- tónlistarmanna að mál væri að linnti, starf þeirra metið að verðleikum og þeir fái setið við sama borð og aðrir er að tónsköpun og tónlistarflutningi starfa.” Svo segir m.a. i ályktun sem sam- þykkt vará fjölmennum (rúmlega40) fundi ungra tónlistarmanna (popp- tónlistarmanna) í Reykjavík nýlega. Á fundinum voru stofnuð Samtök al- þýðutónskálda og tónlistarmanna, SATT, og verður framhaldsstofn- fundur haldinn fljótlega. í yfirlýsingu frá samtökunum segir að aðstaða alþýðutónlistarmanna til að stunda listgrein sína hafi verið lé- leg og þeir settir skör lægra en flestir aðrir listamenn i landinu. Vegna þess telji alþýðutónlistarmenn nú nauð- synlegt að stofna með sér samtök þótt þeir séu nú þegar í stéttarfélagi íslenzkrahljómlistarmanna, FÍH. í ályktuninni, sem samþykkt var í fundarlok, segir síðan: „Alþýðutón- listarmenn bera að mestu uppi tvær greinar tónlistarneyzlu landsmanna, þ.e. flutning lifandi tónlistar á skemmtunum og dansleikjum, og svo hljómplötugerð. Lifandi tónlistar- flutningur hefur lengi átt í vök að verjast. Kemur þar til mikil skatt- lagning nkisins á sjálfstætt dans- leikja- og tónleikahald sem nemur nú tæplega 50% af miðaverði. Aðrir listamenn njóta hins vegar ýmissa fríðinda að þessu leyti. Afleiðing þessa er meðal annars sú að danshúsaeigendur treystast ekki lengur til að hafa á boðstólum lifandi tónlist heldur notast við svonefnd diskótek í sívaxandi mæli. Þá þurfa tónlistarmenn að greiða lúxustoll af atvinnutækjum sínum. Hljómplötugerð er ung starfsgrein hér á landi og hefur stökkbreyting orðið i þróun hennar með tilkomu inniendra hljóðvera. Þessi nýja starfsgrein hefur starfað við erfið skilyrði, m.a. vegna afstöðu ríkisvalds og afskiptaleysis ríkisfjöl- miðla. Er nú svo komið að hrun blasir við verði ekki að gert. Hlutur alþýðutónskálda er með eindæmum lakur þar sem þau hafa frá upphafi verið svipt stærstum hluta tekna sinna af höfunda- og flutningsrétti (svonefndum STEF- gjöldum). Meginhluti tekna STEFs er sprottinn af verkum alþýðutónskálda sem ekki nema að smávægilegu leyti njóta þeirra, enda eru alþýðutón- skáld nánast réttindalaus í STEFi.” Mikill einhugur var ríkjandi á fundinum og voru þar skipaðir fjórir fimm manna starfshópar. -ÓV „Nú bíð ég bara eftir aö þeir vitkist fyrir sunnan,” segir Magni og sleppir framtóginu úr Bjarna Olafssyni AK, sem hann var meö um tíma í sumar. DB-mynd við Neskaupstaðarhöfn: Arni Páll. Magna Krístjánssyni neitað um skipakaupaleyf i: Fæ enga skýringu á neituninni — ætlaði að gera tilraun til að veiða bræðsluf isk til manneldis „Við vorunt búnir að semja um kaupin í desember sl. og hefðum getað fengið skipið upp úr áramótunum, en að vísu áttum við ekkert skip til að selja út i staðinn, eins og það er kallað,” sagði Magni Kristjánsson, aflaskip- stjóri á Neskaupstað, i viðtali við DB, um borð í nótaskipinu Bjarna Ólafs- syni, sem hann stjórnaði um tima í sumar. Magni, ásamt nokkrum tleiri aðilum, fyrirhugaði að kaupa 400 tonna togveiðiskip til veiða á svonefndum bræðslufiski. Skipið cr liðlega 2 ára, smíðað í Þýzkalandi, nreð hóflegri vél og eyðir því litlu, að sögn Magna. „Við ætluðum að l'ara inn á nýjar brautir og einbeita okkur að vciðum á Nýttbúvöruverð: Mjólkur- lítrínn í254 kr Eitt kíló af smjöri hækkar um 690 kr. samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar í gær og mun kosta á mánudaginn kr. 1810 i smásölu. Mjólkurlítrinn hækkar úr 200 í 254 kr. Kíló af súpukjöti hækkar úr kr. 1408 i 1806, svo nefnd séu dæmi. Niðurgreiðslur búvara verða ekki auknar og lækka hlutfallslega vegna verð- hækkana. -ARH. ■sandsili, kolmunna og loðnu. I áætlun- uni nkkar reik'uun við ekki með nema 30">'ársa''lans >l loðnu -,vo varla hefðu kaupin þýtt mikla viðbót við loðnuveiðiflotann. í stað þess að veiða kolntunna i bræðslu og fá þannig lægsta mögulega afurðaverð, ætluðum við að veiða hann til manneldis. Það þýðir allt aðra ntcðhöndlun unt borð, sem ég álit að ekki henti á stóru bátunum enn sent komið er. Þrátt fyrir lélega komunnavcrtíð í suntar hef ég samt trú á kolmunnanunt í framtiðinni, við þekkjum að veiðar á öðrum tegundum geta brugðizt tínta- bundið. Þá tel ég einnig sannað að unnt sé að stunda kolmunnavciðarnar með mun minni vélarorku, en flestir vilja Kjósarréttá þriðjudaginii —öðrum réttum í nágrenni Reykjavíkur frestað Nokkrum réttum i nágrenni Reykjavíkur hefur verið frestað um eina viku frá því sem skýrt var frá í blaðinu í gær. Ástæðan er sú að i vor fór fé i seinna lagi á fjall og úthagi er enn góður hér í nágrenninu. Kjósarrétt verður samt haldin á þriftjudaginn kemur, eins og áður var sa^t. Hafravatnsrétt verður mánu- daginn 24. sept. og réttað verður i Kollafjarðarrétt miðvikudaginn 26. september. í Fossvallarétt fyrir ofan Lögberg verður réttað sunnudaginn . 23. september. Þann dag verður einnig réttað í Kaldárrétt fyrir ofan Hafnar- fjörð. Fyrstu réttir voru í Tungnarétt eins og DB skýrði frá i gær. Síðastliðinn fimmtudag var réttað í Hrunamanna- rétt, Skaftholtsrétt og Tjarnarrétt. í gær voru Hraunsréttir, Skeiðaréttir, Valdarásréttir og Miðfjarðarréttir sem einnig verða í dag. BS. Bfll alelda á örskotsstund Eldur kom upp í gömlum Volkswagen bil á miðvikudaginn er hann var rétt kominn yfir Þjórsárbrú á austurleið. Magnaðist eldurinn, sem kom upp i vélarhúsinu, með ótrúlegum hraða og varð bill- inn alelda á örskammri stund. Einn maður var i bilnum og réð hann ekki við neitt, varð bara aö horfa á bílinn brenna. Maðurinn meiddist ekki. Bíliinn er talinn gerónýt- ur eftir. - ASt. Dagblaðsbíó á morgun i dagblaðsbíói á morgun verður sýnd um kappakstur og verður sýnd í Hafn- myndin Ungir fullhugar. Hún fjallar arbíói kl. þrjú. ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ Vetrarstatfið hafið BLÓMARÓSIR SUNNUDAG KL. 20.30 ÞRIÐJUDAG KL. 20.30 Miöasala daglega í Lindarbœ kl. 17— 19, sýningardaga frá kl. 17—20. Sími 21971. halda fram nú. Þá hefði þetta tiltekna skip cinnig hentað til djúprækju- veiða.” 1 Ijósi þessarar nýju veiðitilhögunar taldi Magni eðlilegt að leyfi fengist til kaupanna. En um svipað leyti og Júlíus Geirmundsson eldri (skuttogarinn) var seldur frá ísafirði til Suðurnesja og nýr keyptur að utan til ísafjarðar, var Magna neitað. Hefur hann ítrekað larið skriflega frant á skýringu á neituninni, en ráðuncytið hefur ekki svarað þvi. „Nú bið ég bara eftir að þeir vitkist fvrir sunnan þvi ég er ekki búinn að gel'a hugmyndina upp á bátinn,” sagði Magni að lokum. -GS. Fjölbreyu SlMI I MÍMI ER og skemmtilegt tungumálanám. 10004 BADMINTON - BADMINTON Enn er örfáaum tímum óráðstafað í Fellaskóla. Uppl. í síma 71335 eftir kl. 6. LEIKIMIR Þýzkukennsla fyrir börn 7—13 ára hefst laugardaginn 22. sept. 1979 í Hliðaskóla kl. 10—12 (Inngangur frá Hamrahlíð). — Innritað verður sama dag frá kl. 10. Innritunargjald er 3.000 kr. Bókasafn þýzka sendikennarans. (þróttakennara vantar við Grunnskóla Hellissands, góð kennslu- aðstaða. Uppl. gefnar hjá skólastjóra í síma 93—6682 og hjá formanni skólanefndar í síma 93—6605.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.