Dagblaðið - 03.01.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 03.01.1980, Blaðsíða 13
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. JANÚAP 1980. 13 I Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir D Nú er það alvaran! — landsliðið fær eldskím sína í kvöld gegn Pólverjum í kvöld tekur alvaran vifl hjá íslenzka landsliðinu í handknattleik er þafl mætir Pólverjum í fyrsta leiknum af þremur fyrirhuguðum á milli þjóðanna nú í vikunni. Pólska liðið, sem kom til landsins í gær, er skipað geysilega leik- reyndum mönnum. I.ætur nærri að leikmenn liðsins hafi flestir hverjir leikið saman á milli3S og 40landsleiki á einu ári. Forráðamönnum pólska liðsins fannst það þó í allra minnsta lagi. Þeir hefðu helzl þurft nokkra leiki til viðbótar til að vera búnir að fín- pússa leikkerfin. Slík ummæli leiða hugann að þvi hversu óraunhæfar kröfur eru gerðar til landsliðsmanna okkar. Hið nýja lið Jóhanns Inga, landsliðsþjálfara, hefur aðeins fengið nokkra æfingaleiki. Þó leiknir hafi verið landsleikir við Islendingamir komu á óvart — í keppni við danska badmintonfólkið Kins og flestum badmintonunnend- um er kunnugt dvöldust hér á milti jóla og nýárs nokkrir danskir badminton- menn og léku hér á móti á vegum TBR auk þess sem þeir léku sýningarleiki. I hópnum var m.a. einn af 10 bezlu badmintonmönnum heims, Jesper Helledie. Dagblaðinu hafa nú borizt úrslit úr mótinu, sem TBR hélt í þessu tilcfni og verður það að segjast að frammistaða íslenska badminton- fólksins kom mjög á óvart. Jóhann Kjartansson náði að leggja Danann Ken H. Nielssen að velli 10— 15, 15—9 og 15 — II í hörkuleik í einliðaleik karla. Jóhann tapaði síðan fyrir Jan Hansen — einnig eftir hörku- leik, 15—6, 10—15 og 6—15. Jesper Helledie vann einliðaleikinn er hann sigraði Jan Hansen 15—10 og 15—6 i úrslitum. Kristin Magnúsdóttir lagði Lilly Petersen að velli í einliðaleik kvenna, 11—9 og 11—2. Kristín tapaði svo fyrir Liselolte Hansen í úrslitunum, 3—II og 9—11. Þeir félagar Jóhann Kjartansson og Broddi Kristjánsson unnu Mogens Nolsöe og Kenn Nielsen 4—15, 15—12' og 15—11 i tviliðáleik áður en þeir löpuðu 8—15 og 7—15 fyrir Jesper Helledie og Jan Hansen í úrslitunum. j tviliðaleik kvenna töpuðu þær nöfnur Kristín Magnúsdóttir og Kristjánsdóttir fyrir Liselotte Hansen og Lilly Petersen 2—15 og 6—15 í úrslitum. Loks var keppt í tvenndarleik og þar höfðu Danirnir talsverða yfir- burði. Svo fór að Ken og Liseiotte unnu Jan og Lilly 15—12, 11 — 15 og 15—6. Heimsóknin var ákaflega vel heppnuð að öllu leyti og kærkomin fyrir íslenzkl badmintonfólk. Bandaríkjamenn er ekki hægt að flokka þá undir annað en æfingaleiki. Það jafnvel þótt þeir hafi verið í stöðugri framförsíðan 1970. Sigurður Sverrisson Dagblaðinu tókst ekki að ná tali af Jóhanni Inga í gærkvöldi þrátt fyrir itrekaðar tilraunir og var þvi ekki hægt að grennslast fyrir um skipan liðsins í kvöld. Leikurinn við Pólverja hefst kl. 20.30 í Höllinni í kvöld en á undan leikur unglingalandsliðið forleik við ÍR. Forsala aðgöngumiða á leikinn í kvöld hefst kl. 17.30. Það er ákaflega mikilvægt fyrir hið unga og óreynda landslið að fá góðan stuðning áhorfenda í kvöld. Þetta er frumraun liðsins og mikilvægt er að vel takist til fyrir Baltic-keppnina, sem hefst í Þýzkalandi á þriðjudag í næstu viku. |lesper Helledie var milli jóla og nýárs. tvimælalausl sterkasti einstaklingurinn á TBR mótinu á Reykjavikurmeistarar Fram i innanhússknattspyrnu. DB-mynd RagnarTh. Sig. Fram burstaði Val Framarar gerðu sér lítið fyrir á Reykja- vikiirmeistaramótinu i innanhússknatt- spyrnu og rufu sigurgöngu Valsmanna i þess- ari íþrótt. Og það var sannarlega sigur sem um munaði. Fram sigraði 9—4 eflir að staðan hafði verið 5—3 i hálfleik þeim í hag. Valsmenn áttu aldrei neitt svar við mjög örtiggum leik Framara og til að bæla gráu ofan á svart hjá Val virtisl leikmönnum fyrir- munað að hilta Fram-markið langlimum saman. Ofan á alll saman bættisl svii skapillska ng svo virðist sem Valsmenn eigi enn erfill með að sælla sig við ósigur — þóll í innanhússknattspyrnu sé. Mjög skeniniiileg keppni var.i riðlununi í gær og voru fjögur lið í hvorum. í A- riðlinum slóð barállan á niilli Fram ogKR og höfðu Framarar belur. L.eikir fóru þannig: KR-Þróltur 5—I KR-Fylkir 4—2 KR-Frant 4—5 Fylkir-Fram 5—9 Þróltur-Fram 4—6 Fylkir-Þróllur 5—5 j B-riðlinum var einnig hörð keppni á milli Víkings og Vals. Þráu lyrir að Víkingarnir virkuðu ofi á tíðuni ósann- færandi i leik sinum var með ólíkindum hvað liðið komsi áfram á seiglunni. l.eikir i B-riðlinum fóru þannig: Valur-Ármann Valur-l.eiknir Valur-Vik. Vik ,-l.eiknir Vík.-Árntann Ármann-I.eiknir 10—2 12—4 6—5 10—3 6—4 6—4. Það kom þvi í hlul KR og Víkings að leika um þriðja sætið i mótinu. Þrátl fyrir að KR- ingar virkuðu allan tíniann sterkari aðilinn mátlu þeir samt sælta sig við tap. Jafnl var að venjulegum leiktima loknum, 7—7, en i framlengingunni skoruðu Víkingarnir 3 mörk gegn I KR-inga. Í þessum leik vakti mesta athygli stórkostleg knatttækni Sæbjarnar Guðmundssonar í KR. Hann skoraði 5 af 8 mörkum KR og lagði hin 3 algerlega upp. Hjá Vikingi gegndi Lárus Guðmundsson svipuðu hlutverki en féll þó óneilanlega í skugga Sæbjarnar. Mörk Víkings. Lárus 2, Aðalsteinn 2, Jóhannes 2,' Heintir 2, Helgi 1 og Stefán Örn sjálfsmark. Mörk KR. Sæbjörn 5, Elías, Ágúst og Guðjón 1 hver. Úrslilaleikurinn á milli Vals og Frant var aðeins skemmtilegur á að horfa í fyrri hálf- leiknum. Síðan urðu yfirburðir Framara algerir. Baldvin Elíasson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Fram en Atli Eðvaldsson svaraði tvivegis fyrir Val á hálfri mínútu. Framarar lokuðu þá vörninni algerlega og skoruðu næstu fjögur mörk. Grímur læddi einu frá Val inn á milli áður en Framarar gerðu fjögur til viðbótar. Marleinn Geirsson varði meira að segja víti Inga Björns. Framarar voru vel að sigrinum komnir og léku jafnbest i gærkvöld. Áhorfendur voru heilmargir og létu óspart í sér heyra. Mörk Fram: Baldvin -3, Pétur 3, Guðmundur 2, Rafn L Mörk Vals: Atli 2, Grímur og Ingi Björn I hvor. Mark lnga úr viti. -SSv. HVAD ERTIL BÓTA HJA SKÍÐASAMBANDINU? — Sæmundur Óskarsson, formaður Skíðasambands íslands, svarar Halldórð Matthíassyni Haukur Sigurðsson, einn fimm göngu- manna i landsliðshópnum. Að undanförnu hafa komið fram nokkrar óánægjuraddir, þar sem deilt hefur verið á stjórn Skíðasambandsins eða formann þess, og í áramótaspjalli iþróttafréttaritara í hljóðvarpi kom fram sú skoðun tveggja þeirra, að eitthvað væri í ólagi hjá Skíflasambandinu, sem kippa þyrfli í liðinn. í gegnum sumar þessara ádeilna má greina persónulega hagsmuni gagnrýn- endanna og oft hefur gætt mikilla rang- færslna. Þessum ádeilum hefur stjórn Skíðasambandsins svarað jafnóðum. Ein slík ádeilugrein birtist í Dagblaðinu nú rétt fyrir hátíðarnar eftir Halldór Matthíasson. Halldór gagnrýnir framkvæmd æf- ingaáætlunar skiðagöngulandsliðsins, aðallega það að samæfingar liðsins i ágúst og september hafi fallið niður. Það er rétt, að liðið kom ekki allt saman til æfinga á þessu tímabili. Staðreynd þessa máls er hins vegar sú, að í landsliði full- orðinna í skíðagöngu eru fimm menn, þar af fjórir Ólafsfirðingar og einn ís- firðingur. Ólafsfirðingarnir fjórir fóru á margar æfingar saman með þjálfara sín- um og jafnframt landsliðsins, Birni Þór Ólafssyni, á nefndu tímabili, en ís- firðingurinn, Einar Ólafsson, sá sér ekki fært að æfa með liðinu vegna anna við knattspyrnuiðkanir, m.a. með unglinga- landsliðinu í knattspyrnu. Einar hefur hins vegar tjáð Birni Þór, að hann hafi stundað þjálfunaráætlún sína í skíða- göngu af kappi jafnframt knattspyrn- unni. Einar mætti til samæfingar liðsins í Svíþjóð í desember sl. og dvelur nú sem stendur við æfingar í Noregi. Halldór gagnrýnir einnig lítinn fjár- hagslegan stuðning Skíðasambandsins við landsliðsmenn og það hafa fleiri gert. Þvi er til að svara að fjárhagsleg geta sambandsins er ekki meiri og hefur sumum ábyrgum forystumönnum skíða- hreyfingarinnar jafnvel þótt full langt gengið í þessum efnum. Halldór varpar fram sparnaðartillögu og er ekki nema gott eitt um það að segja, ef hún ætti fylgi meðal landsliðsmanna og forsvars- manna þeirra í héruðum, en svo er ekki. Stjórn Skíðasambandsins mun því reyna að framfylgja þeirri áætlun um æfingar og keppnisferðir landsliðanna, sem gerð var i haust og samþykkt af haustþingi sambandsins á ísafirði 27. okt. sl. Undirrituðum kemur það á óvart, að Halldór skuli opinberlega vekja máls á vali sínu í landslið og brottvikningu sinni. úr því. Hann ræðir einnig um það að ég ráðskist með skíðamenn eins og eigin skákmenn. Um þessi atriði er aðeins það' að segja, að Halldór var valinn í lands- liðið vorið 1978, sem einn af beztu skíðá- göngumönnum landsins á þeint tíma. Hann færðist samt fljótlega undan þátl- töku í landsliði, en vildi verða þjálfari liðsins. Stjórn Skiðasambandsins tók þeirri málaleitan hans vel og kannaði undirtektir í héruðum. Það kom hins vegar í Ijós að Halldór átti ekki fylgi í þá stöðu meðal landsliðsmanna og forsvars- manna þeirra í héruðum. Björn Þór Ólafsson frá Ólafsfirði varð síðan við til- mælum stjórnar sambandsins að taka að sér þjálfun göngulandsliðsins með aðstoð Svians Kurt Ekroos, sem áður hafði starfað að þjálfunarmálum ísfirzkra göngumanna. Halldóri var tilkynnt unt þessar niðurstöður og ákvað hann þá að gefa kost á sér í landsliðið. Hann hefur þó engan veginn verið sáttur við gang mála, því hann tók að leika undarlegan leik — hann má kalla það skák og mig eða Skíðasambandið mótherjann, ef hann vill — sem leiddi til þess, að stjóm Skíðasantbandsins sá sér ekki annað fært en að víkja honum úr landsliðinu. Það þarf vart að taka það fram, að til slíkrar ákvörðunar hlutu að liggja veigamiklar ástæður. Hverjar þær raunverulega voru vil ég heldur láta liggja milli hluta, en aðeins upplýsa að þær snertu á engan hátt mig persónulega né aðra stjórnar- menn, en aðeins einstaklega furðulega framkvæmd Halldórs sjálfs á æfinga- áætlun þeirri, sem landsliðið fékk til að vinnaeftir. í upphafi máls míns gat ég þess, að í áramótaspjalli íþróttafréttarilara i hljóð- varpi hafi komið fram sú skoðun tveggja þeirra, að eitthvað væri í ólagi hjá Skiða- sambandinu, sem kippa þyrfli í liðinn. Eitthvað hljóti að vera að, þegar skíða- forkólfar eins og Björn Þór Ólafsson og Halldór Matthiasson vilji ekki koma ná- lægt málefnum Skíðasambandsins. Hér draga íþróttafréttaritararnir sínar álykt- anir af grein Halldórs Matthíassonar, sem unt er rætt hér að framan, og viðtali við Björn Þór Ólafsson, sem birtist í Visi 28. nóv. sl., sem ekki hefur verið svarað, enda voru þar engar missagnir sem kröfðust svara frá stjórn Skíðasam- bandsins. Við erum sammála Birni Þór, að fjárhagslegur stuðningur sambandsins við landsliðsntenn þyrfti að vera mun meiri. Skíðasambandið styrkir aðeins einn göngumann að fullu oggreiðir þjálf- ara- og bifreiðakostnað hinna á æfingum og í keppnisferðum. Eins og áður hefur komið fram eru 4 af 5 landsliðsmönnum í skíðagöngu Ólafsftrðingar, þar á meðal sá eini, Haukur Sigurðsson, sem sanr- bandið greiðir allan kostnað fyrir. Það leggst því þungt á skíðamennina sjálfa og Ólafsfirðinga að standa straum af kosto- aði hinna þriggja. í þessu efni^er þó engum mismunað, þar sem aðrir lands- liðshópar sitja við sama borð. Fjárhags- geta Skíðasambandsins er einfaldlega ekki meiri og öllum hlutaðeigandi hefur verið það Ijóst frá því að liðin voru skipuð í sumar, hvernig fyrirhugað væri að standa að fjármögnun þeirra og það samþykkt á haustþingi sambandsins. Það skal tekið fram í tilefni af nefndu viðtali við Björn Þór Ólafsson í Visi, að sljórn Skíðasambandsins hefur ávallt metið störf hans i þágu þess og landsliðs- ins mjög mikils og sýnt það i verki með því að bjóða honum að fara sem þjálfari skiðagönguliðsins á ólympíuleikana í Lake Placid í febrúar nk. Björn Þór hefur hins vegar tekið þá afstöðu að réttara sé að Kurt Ekroos fari með liðinu á ólympiuleikana, þar sem Kurt sé að hans áliti aðalþjálfari liðsins og undir- strikað það með því að segja af sér sent landsliðsþjálfari. Það segif sig hins vegar sjálft að þegar til framtíðarinnar er litið er óviðunandi annað en að aðalþjálfari skíðagöngulandsliðsins sé búsettur hér- lendis og til þess er enginn hæfari en Björn Þór Ólafsson. Ég er þess fullviss, að hann tekur áskorun skíðaforystunnar unt að taka þetta verkefni að sér á ný, næst þegar á það reynir. Það má hins vegar vel koma fram hér, að Kurt Ekroos hefur reynzt íslenzkum skíðagöngumönnum einstaklega vel og hvilir nú á honum þungi þess verkefnis að búa íslenzka landsliðið i skíðagöngu undir átök vetrarins, þar sem ólympiu- leikana í Lake Placid í Bandaríkjunum ber hæsl. Sæmundur Óskarsson, formaður Skíðasambands íslands. og svara Um áramótin fór fram Reykjavíkur- mótið í knattspyrnu hjá yngri flokkunum. Eins og við mátti búast var geysihörð og skemmtileg keppni og mátti oft vart á rnilli sjá hvaða lið væri bezt. Framarar urðu Reykjavíkur- meistarar í 2. flokki er þeir sigruðu Víking 5—1 í úrslitaleiknum. Valsmenn hirtu 3. sætið með 4—2 stigi yfir Víkingi. í 3. flokknum báru Valsmenn sigur úr býtum er þeir sigruðu Víking 3—2 í úrslitaleiknum. ÍR varð i 3. sæti eftir 4—3 sigur á KR. Fjórða flokkinn unnu Framarar örugglega og þeir sigruðu KR 4—1 í úr- ?. ian. 1980 n Jm Félagar í Félagi húsgagna- og innanhússarkitekta skrifa JYR bATTIIR I UllílllUiyi i iri________ X_______UJLaa \erÁ kr. 1201) Framstrákar sterkir — í yngrí flokkunum í innanhússmótinu slitaleiknum. Leiknir hlaut þriðja sælið með 5—3 sigri yfir Valsmönnum. Leiknisstrákarnir komu mjög á óvart og unnu l.d. ÍR 8—2 í sínum riðli. Leiknir vann síðan 5. flokkinn með 5—2 sigri yfir Fram í úrslitaleiknum. KR nældi sér í 3. sætið með 5—3 sigri yfir Víkingi. Billy Caskey, sem lék hér á Kópa- vogsvellinum með Glentoran gegn IBV haustið 1978, er nú kominn til banda- ríska félagsins Tulsa Roughnecks eflir um árs dvöl hjá Derby. Kaupverð Caskey var um 75.000 pund. Emlyn Hughes er hér í ensku landsliðs- peysunni. Emlyn Hughes, haiáitujálkurinn eitilharði, var á nýársdag sæmdur CBE orðunni af Brciadroltningu fyrir störf sín í þágu knattspyrnunnar. Orðuveiting þessi kemur varla nokkrum aðdáanda Hughes á óvart þar sem hann hefur í rúman áratug verið einn litríkasti knattspyrnumaður Englands, margfaldur landsliðsmaður og ósjaldan fyrirliði þess.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.