Dagblaðið - 12.01.1980, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 12.01.1980, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980. 2 Að gera hreint fyrír sínum dyrum: Svellbunkar hættu- legastir öMruðum Þó nokkur ófærð hefur verið á götum borgarinnar nú undanfarið og klakahellur myndazt fyrir framan verzlanir í bænum, svellbungur heitir það víst. Þessar klakahellur eru gang- andi fólki mjög hættulegar svo ekki sé meira sagt, en mikill misbrestur er á þvi, að gangstéttir fyrir framan verzlanir séu hreinsaðar sem skyldi. Þó eru hér nokkrar undantekningar, og þökk sé þeim er vel gera. Á útitröppum húsa vantar oft handrið fyrir neðstu 3, 4, 5 tröppurn- ar og þegar tröppurnar eru auk þess illa hreinsaðar sjá allir hver háski er hér á ferðinni. Einnig vantar oft handrið fyrir sömu tölu trappa innanhúss, og er svo að sjá að álitið sé að engin hætta sé fyrir fólk ef tröppurnar eru fáar. í einni verzlun hér í bæ fer hluti afgreiðslunnar fram í kjallara, og liggur þangað stigi með tuttugu tröppum eða svo, auk þess í boga, en í þessum stiga er ekkert handrið. Svona mætti lengi telja. í Fossvogskapellunni var um langt árabil ekkert handrið á tröppunum við innganginn, en nú hefur þessu verið kippt I lag, til mikilla bóta fyrir þá er fylgja látnum til grafar sem oft er aldrað fólk, auk þess sem oft er anzi stormasamt við tröppurnar í SA átt. Við innganginn upp tröppurnar á Lágafellskirkju t.d. vantar illilega slikt handrið og vafalaust í ótal fleiri byggingar, opinberar og aðrar. íslendingum hefur fjölgað mikið síðastliðin 50 ár eða svo; þeim hefur því miður einnig fjölgað sem á einn eða annan máta eru fatlaðir, og meðalaldur manna hefur færzt mikið til. Því er nauðsynlegt að reikna með þessu fólki í hönnun ýmissa mann- virkja til almenningsnota, en ekki bara með stöðluðum fólkseiningum. Mér datt þetta (svona) í hug. Siggi flug, 7877-8083. Siggi flug talar um að svellbunkar fyrir framan hús sem illa er hreinsað frá geti verið hættulegar gangandi fólki, fyrir nú utan óþxgindin sem þvi fyigir að klofa snjóinn. DB-mynd Bj.Bj. Lenin hét i rauninni Ulanov Þátturíim eftir hádegid r BEZTIVINUR HUSMÆÐRANNA Heimavinnandi skrifar: Ekki alls fyrir löngu birtust í les- endaþætti blaðsins (raddir lesenda) tilmæli frá Maríu Kristjánsdóttur, þess efnis að útvarpið byrjaði aftur með þættina Eftir hádegið, sem fluttir voru vikulega árum saman og mörkuðu að mörgu leyti timamót i útvarpsútsendingu þar eð þeir voru fluttir í beinni útsendingu — utan símviðtala sem stjórnandinn, Jón B. Gunnlaugsson, átti við hlustendur í hádeginu, rétt áður en þátturinn hófst. Má með sanni segja að þetta hafi verið þáttur okkar húsmæðr- anna öðrum fremur, bæði vegna þess að hann var fluttur á þeim hlustunar- tíma sem „heimavinnandi” hús- mæður geta bezt fylgzt með og einnig vegna þess að mikill meirihluti við- mælenda i þættinum voru konur, sem ekki er óeðlilegt þar eð hringt var um hádegisverðarbil og þær því oft- ast fyrir svörum. Jón Gunnlaugsson sá um þáttinn Eftir hádegið. Hér skálar hann í megrunardrykk í tilefni megrunar sem hann fór í ásamt Albert Guð- mundssyni og Kristni Hallssyni. Þessi þáttur, sem mér er óhætt að fullyrða að hafi verið eitt vinsælasta útvarpsefni þessara ára, mun hafa lokið göngu sinni í lok kvennaársl! — ef ég man rétt og ekkert hliðstætt efni hefur komið í staðinn, sízt af öllu á þeim hlustunartíma þegar við hús- mæður eigum bezt með að hlusta. Þetta „uppátæki” Jóns, að hringja svona í fólk og koma því að óvörum, var hreint afbragð og mörg voru þau viðtöl óborganleg. Það hafa marg- sinnis komið fram áskoranir á út- varpið i lesendadálkum dagblaðanna þess efnis að þessi þáttur verði ,,upp- lifgaður”. Herrar mínir, á hverjum stendur? Raddir lesenda Lenin hét Ulanov Ásbjörn Már Jónsson skrifar: Ég vildi gjarnan gera smá athuga- semd við Jólagetraun Dagblaðsins, annan þátt. Lenin hét þegar hann var barn að aldri Vladimir iljitsj Ulanov en tók sérnafnið I enin á byltingarár- unum því hann þurfti að fara huldu höfði etns og menn kannski vita. Þetta var nú bara svona útúrdúr hjá mér. Með þökk fyrir gott blað. Önnu Murray íútvarpið — og húrra fyrír Ásgeiri Guðrún hringdi: I Dagblaðinu á mánudag er þýtt úr Billboard vinsældaval í Bandarikjun- um. Kemur það meðal annars fram að næst vinsælasta söngkona þar vestra er Anne Murray og er þess getið að hún sé lítið þekkt hér nema ef til vill meðal þeirra sem hlusta á Kanaútvarpið. Nú langar mig til þess að vita hvort Anne Murray var önnur vinsælasta söngkona I Bandaríkjunum á liðnu ári en hún heyrist sjaldan syngja i út- varpinu hér. poppþáttamenn útvarpsins eða aðrir starfsmenn tónlistardeildar hafi aldrei heyrt talað um þessa ágætu söngkonu því aðeins einu sinni hef ég heyrt hana syngja í útvarpi og það í poppþætti hjá Þorgeiri Ástvaldssyni. Mig langar mikið til að fá að heyra meira og vonast eftir því. Með kæru þakklæti til Ásgeirs Tómassonar fyrir poppþættina í Dagblaðinu. Randver en ekki Júlíus Lesendasíðunni urðu á þau mistök í myndaiexta á þriðjudag að segja mynd af Randveri Þorlákssyni vera af Júlíusi Brjánssyni. Er beðizt vel- virðingar á mistökunum. Fáir munu nú keppa við Albert: Albert einn á vítateignum? Verður Albert einn til þess að reyna að hitta I forsetakörfuna? DB-mynd: Hörður. TAKA ÞARF TILUT TILÆTTINGJA Hjördis Þorsteinsdóttir, Mávahrauni 9, hringdi: Er nauðsynlegt fyrir blöð og út- varp að velta sér svona upp úr ógæfu manns sem verður fyrir því að verða sjálfum sér og tveim öðrum að bana? Maðurinn á konu og börn sem tillit þyrfti. að taka til. Ég er sannfærð um, að ef hann hefði verið áhrifamaður í þjóðfélaginu hefðu vinir hans komið i veg fyrir að blöðin væru lögð undir fréttir af málinu þrjá daga í röð eins og nú hefur veriðgert. Bessi Bessason (ekki frá Bessastöð- um) skrifar: Jæja, þá er að hefjast baráttan fyrir enn einar kosningarnar. Þetta er okkur löndunum að skapi. Alltaf að „berjast” fyrir einhverju. Og nú þurfa menn að fara að skipta liði, ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Albert er sá eini, sem enn þorir í sviðsljósið svona snemma. Allir aðrir, sem orðaðir hafa verið við framboð, minna á kjúklinga, sem hlaupa út á skjön, er þeir verða varir mannaferða. Og sennilega verða margir kallaðir, en aðeins einn verður útvalinn, eins og stendur þar. En eins og „svarta höfuð” Visis sagði á dögunum, verður Albert sennilega kominn inn á vítateig í baráttunni, áður en nokkur hinna (ef einhverjir verða) uggir að sér. Þeir hinir eru að bíða eftir að þjóðin biðji þá að fara fram. Það verður þó aldrei, því þjóðin kýs þann mann einan, sem þorir í framboð af sjálfsdáðum og hefur sýnt það i verki, að hann er metinn fyrir fyrri störf. Albert Guðmundsson er einn þeirra, sem hefur þó sýnt hvað i honum býr. Hann hefur átt formæl- endur marga, hérlendis og erlendis, og er þekktur að verðleikum. — Enginn þeirra manna, sem opinber- lega hefur birzt viðtal við, hefur gert neitt annað en það sem þeim bar að gera, gegn greiðslu frá okkur öllum. Vera má þó, að ekki séu öll kurl komin til grafar um það, hverjir gefi kost á sér til framboðs forseta og segir mér svo hugur, að enn sé geymdur sem „reserve” maður eða menn, sem eiga svipaðan feril og Albert, þ.e. hafa unnið landi sínu og þjóð mikið gagn hér heima, en ekki síður erlendis. Ekki er þó um marga slíka að ræða og fáir munu þess um- komnir að etja kappi við Albert, utan einn eða tveir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.