Dagblaðið - 26.01.1980, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 26.01.1980, Blaðsíða 24
Patreksfjörður: Tvær stúlkur misstu allt sitt í húsbruna Tvær ungar vertíðarstúlkur misstu allt sitt i húsbruna á Patreksfirði á fimmtudagskvöld. Eldur kviknaði kl. 5.30 í svokölluðu Arnfríðarhúsi við Strandgötu 1 b. Húsið sem er lítið timburhús eyðilagðist i eldinum en féll ekki. Fiskverkunarstöðin Oddur átti húsið en í þvi bjuggu tvær Reykja- vikurstúlkur sem vinna hjá fisk- verkunarstöðinni. Stúlkurnar voru við vinnu er eldurinn kom upp og húsið því mannlaust. Eldsupptök eru ókunn. Slökkvilið Patreksfjarðar kom strax á staðinn og gekk slökkvistarf vel. Arnbjargarhús stendur niðri á svo- kölluðum Kambi þar sem er þyrping gamalla húsa á Patreksfirði. -EO, Patreksfirði. Tvífari geimfarans í Dagblaðsbíói Tvifari geimfarans verður sýndur í Ðagblaðsbiói á sunnudag. Hér er um bapdaríska gamanmynd að ræða og er hún í litum. Myndin er sýnd í Hafnar- þiói kl. í: „Dáumst að hve hratt og fumlaust var unnið að björgunarstörfum” „HLAKKA TIL AÐ BYRIA AB FUÚGA AFTUR” segir Femandez, flugstjóri þyrlunnar sem fórst á Mosfellsheiði „Við dáumst að hve hratt og fum- laust unnið var að björguninni. Þeir sem fyrst komu að þyrlunni eftir hrapið sýndu hetjuskap. Það var nánast yfirnáttúrulegt að ekki kviknaði í flakinu. Hættan minnkaði verulega eftir að tókst að slá út höfuðrofanum.” Þrír af fimm úr áhöfn bandarísku björgunarþyrlunnar, sem fórst á Mosfellsheiði 18. desember, sátu fyrir svörum fréttamanna i herstöð- inni í gær. Það voru þeir Manuel Fernandez, flugstjóri þyrlunnar, Charles K. Singleton aðstoðarflug- stjóri og Thomas Berry flugvélstjóri. Fernandez og Berry gengu við hækjur. Þeir fóru til Bandarikjanna í mórgun þar sem meiðsl þeirra verða' rannsökuð frekar á sjúkrahúsi í Texas. Singleton var hress að sjá. Búizt er við að hann verði orðinn vinnufærí sumar. Romie Brown liðþjálfi var fluttur frá Landspitalanum til Keflavíkur- flugvallar í gær. Hann liggur nú á sjúkrahúsi hersins. Michael Davies, fimmti i áhöfninni, hefur hafið störf á ný. Þremenningarnir vildu ekkert spá í hugsanlega ástæðu fyrir hrapi þyrl- unnar á Mosfellsheiði. Fram kom að rannsóknarmenn eru enn að vinna úr gögnum og ekki er vitað hvenær sér fyrir enda rannsóknarinnar. Bandaríkjamennirnir hældu björg- unar- og hjúkrunarfólki á hvert reipi fyrir framlag þess. Þeir sögðu að erfitt hefði verið að gera sér grein fyrir hvað var að gerast þegar þyrlan byrjaði að hrapa. „Við vorum of uppteknir til að hugsa eitt eða neitt á því augnabliki.” Allir kváðust þeir ætla að halda áfram að fijúga þegar heilsan kemst í samt lag. „Jú, ég fer örugglega í flugið aftur og hlakka mikið til,” sagði Fern- andez flugstjóri. -ARH Landsbankamál og mál Hafskips enn í gangi Landsbankamálið svokallaða gegn Hauki Heiðari fyrrverandi deildar- sljóra í bankanum verður flutt a næst- unni fyrir Sakadómi Reykjavikur. Ákæra i því máli var gefin út hinn 12. marz síðastliðinn. Vænta má ákvörðunar um meðferð Hafskipsmálsins hf. innan tiðar. Það mál er sprottið af kæru stjórrar Haf- skips hf. á hendur fyrrum stjórnarfor- manni og forstjóra fyrirtækisins. Kærur voru dregnar til baka. DB barst fréttatilkynning þessa efnis í gærkvöldi frá dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu. Mun slík tilkynning um gang einstakra mála í dómskerfinu vera algjört nýmæli eða í það minnsta fá- heyrð fram til þessa. Segir svo í fyrstu málsgrein tilkynn- ingarinnar: „Dómsmálaráðuneytið hefur kynnt sér stöðu tveggja rann- — nýmæli af hendi dómsmálaráðuneytis að gefa út tilkynn- ingu um þau að fyrra bragði sóknarmálefna, sem fyrir alllöngu siðan voru mjög umfjölluð, en nú hefur um hríð ekkert spurzt til. Telur ráðuneytið óæskilegt að almenningur geti fengið þá tilfinningu, að doði hafi færzt yfir meðferð mála, sem álitin hafa verið meiriháttar sakarefni.” -ÓG. Thomas Berry t.v„ Charles K. Singleton og Manuel Fernandez á blaðamannafundinuml gær. m frjálst, oháð dagblað LAUGARDAGUR 26. JAN. 1980. Framtölin bíða á meðan leiðbeiningarnar eru í vinnslu: Fresturinn lengdur til 25. febr. „Það hefur nú verið ákveðið að lengja framialsfrest einstaklinga til 25. febrúar eða um 15 daga umfram þá 10 daga sem áður var búið að framlengja hann um,” sagði Sigurbjörn Þor- björnsson ríkisskattstjóri í viðtali við DB i gær. Ástæðan fyrir frestinum er einkum að verið er að vinna leiðbeiningar með framtölunum og telur skattstjóri ekki ráðlegt að dreifa franttals- eyðublöðunum fyrr en svo er. Fengju menn þau á undan leiðbeiningum kynni það að skapa einstaklingum og skattayfirvöldum óþarfa óþægindi. Ennfremur eru leiðbeiningarnar byggðar á frumvörpum, sem ekki eru orðin að lögum. -GS. „Kerfíó” gerír ekki ráð fyrír giftingum fanga Presturinn stóð í stappi riðaöfá ferðaleyfi fyrir brúðguma tíl kirkju „Kerfið" virðist ekki gcra ráð fyrir þvi að fangar á Litla-Hrauni gangi í itjónaband. Að minnsta kosti reyndist það viðkomandi presti nokkuð erfitt og snúningasamt að fá því framgengt að Tryggvi Rúnar Lcifsson fengi leyfi til brottfarar frá Litla-Hrauni til Eyrarbakkakirkju þar sem hjónavígslan fór fram cn á dögunum kom það fram í Hæstarétti að hjónavígslan hefði farið fram á annan dag jóla. Presturinn sneri sér til dómsmála- ráðuneytis um ferðaleyfi fyrir brúðgumann til hjónavígslunnar. Ráðuneytið kvað slíkt ekki sitt mál, dómari heföi fellt fangelsisdóm yfir honum og þvi gæti ráðuneytið i engu breytt. Presturinn ræddi við dómarann og kvaðst hann hafa kveðið upp dóminn eftir framlögðum gögnum frá Rann- sóknarlögreglu rikisins og ferðaleyfi fanga heyrðu ekki undir hann. Presturinn hélt til rannsóknar- lögreglunnar og bað um fcrðaleyfi fyrir brúðgumann. Þar var málið talið fullafgreitt og skjöl og fyrrum gæzlufangi lalinn afhentur dómara. Þegar málið hafði þannig farið i hring var dómara skrifað og i svar- bréfi kvaðst hann ekki hafa á rnóti því að fanginn fengi leyfi til kirkju- ferðar. Þá gat hjónavigslan farið fram. Viðstaddir voru óeinkennisklæddir fangaverðir af Litla-Hrauni. -A.St.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.