Dagblaðið - 07.03.1980, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 07.03.1980, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. MARZ 1980. 11 ' * yrði sett mjölverksmiðja. Fiskiskipin yrðu hinir áðurnefndu sambyggðu skuttogarar, sem bæði gætu veitt með trolli og hringnót. Áhöfn móðurskipsins yrði sam- kvæmt áætluninni 38 manns og síðan þyrfti 34 til að sjá um starfrækslu mjölverksmiðjunnar. Tólf manna áhöfn þyrfti að vera í hverju fiskiskipi. Gert er ráð fyrir að skipt verði um áhafnir þannig að enginn, hvorki um borð í móðurskipinu né fiskiskipunum, verði lengur syðra en þrjá og hálfan mánuð. Gert er ráð fyrir kostnaði við flugferðir starfs- manna til og frá Noregi, þegar arðsemi smárækjuleiðangurs var könnuð. Niðurstaða rannsóknarinnar er sem sagt sú að allar likur séu til þess að leggja megi út í slíkan leiðangur innan fárra ára og hugsa Norðmenn sér gott til glóðarinnar i þeim efnum. Suður-Ishafið hefur verið allmikið i sviðsljósinu á undanförnum mánuðum. Í fyrra fór fram ráðstefna um hugsanlega nýtingu hafsins með þátttöku þrettán ríkja sem þar telja sig eiga hagsmuna að gæta. Má þar nefna Bandaríkin, Sovétrikin, Japan, Pólland, Noreg, Argentínu og Ástralíu. Nýting auðæfa Suður-Ishafsins tengist verulega hernaðarhagsmunum stórveldanna á Suðurskautssvæðinu. Einnig er nú mjög rætt um að oliu megi vinna þar á hafsbotni og vaknar þá sú spurninghverjir eigi þar nýting- arréttinn. Er þá um að ræða ríkin sem liggja að Suðurskautinu eða næst því eða þau ríki sem nytjað hafa þennaaheimshluta frá fyrri tíð. Nú er í gildi alþjóðlegt sam- komulag um að enginn hafi leyfi til að reyna oliuvinnslu af botni Suður- Íshafsins. Bæði er það að enn er tæplega tæknilega auðið að vinna olíu svo djúpt á úthafinu og auk þess óttast flestir að olían kynni að menga hafið, ef eitthvað bjátaði á i olíuvinnslunni. Slíkt olíuslys gæti valdið óbætanlegum og óhemjuskaða þar sem smárækjan, svifin og annar smá- dýragróður í hafinu eru undirstaða lifs fjölda annarra dýrategunda. Þrátt fyrir þetta hafa Norðmenn mikinn hug á að vera við öllu búnir og hefja þá væntanlega veiðarnar um leið og fært er. Með því að veiða smárækjuna og svifin til mjölvinnslu telja þeir sig einnig geta létt á mjölveiði á ofveiddum fisktegundum eins og loðnu, makril, koimunna og sild. í skýrslu um rannsóknina sem gerð var í Norska tækniháskólanum er einnig bent á að mikilvægt sé að smárækjan og svifið sé rannsakað af alþjóðlegum aðilum. Þá er bæði átt við líffræðilegar rannsóknir og eins hvaða lagalegar reglur eigi að gilda um nýtingu hennar. Mjög líklegt sé að svif og aðrar smáverur í hafinu séu sá eggjahvitubrunnur sem fátækar þjóðir heimsins eigi eftir að ausa úr í framtiðinni. sen er kúamjóik blönduð með vatni ekki bezt handa börnum, sem geta haft ofnæmi fyrir henni, og er því ráðlegt að nota barnamjólkurduft í staðinn. Barnamjólkurduft stendur næst móðurmjólkinni. Að duftið er hollt sýna tölurnar um ungbarna-’ dauða greinilega. Sams konar ráð eru einnig gefin af Neytendastofnun i Noregi (Forbrukerrádet). Hvað barnamjólkurduftið kostar var athugað næst. Barnamjólkur- duftið er til sölu íapótekum, og fylgir dósunum smáleiðarvisir um magn í hverja máltíð og fjölda máltíða á dag. Verðin voru í gildi i 1. viku febrúarmánaðar, og eru hér tvö dæmi: Liðamin-dós kr. 2.425, 450 grömm. 2 mán. barn fær 5 máltíðir á dag og eru 17,5 gr notuð í máltíð (3,5 mæli- skeiðar). Á dag eru því notuð alls 87,5 grömm.Dósin næri í 5 daga. Á viku er kostnaðurinn því kr. 3.300. S..M.A. Gold Cup kr, 3.152 kr.„ og eru 450 gr. I gósinni. Hér er bent á, að þyngri börn ættu að fá meiri mjólk. Linolac-dós kr. 2.353. í stuttu máli: barnamjólkurduft er mjög dýrt. Spurning er því af hverju? Er duftið dýrt í framleiðslulandinu eða eru íslenzk tollalög og önnur lög þess valdandi? Þvi miður er verðmyndun innan- lands fráleit. Barnamjólkurduft er tollað skv. toll- skrárnúmeri 21-07-19. Hvernig er verðið myndað? FAUNN FJAR SJOÐUR 1 kjallaragrein fyrir stuttu gerði undirritaður tilraun til að skýra um- mæli Ingólfs á Hellu, er hann viðhafði eitt sinn sem landbúnaðarráðherra, þar sem hann gerði grein fyrir hinum miklu verðmætum, sem landsmenn ættu í veiðivötnum landsins. Þar var einnig greint frá því, að lítið hefði verið gert til að nýta, eða öllu heldur að bjarga þeim fjársjóði. Athygli manna hefur beinzt að lax veiðum og laxarækt, og vissulega er það ekki að ástæðulausu. Margir hafa og m.a. undirritaður bent fyrir löngu á hina miklu mögu- leika er hér væru fyrir hfndi með laxa- rækt í sjó, en það er ekki fyrr en skór- inn kreppir að með aðrar fiskveiðar og erlendir aðilar sýna áhuga að menn koma auga á hina miklu möguleika. Framtakssamir einstaklingar svo sem eins og Jón Sveinsson og félagar hans í Lárósi og fleiri hafa á eigin spýtur og við mikið erfiði og jafnvel illt umtal, gert þrekvirki á þessu sviði. Er vonandi að nú verði hafizt handa, eins og útlit er fyrir og útlend- ingum verði ekki hleypt lausum í þessi mál eins og viða annars staðar.' Veiðivötnin En þetta er ekki umræðuefnið að þessu sinni, heldur veiðivötnin. Eins og áður var sagt, eru íslenzku veiði- vötnin að eyðileggjast vegna offjölg- unar. Eitt hið fegursta þeirra, Þingvalla- vatn, er stórskemmt vegna rafmagns- virkjana og fleiri vötn hafa orðið fyrir búsifjum vegna þessa, en langstærstur hluti vatnanna er að eyðileggjast og þegar eyðilögð vegna offjölgunar, sem gert var grein fyrir í siðustu kjallara- grein. Vegna hins slæma ástands i land- búnaði hafa samtök bænda o.fl. komið auga á, að nauðsynlegt væri að koma í gagnið fleiri búgreinum en hinum hefðbundna kvikfénaði. Þar á meðal er nýting veiðivatna. Eina hugsanlega V nýting islenzkra veiðivatna er stanga- veiði, sem mikill fjöldi stundar. Þar eru geysimiklir möguleikar fyrir bæði bændur og þjóðfélagið I heild. Möguleikar bænda er sala veiðileyfa og ferðamannaþjónusta við veiði- menn. Möguleikar þjóðfélagsins í heild eru næstum ótæmandi mögu- leikar á erlendum veiðimönnum, sem vilja stunda silungsveiði en eiga ekki kost á að fá nema mjög smáan fisk í heimalöndum sinum eða nágrenni. Þessir ferðamenn eru miklu verð- mætari en hinir tiltölulega fáu auðkýf- ingar erlendis, sem lagt hafa lax- veiðina hér að verulegu leyti undir sig. Þeir ferðast með íslenzkum flugvél- um; þeir nesta sig ekki að heiman; þeir kaupa þjónustu eins og venjulegir ferðamenn og koma ekki eingöngu til að veiða heldur til að skoða íslenzka náttúru, sem óvíða er fegurri en við sum fjallavötnin. Fyrir þetta fólk þarf ekki að byggja lúxushallir. Allur aðbúnaður má vera einfaldur og bændur sjálfir geta lagt tii húsnæði, ef með þarf, því víða er vel byggt í sveit. Einfaldir veiðikofar, tjöld og hreinlætisaðstaða er helzta fjár- festingin. Þetta eru ekki auðkýfingar, heldur millistéttarfólk, sem þráir að komast i fríum sinum í snertingu við fagra og mikilúðuga náttúru og hafa þó eitt- hvaðfyrir stafni. Það er auðvelt að fá þúsundir af slíkum ferðamönnum og ekki þarf að óttast örtröð á helztu ferðamanna- slóðir, eins og sumir hyggja. Þetta er fjársjóðurinn sem Ingólfur á Hellu var að tala um og allir virðast hafa gleymt. Margir einblína á hinn Kjallarinn Páll Finnbogason auðuga ferðamann, en gæta þess ekki, að hann ferðast víða og skilur ekki eftir sig mikinn pening. Hann á allt og það, sem við höfum upp á að bjóða, er ekki nógu fint fyrir hann. Það er hinn almenni borgari, sem safnar sér fyrir ferðalagi á löngum tíma, sem er eftirsóknarverðastur frá sjónarmiði hins venjulega ferðaiðn- aðar. Það verður þegar i stað að huga að þessum málum; einmitt nú, þegar Ijóst er, að íslendingar verða að fá meiri fjölbreytni í atvinnuvegi sína en verið hefir, ef þeir eiga að lifa sómasamlegu lífi í landi sínu. Sjóstangaveiði 1 þessum tveim kjallaragreinum hefir verð minnzt lítillega á lax- og sil- „Fyrir þetta fólk þarf ekki ad byggja íúxushallir.” Feikiháir tollar Sé tekið innkaupsverð (fob verð)......................................100 sem flutningskostnaður bætist við..................................... 10 tollverðiðer því.................................................... .110 innanlandskostnaðurinn................................................. 6 lúxustollur (hæsti tollur) er lagður á tollverðið (80%)............... 88 á tollverð og toll er lagt sérstakt vörugjald 24% (af 198)............ 48 kostnaðarverð er því..................................................252 heildsöluálagninginer9%............................................... 23 smásöluálagningin 38% ................................................104 smásöluverðið er......................................................379 eða reiknað á tollverð 345% Matvörur eru ekki söluskattskyldar, annars væri verðiðennþá hærra. Aðrar matvörur handa börnum eru einnig mjög dýrar, þótt tollurinn sé ekki eins hár. Halldór Hansen yfir- læknir skýrði frá, að æskilegt væri að gefa smábörnum grænmeti og ávexti, og eru slikar vörur ekki alltaf til á Íslandi. Þess vegna er hentugt að geta keypt barnamat i glösum (eða dósum). Kjallarinn Eiríka A. Fríðriksdóttir Verðmyndun lítur út eins og hér er sýnt: Niðursoðnir ávextir, tollskrárnúmer 20-60-20, fobverð....................100 flutningskostnaður..................................................... 23 tollur (50%)............................................................. 62 innanlandskostnaður....................................................... 6 vörugjald (24% af 185)................................................. 44 álagningar 9% og 38%, smásöluverð þvi....................................352 Grænmetián kjöis, tollskrárnúmer 20-02-09, innkaupsverð......... ........100 flutningsgjöld........................................................... 15 tollur (70% af 115)...................................................... 80 vörugjald (24% af 195).................................................. 47 innanlandskostnaður....................................................... 6 álagningar 9% og 38%, smásöluverðiðþvi...................................372 Hvernig lítur verðmyndun út, ef um mat handa kettlingum eða hvolpum er að ræða? Allt öðruvísi. Enginn tollur, ekkert vörugjald. Þeirra dósamatur, fluttur inn fyrir erlendan gjaldeyri, er talinn fóðurefni, eins og fóðurbætir handa kúm. Ég hef gaman af köttum og hundum — en mér finnst samt að við ættum að hugsa fyrst og fremst um mannabörn. ungsveiði, og verður nú í lokin rætt um sjóstangaveiði. Á því sviði höfum við meiri mögu- leika en nokkur önnur þjóð á norður- hveli jarðar. Hér við land og stutt frá landi eru gjöful fiskimið, sem veita mjög mikla möguleika. Sjóstangaveiði cr íþrótt, sem á miklum vinsældum að lagna meðal nágrannaþjóða okkar. Sjóstangaveiðimenn hafa með sér samtök, sem ná yfir Norðurlönd og alla Vestur-Evrópu. Undirrituðum er kunnugt um mikinn áhuga meðal þessa fólks að komast á veiðisvæði, sem geta gefið betri fisk en um er að ræða við Evrópustrendur. Þau höfum við, en við nýtum ekki þetta tækifæri svo nokkru nemur. Þó eru haldin hér sjóstangaveiðimót með þátttöku erlendra sjóstangaveiðimanna og eiga þeir tæpast orð til að lýsa þeim mun á fiskimiðum og þeim, er þeir eiga kost á heima hjá sér. Hér er allt fyrir hendi til að taka á móti þessu fólki, víðs vegar um land. Bátar, leiðsögumenn, gistiaðstaða, sem gjarnan má vera frumstæð, þvi að þetta fólk sækist ekki eftir lúxushótel- um, af þeim hafa þeir nóg heima hjá sér. Hér á við hið sama og um silungs- veiðimennina og jafnvel laxveiði- mennina almennt. Ævintýriðer fólgið j' hinni villtu náttúru en ekki i smíðum manna. Jafnvel hið rysjótta íslenzka veðurfar er ævintýri út af fyrir sig fyrir þetta fólk. Hér virðist hins vegar lítið komast að hjá yfirvöldum ferðamála annaðen ráðstefnuhöld og ferðir til Gullfoss og iGeysis, sem ekki gýs, og svo Þing- .valla. En þær ferðir eru háðar veður- guðunum, ef vel á til að takast. Hér er mikið verkefni fyrir hendi, sem mun skapa mörgum atvinnu og landinu miklar gjaldeyristekjur. Gott búsílag fyrir bændur, íbúa sjávarþorpa og landiðallt. Páll Finnbogason. Sagt er að barnamjólkurduft sé svo hátt tollað til að vernda íslenzkan landbúnað. En hér er um reginvillu að ræða: 1) mjólk og rjómi koma undir toll- skrárnúmerin 04-01-00 og er tollur aðeins 50%. 2) Þurr egg eða egg án skurnar eru flutt inn til notkunar handa bökurum undir tollskrárnúmerunum 04-05-10, 04-05-20 og er tollur núll, og var toll- verðið 1978 8,2 millj. kr. Þessar vörur eru landbúnaðarvörur, ekki barnamjólkurduftið, sem ekki er framleitt hérlendis úr kúamjólk. Hvað getum við gert? Reyna að fá fjármálaráðuneytið að leggja lagabreytingu fyrir Alþingi, þar sem matur ætlaður börnum fær sér- tollskrárnúmer og tollur ákveðinn NÚLL frá öllum löndum, einnig breyt- ing á lögum um sérstakt tímabundið vörugjald, og jöfnunargjald, þar sem barnamatur er undanþeginn. Eðlilegast væri, að Neytenda- samtökin væru í fararbroddi og legðu þessar tillögur fyrir fjármálaráðherra. Stuðningur verður hins vegar að koma frá mæðrum ungra barna, og er tillaga mín aðþær skrifi beinl til Neytendasamtakanna, pósthólf 1066, Reykjavik. Eirika A. Friðriksdóttir hagfræðingur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.