Dagblaðið - 12.09.1980, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 12.09.1980, Blaðsíða 23
r DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1980. Sjónvarp i nóvember. HAPPDRÆTTf Vinningsnúmerin í happdrætti Vífilfells h/f eru 1797 2851 skrifstofu Vífilfells sem fyrst í síma 18700. Verksmiðjan Vífilfell h/f. F-L-Ó-T-T-l-N-N FRÁ F-O-L-S-O-M FANGELSINU Ný amerfsk geysispennandi mynd um Iff forhertra glæpamanna í hinu illræmda FOLSOM fang- elsi f Kalifornfu og það samfélag sem þeir mynda innan múranna. Byrjað var að sýna myndina vfðs vegar um heim eftir Cannes kvikmyndahátfðina nú f sumar og hefur hún alls staðar hlotið geysiaðsókn. Blaðaummæli: „Þetta er raunveruleiki”. --^WéW Vork Post — „Stórkostleg”. — Boston Globe — „Sterkur lcikur” ... „hefur mögnuð áhrif á áhorfand- ann”. — The Hollywood Reporter — „Grákaldur raunveruiciki” ... „Frábær leikur” *' 'r — NewYorkDaiIyNews — Leikstjóri: Michael Mann feikarar: Rain Murphy ....................... Peter Strauss (Úr „Soldier Blue” + „Gæfa cða gjörvileiki”) R.C.Stiles ....'................. RichardLawson Cotton ( rown................... Roger E. Mosjey Sýndkl, 5-7.10-9.20 og 11.30 Munið miðnætursýningu kl- 1:30. á föstudagskvöld og laugardagskvöld. BÖNNUt) BÖRNUMINNAN16ÁRA RAUÐI KEISARINN - sjónvarp í kvðld kl. 21,35: Sjö milljónir manna hnepptar í fangelsi í þriðja þættinum um Rauða keis- arann, Stalín, sem er á dagskrá sjón- varpsins í kvöld, verður fjallað um árin 1934 til 1939. í kjölfar meints samsæris gegn Stalín hóf hann hat- rammar ofsóknir gegn andstæðing- um sínum. í hópi ákærðra voru margir gamlir bolsévíkar eins og Kamenev, Zinoviev, Rykov og Bukharin. Hreinsanirnar náðu jafn- vel til yfirmanns leynilögreglunnar G. Yagoda og ýmissa háttsettra manna í hernum. Hinar stórfelldu hreinsanir í kommúnistaflokknum höfðu í för með sér að hvorki meira né minna en sjö milljónir manna voru hnepptar í fangelsi. Ein milljón þeirra var tekin af lífi og stór hluti þeirra sem eftir voru veslaðist upp í þrælkunarbúð- um. Þessa ógnarstjórn taidi Stalín nauðsynlega til að greiða framgang sósíalismans. -GAJ Jósef Stalin hneppti sjö milljónir manna í fangelsi til að greiða fyrir framgangi sósialismans. .av.-wí . 'w’ Frá Veðurstofu tslands. Til hægri er Markús Á. Einarsson, sem flytur fyrsta er- indi af sjö sem flutt verða næstu sunnudagsmorgna um veðurfræði I útvarpinu. Sjö erindi um veðurfræði NÍU ÍSLENZK LEIKRIT VERDA FRUMFLUTT — í útvarpinu fram að áramótum Fyrirhttgað er að frumflytja niu ís- lenzk leikrit i útvarpinu fram að ára- mótum. Auk þess verður eitt eldra verk endurtekið. Er það Fjalla-Eyvindur Jóhanns Sigurjónssonar, en á þessu ári eruliðin 100ár frá fæðingu hans. Eftirtalin íslenzk leikrit verða flutt í október og nóvember næstkomandi: 1. í takt við timana, eftir Svövu Jakobs- dóttur, 2. Úlfaldinn, eftir Agnar Þórðarson, 3. Morgunn á Brooklyn- brú, eftir Jón Laxdal Halldórsson,4. Síðasta afborgunin, eftir Sigurð Róbertsson, 5, Hvaðá aðgera við kött- inn? eftir Ásu Sólveigu, 6. Næturþel, eftir Ásu Sólveigu. Þá verða flutt þrjú innlend barna- leikrit: 1. Fitubolla, eftir Andrés Ind- riðason, 2. Morgunsárið, eftir Her- borgu Friðjónsdóttur, 3. Froskurinn sem vildi fljúga, eftir Ásgeir Þórhalls- son. Auk þessa verður flutt framhalds- leikrit Gunnars M. Magnúss eftir skáldsögunni Leysingi eftir Jón Traustá. Leikrit þetta verður í sex þátt- um. • GAJ Sjö næstu sunnudagsmorgna verða flutt erindi um veðurfræði í útvarp- inu. Erindin verða flutt af veður- stofustjóra og veðurfræðingum við Veðurstofu íslands. Þór Jakobsson hefur umsjón með þættinum. Erindin verða kl. 10.25—10.50 á sunnudögum, sem hér segir: 14. sept. Markús Á. Einarsson, veðurspár; 21. sept. Borgþór H. Jónsson, háloftin; 28. sept. Hlynur Sigtryggsson, al- þjóðleg veðurmál; 5. okt. Þór Jakobsson, haf og löft; 12. okt. Trausti Jónsson, ofviðri; 19. okt. Adda Bára Sigfúsdóttir, veðráttan, og 26. okt. Flosi Hrafn Sigurðsson, loftmengun. -GAJ

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.