Auglýsarinn - 20.07.1902, Blaðsíða 3

Auglýsarinn - 20.07.1902, Blaðsíða 3
13. júlí 1902J AUGLJÝSAEINN. 99 VERZLUNIN GODTHAAB hefir nú með s/s „Laura“ fengið nýjar birgðir af alskonar vörum til húsabygginga t. d. pappa allskonar, saum allskonar, sljett galv. járn. Skrár, Lamir o. fl. o. fl. Einnig gnægð af allskonar matvöru, nýlendu- vöru og tóbaki. Gouta osturinn frægi. Margarine, Alaborgar stjarnan o. fl. tegundir, Málning- artegundir allskonar, þar á meðal nýkomið; Pibeler, Satin, Terra d’ Sienna, Kassler-brúnt, Mahognt-rödt, Mubra, o. fl. o. fl. sömuleiðis mjög gott Copal-lak. Þess skal getir að öll málningarvara er frá Forenede Farvemesteres Farvemöller og að eins flutt bezta tegund þótt verðið sé mjög lágt, lakari vörutegundir frá þessu verzl- unarhúsi flytur ekki vei'zlunin „Godthaab“. lllt er að venju selt með afar lágu verði- eftir lector Helga Hálfdánarson með mynd höfnndarins verð: Kr. 3,85 óbundnar, 5,35—6,00 kr. í vöuduðu skrautbandi, fást í Fjelagsprent- smiðjunni í Rvík og eftir næstu ferð strandbátanna hjá öllum bók- sölum landsins. Úr heimi sálarinnar. Ein af þeim vísindagreinum, sem minnst rækt hefir verið við lögð hingað til er sálarfræðin. Nú á tímum er farið að veita þessari vis- indagrein meiri eftirtekt, en áður, þótt fáar uppgötvanir sé gerðar svo að marki sé, sem ekki er við að bú- ast enn þá. Vísindamenn vorra daga eru margir teknir að veita eft- irtekt þeim atburðum í heimi sálar- innar, sem skammsýni foríeðra vorra taldi hégiljur einar og ekki að marki hafandi. En slikar sögur, sem að eins snerta sálarlifið og viðburði úr þeim ókunna heimi hafa menn nú tekið til vísiudalegrar athugunar og trúa margir ; að það geti leitt til sannana þótt seinna verði. Vísinda- maðurinn Camille Elammarion hefir manna bezt ritað um þetta efni og eru til margar bækur um það ef'tir hann. Ein bókin heitir „Hið dulda“ og hefir „Auglýsarinn11 tekið fyrir sig að flytja lesendum sínum fítið sýnishorn af bók þessari, sein er vísindalega samin og fer ekki nema með rökstudda vitnisburði; sem naumlega er unnt að hrekja með vanalegum röksemdum efasemdar- manna. Flammarion segir með róttu, að langt só frá því, að menn sé í þessu efni komnir að neinni niðurstöðu enn þá, því síður að komið hafi fram fram nein sú grundvallarsetning, er á megi byggja öruggan lærdóm um líf nó eðli sálarinnar, hér verði eins og oftar í vísindalegum rannsókn- um að þreifa sig áfram hægt og hægt, safna fyrst nógu mörgum og skjallegum vitnisburðum og dæmum, þá megi fram af því fara að mynda grundvallarsetningu (theoriu). Þá fyrst sé hægt að rannsaka sálfræð- islega fyrirburði og skýra, þá þegar dæmin eru nógu mörg, ljós og stað- fest eftir þvi sem unnt er. „Eg vil“, segir Flammarion, „fylgja grund- vallarsetning hins fræga stjarnfræð- ings La Place’ser hann segir: „Það er fjarri því, að vér þekkjum alla krafta náttúrunnar og það er bein- línis óvísindalegt að neita því að fyrirburðir eigi sér stað 1 andans heimi að eins f'yrir þá sök að vór fáum eigi skilið þá á núverandi þekkingarstigi voru. Vér erum þvert á móti skyldir til að rannsaka þá og.veita þeim athygli með allri sam- vizkusemi og mun það þá sýnast, hve lengi halda má fram athugun- um vorum eða tilraunum, sem leitt geta til líkinda, er sigra megi þær ástæður, sem menn annars geta bor- ið fyrir sig gegn fyrirburðatrúnni“. Sögur þær eða dæini sem Flamm- arion tilfærir lúta fyrst og fremst að Nýtt! Nýtt! Nýtt! Nýjar vörur komnar í dag í allar deildir verzlunarinnar. Ósköpin öll af alls konar útgengilegum vörum. Fragtin ein nemur 1364 kr. 17 aur- Auk þess bátsfarmur af póetpökkum. Komiðl Siáiðl Kaupiðl H. Tli. A. Thomscn. því að deyjandi menn geti gert vrtrt við sig eða birzt vinum síuurn eða kunningjum. Tilfærir hann fyrst sögu þessa, eftir Parmentier vini sínum, frægum vísindamanni í Paris, því að sagan gerðist á heimili Par- mentiers sjálfs. I „Við vórum stödd á Schlettstalt í Elsass. Sumarnóttin var heit og við höfðum látið dyrnar standa opn- ar á milli dagstofunnar og svefn- herbergisins. Báðir gluggarnir í dagstofunni stóðu opnir og vóru skorðaðir með stólum til þess að þeir skyldu ekki skellast til. Foreldrar Parmentiers sváfu. Allt í einu vaknar frú Parmenti- er við það að henni finst rúmið hristast upp og niður undir sér. Hún varð bæði hissa og smeik'og vakti mann sinn og sagði honum hvers hún varð vör. Þegar hanu vaknaði þá kom aunað höggið með áköfum titringi. Faðir Parmentiers hélt að það væri jarðskjálfti þótt þeir kæmu sjaldan fyrir í Elsass. Hann fór ofan og kveykti ljós, od þegar hann varð einskis vísari er nýlunda væri fór hann upp í rúm sitt aftur. (Framh.) Porseti Bandaríkjanna fær laun sín borguð mánaðarlega, eins og t. a. m. landshöfðingi og hver annar ambættismaður hér á landi; þann 26. i hverjum mánuði fær hann senda ávísun frá fjármála- ráðgjafanum, uppá 4,166 dollara, Annars fá þjóðhölðingjar ársfúlgu sína úthorgaða í byrjun hvers fjár- hagstimabils. Fyrir 50 árurn siðan var nxeð- alhæð manna á Englandi 3 fet og 7'/2 þunxl.; nú er hún 5 fet og 8'/4 þumlungur.

x

Auglýsarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Auglýsarinn
https://timarit.is/publication/272

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.