Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1967, Blaðsíða 202
198
SÆNSKAR EINDÆMABÆKUR í LANDSBÓKASAFNI
prentunar, og var það verk unnið í Málmey 1965-66.* Með útgáfunni er rækileg
ritgerð eftir Malmgren. Greininni í Nordisk tidskrift fylgir enn fremur nákvæm bók-
fræðilýsing eflir Folke Dahl, og útgáfunni fylgir ritgerð eftir John Kroon um ljós-
prentun gamalla bóka.
I ritgerðum sínum gerir Arthur Malmgren grein fyrir stöðu þeirra rita, sem hér
ræðir um, í sænskri bókagerðarsögu og fjallar rækilega um efni þeirra og efnistengsl
við önnur rit.
Þrjú ritanna, Barnalærdómur (Catechismus), Guðspjöll og pistlar (Euangelia och
Epistler) og Píslarsaga (Passio), voru öll prentuð í fyrsta sinn á sænsku í Stokkhólmi
1544, þá einnig af Amund Laurentsson. Ári áður, 1543, prentaði hann sálmabók, en
til eru a. m. k. tvær sænskar sálmabækur aðrar eldri en sú frá 1562. Amund Laurents-
son prentaði svo allar þessar bækur aftur 1567, sem Collijn telur ranglega 2. útg.
Af bókunum frá 1543-44. eru nú aðeins varðveitt örsmá brot í Konungsbókhlöðu
í Stokkhólmi, af sálmabókinni tæplega ein örk, af Barnalærdómi fjögur blöð skert,
af Guðspjöllum og pistlum ásamt Píslarsögu 68 blöð, sbr. Collijn II, 124r-33.
Auk þess sem bindið í Landsbókasafni veitir vissu um, að Píslarsaga var prentuð
í Stckkhólmi 1562, og geymir mikinn hluta sálmabókar frá sama ári, eru hér því
komin elztu heil eintök af Barnalærdómi og Guðspjöllum og pistlum, prentuðum á
sænsku, sem nú er vitað um.
* Fyra svenska reformationsskrifter tryckta i Stockholm ár 1562. Utgivna av Arthur Malmgren.
I faksimil av John Kroon. AB Malmö Ljustrycksanstalt. Malmö 1965-66.