Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Page 165

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Page 165
FRÁ HALLGRÍMI SCHEVING 165 sumarið 1831, „og hefi ég þó sannfrétt eftir þeim hjónum,“ segir Konráð, „að þau hefðu langtum heldur viljað mig en hann; en fyrst ég sigldi, væri ekki til þess að taka.“2 En því er svo rækilega frá þessu sagt, að sýnt þykir nú, að Konráð hafi á þeim tíma, er hér um ræðir, verið hægri hönd Hallgríms í verki, sem Hallgrímur hafði að vísu haft í lakinu miklu lengur, og skal nú horfið að því. Eins og kunnugt er, kom orðabók Björns Halldórssonar út árið 1814 í Kaupmanna- höfn. Hafði Rasmus Rask, þá ungur að árum, unnið ásamt öðrum að því 1811-1813 að búa orðabókina til prentunar, og var það verk langt komið, er hann fór til íslands 1813. Af bréfi Hallgríms Schevings til Bjarna Þorsteinssonar 3. ágúst 18171 er ljóst, að Rask hefur hugsað sér að láta prenta lagfæring og orðaviðbót, er hann (þ. e. Rask) hefði gert við orðabók Björns Halldórssonar, þá er hann dvaldist á Islandi (1813-15). Hefur Rask leitað aðstoðar Hallgríms í þessu efni og verið orðinn langeygur eftir lil- lagi hans, slíkur kappsmaður sem hann var. Ég birti hér drjúgan kafla úr þessu bréfi Hallgríms, því að hann lýsir þar mjög vel þessu viðfangsefni sínu: „Þitt kærkomið tilskrif, hvört ég hér með skyldugast þakka, ásamt þar með fylgj- andi 2ur bókum, hefi ég skilvíslega meðtekið. Þú segir mér, að Rask meðal annars hafi útgefið í Svíaríki þá prósaísku Eddu upp á kritískan máta meðhöndlaða. Hvað gizk- arðu á, aðeitt exemplar af henni á skrifpappír mundi kosta í dönskum peningum. Ég þyrfti nauðsynlega að fá mér hana eftirleiðis, því ég hefi verið af og til í frítímum mínum að berjast við að útleggja vísurnar í Skáldu, en mitt skrifaða exemplar, sem vantar allan orðamun, er ekki svo áreiðanlegt sem skyldi. Við orðabók Síra Björns Halldórssonar hef ég líka verið að gjöra nýjan viðbætir, og hef ég 1) aukið hana um 10 arkir af nýjum orðum, talsháttum og merkingum, sem brúkast í daglegu tali. Þetta er í vissu tilliti fyrir aungvan hægra en þann, sem við skólann er, hvar piltar eru samankomnir frá öllum fjórðungum landsins, og hefur reynslan sýnt mér, að í nágrannasveitum í sama fjórðungi er oft mikill orðamunur og mörg orð brúkuð í öðrum, sem óþekkt eru í hinum. En að mörg af þessum orðum megi vera góð og gömul, ímynda ég mér af því, að ég hefi síðan fundið ekki allfá af þeim í göml- um svenskum orðbókum og sýnishorni Ströms af mállýzku bænda á Suðurmæri. 2) Hefi ég gjört orðregistur með ýmsum sögum, sem vöntuðu indices, yfir orð og tals- hætti, sem Síra Björn Halldórsson vanta, og líka bætt við dæmum upp á merkingar hjá honum, sem skjaldan fyrir koma eða sem annaðhvort eru vafasamar eða rangar, og er nú þetta orðasafn vaxið til 30 arka. Ur hvörri sögu fyrir sig hefi ég gjört registur í réttri stafrófsröð með úlskýring á latínu og dönsku nema yfir þau orð, sem ég ekki skil til fullnustu. En ennþá hefi ég ekki gj ört generalregistur yfir öll þessi orð, því það er mín fyrirætlan, ef mér endist líf og kraftur, með sama móti að gegnumganga allar sögur, laga- og máldagabækur, samt það bezta, sem skrifað er á nýj ari íslenzku, og það 2 Konráð skrifar föður sínum frá Brekku 1. ágúst 1831 (Lbs. 1163 4to), og bendir það eindregið til að staðizt hafi ætlun hans í fyrrnefndu bréfi 11. des 1830. 1 Lbs. 342c fol.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.