Vísbending


Vísbending - 19.12.1994, Blaðsíða 24

Vísbending - 19.12.1994, Blaðsíða 24
Lifsstörf og skoðanir f jögurra áhrifa- og athafnamanna bókinni Áhrifamenn eftir Jónínu Michaelsdóttur segja fjórir menn af kynslóðinni sem fagnaði lýðveldi á Þingvöllum fyrir fimmtíu árum frá störfum sínum og lífshlaupi. Þeir tala tæpitungulaust um kosti og lesti íslensks samfélags fyrr og nú og lýsa skoðunum sínum á eftirminnilegan hátt. Guðmundur Guðmundsson, útgerðarmaður og fyrrum skipstjóri á Isafirði gerir út aflaskipið Guðbjörgu ÍS 46 eða „Gugguna". Haraldur Sveinsson er framkvæmda -stjóri Árvakurs sem gefur út blað allra landsmanna, Morgunblaðið. Jónas H. Haralz var efnahagslegur ráðgjafi ríkisstjórna, bæði á hægri og vinstri væng stjórnmálanna áður en hann varð bankastjóri Landsbankans. Vilhjálmur Jónsson var fram- kvæmdastjóri Olíufélagsins hf. í þrjátíu og tvö ár og rak fyrirtækið allan þann tíma með hagnaði. Ævintýraleg viðskiptasaga Pálmi í Hagkaup var skag- firskur bóndasonur og Iögfræðingur að mennt, en kaupmaður að atvinnu og ástríðu. Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur nú skráð viðskiptasögu Pálma. Hún er ævintýri líkust frá því er hann hóf verslun í gömlu fjósi við Eskihlíð árið 1959 þar til hann lést en þá var fyrirtæki hans orðið eitt hið stærsta á landinu. Lífsstarf Pálma ein kenndist meðal annars af lang- vinnum átökum við einokunaröfl og sérhagsmunasamtök, sem stóðu t vegi fyrir frumkvöðulsstarfi Pálma, sem var að bjóða góða vöru á lágu verði. FRAMTÍÐARSÝN HF. Sími 91 628780

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.