Vísbending - 30.01.1998, Blaðsíða 1
V
V i k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
30. janúar 1998
4. tölublað
16. árgangur
Verkfall blasir nú við meðal sjó-
manna. Að venju takast andstæð-
arfylkingar á í fjölmiðlum og eng-
in lausn virðist í sjónmáli. Deilan virðist
vera tvíþætt. Annars vegar er deilt um
verð á afla og hins vegar fara vélstjórar
fram á aukinn skiptahlut á ákveðnum teg-
undurn skipa. Deilur um verð á afla eru
ekkert nýnæmi. Svipaðar deilur hafa átt
sér stað meira og minna alla öldina. Gripið
hefur verið til ýmissa ráða, t.d. muna
margir eftir verðlagsráði sj á varú tvegsins.
Hér á eftir verður velt upp nokkrum flöt-
um á þessu máli.
Allur fiskur á markað
Ein helsta krafa sjómanna síðustu árin
hefur verið sú að allur fiskur verði
seldur á fiskmarkaði. Frá þeirra sjónar-
hóli er þessi krafa sanngjörn því að þeir
vilja að verð á afla ráðist í viðskiptum
þarsemjafnræði ermeð aðilum. Hlulur
þeirra ræðst af því verði sem greiit er
fyrir aila og þeir gagnrýna þegar fyrir-
tæki á fiskvinnslu og skip og semur um
verð afurða við sjálft sig. Þessi krafahefur
hlotið mikið fylgi meðal sjómanna allar
götur frá því að fiskmarkaðir tóku til
starfa. Nú er talið að tæplega 30% al' botn-
fiskafla fari um fiskmarkaði. V erð annarra
afurða ræðst af samningum sem ekki er
víst að taki tillit til verðs á fiskmörkuðum.
s
Utgerðarmenn ósammála
Utgerðarmenn sjá nokkra vankanta á
því fyjirkomulagi að allur fiskur fari
á markað. I fyrsta lagi væri með því verið
að þvinga þá sem eiga vinnslu og skip að
skipta við aðra en sjálfa sig og þá réðu
þeirekki nýtingu og stýringu þeirra tækja
sem þeir hefðu yfir að ráða. Einnig má
ætla að þeir telji að aðilar í stöðugum
viðskiptum geti samið um betra verð en
það sem er ríkjandi á markaði vegna þess
hagræðis sem hvor hefur af hinum. Bent
hefur verið á að ekki sé víst að markaðs-
verð verði rétt t.d. á litlum stöðum þar
sem aðeins einn kaupandi er fyrir hendi.
Þetta á einnig við um einstakar tegundir,
t.d. loðnu þar sem vertíð stendur tiltölu-
lega stutt og kaupendur eru fáir. Það er
A markað?
einnig augljóst að erfitt er að setja fisk á
markað úr skipum sem fullvinna aflann
um borð. Að síðustu má nefna landfræði-
legt vandamál. A verð á markaði að mið-
ast við fisk úli á miðum eða í höfn? Ef
miða skal við höfn þá myndi bætast við
flutningskostnaður sem skekkir myndina
verulega. Ef miðað er við að afli sé seldur
þegar hann er enn um borð um skipi úti
á miðum þá væru ráðin tekin af útgerðinni
varðandi rekstur skipanna.
Mismunandi útfærslur
Ekki er gott að sjá fyrir sér útfærslu á
fiskmörkuðum sem myndi sætta öll
sjónarmið. Hér fyrir neðan ertjallað um
þrjá möguleika og taldir fram helstu kostir
og gallar þeirra.
Miðlœgur markaður
Hægt væri að hugsa sér að einn mark-
aður væri með fiskafurðir, t.d. svip-
aður Verðbréfaþingi Islands. Fiskseljend-
urog fiskkaupendurgætu sett fram tilboð
og viðskipti yrðu þar sem verð og magn
mættust. Gel'a yrði upplýsingar um lönd-
unarstað og löndunartíma svo að viðkom-
andi aðilar gætu áttað sig á áhrifum flutn-
ingskostnaðar. Hugsanlega yrði til stétt
miðlara sem sæi um viðskipli.
Kostir:
Verðmyndun við bestu skilyrði væri
marktæk vegna fjölda aðila á markaði.
Yfirsýn yfir tilboð og markaðsaðstæður
væri góð. Eftirlit með viðskiptaháttum
væri einfaldara.
Gallar:
Sennilegt er að víða urn landið myndu
verða lil nokkurs konar pollar þar sem
verð yrði svipað en ekki endilega áþekkt
verði í næsta polli. Þetta leysirekki vanda-
mál eins og þegar aðeins einn raunveru-
legur kaupandi er hugsanlegur. Ef t.d.
skip tilkynnti að það ætlaði að landa 200
tonnum af þorski á Vopnafirði á snjó-
þungum vetri þá er ósennilegt að kaup-
endur utan þess staðar hefðu áhuga
á viðskiptum vegna kostnaðar við
flutning og hættu á ófærð. Einnig
gæti komist á óformlegt samkomu-
lag milli fiskvinnslustöðva um að
kaupa ekki fisk frá nágrannabyggð-
arlögum og þar með væri markaðshug-
sjónin horfin.
Dreifður markaður
Þettafyrirkomulag varfyrirhendi þegar
starfræktirvorusérstakirfiskmarkað-
ir víða um land án innbyrðis tengsla.
Kostir:
Verðmyndun tæki mið af aðstæðum á
hverjum stað.
Gallar:
Ekki yrði til „eitt“ fiskverð fyrir hverja
legund. Afbrigðileg verðmyndun gæti átl
sér stað á einstökum svæðum ef kaup-
endur eru mjög sérhæfðir. Eftirlit yrði
væntanlega ekki einfalt.
Blandaður markaður
Dreifðir markaðir víða um land með
samtengingu eða fullkomnu upplýs-
ingastreymi sín á milli. Þetta fyrirkomu-
lag er að nokkru leyti komið á hér á landi.
Kostir:
Upplýsingastreymi tryggirað kaupendur
geta gert sér raunhæfa grein fyrir ástandi
á markaði og hafa þann valkost að versla
utaneigin markaðarefþeireru ósáttir við
það verð sem býðst heima. Eftirlit ætti að
geta verið virkl.
Gallar:
Verð á afskekktum mörkuðum gæti bjag-
ast vegna flulningskostnaðar eða sér-
hæfni kaupenda.
Krafa sjómanna um að f Ragnar Þ. Guðgeirsson ^ Þóti atvinnuleysi sé ekki < Síðasta ár var okkur Ís-N
1 allur afli fari á fiskmarkað F kynnir vinnuaðferðir við ■Z mikið hérlendis þá vaknar / ' 1 lendingum ciöfult ísiávar-
X er skoðuð. Hver eru rökin Á Cj endurskoðun upplýsinga- _J spurningumþaðhvortþað “f alla og verð var hagstætt á
með og á móti? kerfa. sé ofmetið. afúrðum. J