Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1969, Blaðsíða 3

Frjáls verslun - 01.10.1969, Blaðsíða 3
Frá ritstjórn FEJÁLS VERZLUN 28. árg., 10. tbl.,-1969 Mánaðarlegt tímarit um viðskipta- og efnahags- mál — stofnað 1939 Gefið út i samvinnu við samtök verzlunar- og athafnamanna Otgáfu annast: Verzlunarútgáfan h.f. Skrifstofa Suðurlands- braut 12 Símar: 82300 — 82302 Pósthólf 1193 Ritstjóri og framkv.stj.: Jóhann Briem Auglýsingast jóri: Jón Rafnar Jónsson Sölustjóri: Þorsteinn Garðarsson Setning og prentun: Féiagsprentsmiðjan Myndamót: Prentmyndagerðin hf. Bókband: Félagsprentsmiðjan Kápa og útlitsteiknun: Auglýsingastofan Argus Verð í áskrift kr. 65,00 á mánuði. Kr. 80,00 í lausasölu. öll réttindi áskilin. Endurprentun að hluta eða öllu leyti óheimil, nema til komi sérstakt leyfi útgefanda. AUGLÝSINGAR Á ÍSLANDI Með þessu riti um auglýsingamálefni vill Frjáls verzlun gefa lesendum sínum ýmsan fróðleik, sem hingað til hefur ekki legið á lausu. Sáralitið hefur verið skrifað um auglýsingar hérlendis, og mjög fáar kannanir verið gerðar á þessn sviði. Þrátt fyrir frumbýlingshátt okkar, hvað snertir nú- tíma sölumennsku, eru margir að vakna lil vitundar um gildi auglýsinga, og um leið verður mönnum ljóst, að góðar auglýsingar verða vart til fyrir tilviljun. Með tilkomu sjónvarpsins hefur áhugi almennings á gerð og útfærslu auglýsinga stórum aukizt, og fyrirtæki leita nú i auknum mæli aðstoðar sérmenntaðs fólks við gerð auglýsinga. 1 þessu hefti eru kynntir ýmsir kunnáttumenn á þessu sviði og skoðanir þeirra á því, hvernig eigi að auglýsa, hvar eigi að auglýsa, og síðast en ekki sízt, hvernig eigi að verja auglýsingafé skynsamlega. Ennfremur er vitnað til ýmissa erlendra kunnáttumanna, gefnar upp- lýsingar um margs konar verð og getið ýmissa fyrir- tækja og aðilja, sem annast auglýsingagerð eða snerla þennan vettvang á einn eða annan hátt. Þá eru ítar- legar og fróðlegar hringborðsumræður um auglýsingar, gildi þeirra og áhrif. Að sjálfsögðu svarar þetta rit ekki öllum spurningum um þetta málefni, en við væntum þess, að framkvæmda- menn og almenningur liafi af ritinu bæði gagn og ánægju, og að það verði álitsauki fyrir Frjálsa verzlun, sem mun á næsta ári gera ýmsum málaflokkum á sviði verzlunar og þjóðlífs verulega góð skil, þannig að hvert heí li færi lesendum fróðleik og fréttir, sem annars stað- ar er ekki að hafa. Með þessu lölublaði er einnig hrotið í hlað, hvaðsnert- ir ytra útlit blaðsins, og eru þær breytingar verk aug- lýsingastofunnar Argus. Sigurjón Jóhannsson, ritstjórn- arfulltrúi, hefur tekið mest af efninu saman. Frjáls verzlun þakkar þeim, sem unnið hafa að þessu blaði og væntir jæss, að lesendur kunni vel að meta nýtt útlit og nýja stefnu, sem mun vcrða fullmótuð í næstu blöðum. 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.