Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1981, Side 49

Frjáls verslun - 01.04.1981, Side 49
Vilhjálmur Þ. Gíslason: Verslunarskólinn og V. R. Milli Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og Verzlunarskólans hefur lengi verið vinátta og sam- starf. Stofnun skólans hafði verið rædd ,,ár eftir ár“ í Verzlunar- mannafélaginu, segir í fyrstu skóla- skýrslunni. Nefnd var sett í málið í félaginu og fyrir atbeina hennar var haldinn sameiginlegur fundur Verzlunarmannafélagsins og Kaupmannafélagsins. Sú nefnd kom sér saman um tillögur til framkvæmda og upp úr þessu var Verzlunarskólinn stofnaður. ,,Það var öllum þá Ijóst orðiö, að svo fjöl- menn stétt manna sem verzlunar- stétt landsins, þyrfti að eiga kost á að fá sérmenntun sína á sérstakri, fastri stofnun, og að landssjóði bæri að styrkja slíka stofnun eins ríkulega að sínu leyti og aðrar sér- fræðistofnanir fyrir atvinnurek- endur, svo sem skipstjórnarmenn, iðnaðarmenn o. s. frv. Ferðir til að sækja verzlunarskóla erlendis yrðu ávallt svo dýrar, að það gæti aldrei orðið nema örfárra manna færi að leita þeirra úrræða. Auk þess hafa slíkar utanfarir á mjög ungum aldri reynzt íslenzkum námsmönnum misjafnlega hollar; og loks þótti rétt vera, að í hverju landi væri tekið sérstakt tillit til hags og ástands þar við kennsl- una." Þettaertekið úrgreinargerð þeirra manna sem stofnuðu skól- ann. Stofnár hans er talið 1905. Þá byrjaði hann að starfa á þeim grundvelli, sem síðan hefur verið byggt á. Verzlunarkennslan er samt eldri og þá kennslu má telja beinan undanfara Verzlunarskól- ans, ef ekki þátt í sögu skólans sjálfs. Kennslan var þá að vísu óregluleg og stopul, en námskeið- in, sem þá voru haldin, virðast, að minnsta kosti öðru hvoru, beinlín- is hafa verið kölluð Verzlunarskóli. Áreiðanlegar og nægilega ítarleg- ar upplýsingar um þessa kennslu hafa ekki enn fengist, en vitað er um ýmsa ágæta menn, sem nutu þessarar kennslu. Verzlunarskólinn hlaut styrk frá alþingi undir eins 1905, en tók annars skólagjald af nemendum, fyrst 10 kr. á ári, en svo 20 kr. Annars segir svo í fyrstu skóla- Húslft Vinamlnnl I Mjóstræti, þar sem Verzlunarskólinn nafoi aosetur fyrsta áriö. 49

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.