Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1996, Síða 21

Frjáls verslun - 01.01.1996, Síða 21
Könnun Frjálsrar verslunar: Ferðbúin fjölskylda horfir yfir hafið og er á leið úr landi. í könnuninni var spurt: „Myndir þú flytja til útlanda ef þér byðist starf þar?“ Meirihluti ungs fólks svaraði: „Já“. Og alls þriðjungur aðspurðra í könnuninni var tilbúinn til að kveðja fósturjörðina. Sp: Myndir þú flytja til útlanda ef þér byðist starf þar? 17-30 ára 31-45 ára 46-60 ára Yfir 60 ára Alls Já Nei Óvíst 60% 32% 8% 38% 45% 17% 23% 67% 10% 6% 84% 10% 34% 54% 12% eirihluti ungs fólks flytti til útlanda byðist starf þar. Þetta er niðurstaða skoð- anakönnunar Frjálsrar verslunar um það hvort þjóðin sé á leið úr landi. Og þjóðin virðist svo sannarlega ekki bundin átthagafjötrum því þriðjungur aðspurðra í könnuninni var reiðu- búinn til að kveðja fósturjörðina. Spurt var: „Myndir þú flytja til út- landa ef þér byðist starf þar?“ Þegar svörin eru könnuð eftir aldri aðspurðra kemur í ljós að 60%, fólks 30 ára og yngra, eru tilbúin að halda til starfa í útlöndum. Meira að segja 38% þeirra, sem eru á aldrinum 31 til 45 ára, segjast myndu flytja úr landi og tæplega fjórðungur fólks á aldrinum 46 til 60 ára. Það er ekki fyrr en komið er fram yfir sextugt sem aðeins 6% vildu flytja. Spurningunni var ekki fylgt eftir með því að spyrja hvers vegna menn vildu flytja. Ymsir myndu eflaust nefna ævintýraþrá, aðrir ósk um betri h'fskjör. Sumir tóku fram að þeir kæmu að líkindum heim eftir að hafa reynt fyrir sér erlendis, en á öðrum var að heyra að þeir myndu fara og ekki snúa aftur. KARLAR FÚSARIEN KONUR Karlar voru fúsari að flytja en kon- ur en 38% karla svöruðu spurning- unni játandi en aðeins 30% kvenna. Það var fremur jafnt hlutfall alls stað- ar af landinu nema af Austurlandi þar sem aðeins 5% sögðust vilja flytja. Það er því ljóst að það er engin tilviljun að á síðasta ári voru það fleiri sem fluttu úr landinu en til þess. At- vinnuleysi og erfið lífskjör hafa örugg- lega mikið að segja því ekki er hægt að sjá að glanslíf dragi menn í fámenn fiskiþorp í Danmörku sem íslendingar hafa sótt í að undanförnu. 21

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.