Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1996, Blaðsíða 64

Frjáls verslun - 01.07.1996, Blaðsíða 64
TCHA D ahqola T.d. liggur nú fyrir samþykkt áætlun um APEC, Asian Pasific Economic Cooperation, sem verður 18 meðlima svæði við Kyrrahafið og þeirra meðal eru Bandaríkin, Kanada, Japan, Astralía og Kína. Um helmingur heimsverslunarinnar er á þessu svæði. Hættan við svæðisbundnu samkomulögin liggur í því að sérstak- ar reglur verði á hverju svæði fyrir sig þannig að erfitt verði að stunda við- skipti á milli svæða. Það veldur áhyggjum að svo virðist sem aðilar samkomulagsins hafi við fullgildingu samninganna haft það að leiðarljósi að opna markaði sína sem minnst og nýtt allar glufur, sem samningamir buðu upp á, til þess. Þetta á sérstaklega við um landbún- aðarsamninginn og samninginn um vefnaðarvörur og fatnað. Að sjálfsögðu veltur framtíð Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar á áhuga og frumkvæði meðlimanna og þá sér- staklega stóru aðilanna. Stærstu aðil- arnar og þeir áhrifamestu eru í þess- ari röð: Bandaríkin, ESB og Japan. Það er skemmst frá því að segja að Japan hefur ekki haft sig mikið í frammi í alþjóðlegum samningum og þó svo að þeir hafi gert sig meira gildandi á seinni árum og þá sérstak- lega í Asíu þá bendir fátt til þess að þeir muni láta að sér kveða á vett- vangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinn- ar. Sérstaklega þar sem að þeir hafa ekki áhuga á auknu frelsi í landbúnað- arviðskiptum en hjá því verður varla ÍSLAND TAKI SIG Á 1. Það er sláandi að íslendingar geti hækkað tolla á 35% af inn- flutningi í gegnum WTO án þess að spyrja kóng eða prest. 2. Með WTO hafa tollar komið í stað innflutningsbanna. 3. Enginn íslenskur aðili hefur í raun skoðað sóknarfærin sem tengjast WTO. 4. Tollfrelsi er minna á íslandi en annars staðar. 5. Innan OECD- ríkja eru íslend- ingar með minnst allra af bundnum hámarkstollum. Það gefur íslendingum færi á fleiri ofurtollum en öðrum þjóðum. 6. Tiltölulega stutt er í næsta landbúnaðarsamning WTO. Hér á landi hefur engin um- ræða farið fram um hvaða stefnu eigi að marka. Slík um- ræða er þó nauðsynleg. 7. í umfjöllun OECD er hreinlega sagt að tollbindingar séu í góðu lagi hjá öllum nema íslending- um. komist í næstu viðskiptalotum. Sömu sögu má segja um ESB en sú stofnun og fyrirrennarar hennar hafa ekki verið miklir talsmenn þess að auka fríverslun innan raða GATT/Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar og í undan- förnum viðskiptalotum verið sá aðili sem hefur komið í veg fyrir að af sam- komulagi yrði eða reynt að draga úr áhrifum samninganna. A þetta sér- staklega við um samninga um land- búnaðarafurðir. Ekki er þó sanngimi gætt ef því er haldið fram að ESB og fyrirrennarar þess hafi verið á móti frelsi á öllum sviðum en stofnunin hef- ur ekki verið frumkvöðull og það er ekki líklegt að breyting verði þar á þar sem ESB hefur mestan áhuga á við- skiptalegum og pólitískum samruna innan eigin raða. Framtíð Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar veltur því að stærstum hluta á áhuga Bandaríkja- manna og hafa flestar viðskiptalotur verið að þeirra frumkvæði. Það fer þó mjög eftir því hverjir eru við stjóm- völinn í landinu. Frá stríðslokum hef- ur afstaða stóru flokkanna breyst nokkuð til fríverslunar en frá stríðs- lokum hafa repúblíkanar verið harðari talsmenn fríverslunar en umræðan í þeim flokki sem og í bandarískum stjórnmálum undanfarið hefur ekki verið jákvæð í garð aukins frelsis en skjótt skipast veður í lofti. 64
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.