Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1997, Qupperneq 64

Frjáls verslun - 01.11.1997, Qupperneq 64
VEITINGAHÚS FÁAR NÝJUNGAR Ekki var hægt aö greina margar nýjungar í íslenskum veitingahúsarekstri á árinu. Mikilvægasta breytingin sýnist þó sú að íslenskir matreiðslumenn eru stöðugt að verða betri fagmenn ■ og áhugi á grænmetisréttum hefur stóraukist. Hótel Holt. heima og erlendis. Kennslan í hinum nýja og glæsilega Hótel- og matvælaskóla er ekki síðri en í ná- grannalöndum okkar og jafnvel betri. Fagleg meðvitund hefur aukist mjög svo innan stéttarinnar. Það er því sem betur fer orðið sjaldgæft að maður fái vondan mat á veitingahúsum, en mun oftar hreint og beint ljómandi góðan mat. Islenskir matreiðslumenn eru farn- ir að gera meiri kröfur um gæði hráefn- isins, og einnig hefur úrval ýmissa vöru- tegunda stóraukist hér á landi. Ef hægt er að tala um einhver utan- aðkomandi áhrif á íslensku veitingahús- in þá eru það helst ítölsk áhrif — ítalska sveitaeldhúsið hefur raunar verið í tísku á Norðurlöndunum og í Bretlandi. Þá eru íslenskir matreiðslumenn farnir að nota mun meira grænmeti en áður var og æ fleiri matreiðslumenn eru farnir að sérhæfa sig í gerð eftirrétta. Hins vegar virðast áhrif frá Asíu ekki eins áberandi og þau voru, einkum árið 1995 og einnig árið 1996, þó að í minni mæli væri. Pasta virðist ekki vera eins mikið í tísku og verið hefur, því stöðugt fækkar pastaréttunum á matseðlunum. Ef hægt er að tala um vinsældir hráefn- is þá er saltfiskurinn stöðugt að verða vin- sælli, vinsældir hvít- lauksins halda áfram að aukast og æ fleiri kjúklingaréttir sjást nú á matseðlum veitingahús- anna. GÓÐU VEITINGA- HÚSUNUM FJÖLGAR Eins og undanfarin ár eru Hótel Holt og Grillið bestu veitingahús lands- ins. Nú hefur hins vegar sú breyting orðið, að Perlan er komin við hlið þessara veitingahúsa. Italska veitingahúsið La Primavera er traust og gott ítalskt veitingahús. Smurbrauðsstofan Jóm- frúin er ein sú besta á Norðurlöndunum og í Evrópu. Rúnar Marvinsson, Yið Tjörnina, er eftir sem áður byltingamaðurinn í ís- lenska veitingahúsageiran- um. Yið Tjörnina og Þrír Frakkar hjá Úlfari ei góð fiskveitingahús og hafa algjöra sérstöðu hér á landi. Eldhúsið á Hótel Borg er at- hyglisvert, en þar gætir áhrifa frá Kaliforníu. Oð- insvé er traustur staður sem sjaldan eða aldrei bregst. Hins vegar ríkir mikil stöðnun innan Asíu- veitingahúsanna. Hér vantar hágæða kín- verskt veitingahús. Kinveijarnir eru hins vegar að verða mjög stórir á skyndibitamarkaðnum. Hinar alþjóðlegu pizzukeðjur, Dom- ino's og Pizza Hut, virðast stöðugt vera að styrkja sig í sessi. Þýðingarmesta þróunin í íslensku veitingahúsaflórunni er þó sú að áhugi á grænmetisréttum hefur stóraukist. Vin- sælasti og skemmtilegasti grænmetis- staðurinn er Grænn kostur. Á skömm- um tíma hafa opnað tveir nýir veitinga- staðir sem hafa grænmeti á boðstóln- um. I Reykjavík eru því starfandi ijögur grænmetisvetingahús. Það, sem reyk- vískir sælkerar bíða eftir með hvað mestri eftirvæntingu, er að meistari Francois Fons opni veitingastað. Francois er án efa einn reyndast og besti matreiðslumaður sem starfandi er á Islandi í dag. Við bíðum spennt. EN GESTIRNIR? Þrátt fyrir að veitingahúsum ijölgi stöðugt virðist þeim ekkert fjölga sem fara út að borða. Reykvíkingar virðast venja komur sínar mun oftar á kafiihús. Sumir veitingamenn telja jafnvel að gestum hafi írekar fækkað og þeir eyði jafnvel minna fé en t.d. 1995, þrátt fyrir góðærið. Þá eru gestirnir vandlátari, gera meiri kröfur. Það má því segja að íslenskum gestum veitinga- húsanna hafi farið fram. En hvað er þá í tísku? Jú, því er auðsvarað. Áhugi á léttum vínum hefur stóraukist, það er jafnvel haft á orði að við hvert ijögurra manna borð sé í það minnsta einn vínsérffæðingur. I stuttu máli má því segja að Reykvíkingar fari sjaldnar út að borða á kvöldin en árið 1996, en borði oft- ar úti í hádeginu. Hinn dæmigerði gestur snæðir nú mun meira af grænmeti en hann gerði áður og hann velur vínið með matnum af meiri kost- gæfni en hann gerði árið 1996. Veitinga- húsaárið 1997 hefur því verið ár gjald- þrota, en góðra matreiðslumanna. 33 Byltingamaðurinn í íslenska veitíngahúsageir- anum, Rúnar Marvinsson. 64
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.