Fregnir - 01.12.1991, Qupperneq 4

Fregnir - 01.12.1991, Qupperneq 4
-4- NORDINFO RÁÐSTEFNAÁ HANK0, NORECI, 12.15. ÁGÚST 1991 Dagana 12.-15. ágúst var haldin í Noregi ráðstefna/námstefna undir heltinu: NORDINFO-PROSJEKTET KLASSIFIKASJON OG INDEKSERING. Fór hún fram á eynni Hanko á Oslóarfirði og var efnið, eins og nafnið ber með sér, einkum flokkun og lyklun. Fjöldi þátttakenda takmarkaðist við 4-5 frá hverju landi. Af Islands hálfu sóttu ráðstefnuna fulltrúi Þjónustumiðstöðvar bókasafna, Dögg Hringsdóttir, formaður flokkunarnefndar, Guðrún Karlsdóttir, Háskólabókasafni, formaður skráningarnefndar, Hildur G. Eyþórsdóttir, Landsbókasafni, og Sigbergur Friðriksson, Háskólabókasafni. Forsaga þessarar ráðstefnu er í stuttu máli sú, að um nokkurt skeið hefur verið unnið að könnun umfangs og aðferða við efnisgreiningu á Norðurlöndum. í þessu skyni voru sendir út spumingalistar til þjóðbókasafna og nokkurra annarra valinna safna í hverju landi auk þjónustumiðstöðva. Spurt var meðal annars um flokkunarkerfi, notkun efnisorðaskráa, ennfremur um leitarmöguleika í tölvustýrðum gagnagrunnum og ýmislegt fleira. Norski bókavarða- og upplýsingafræðiháskólinn (Statens bibliotek-og informasjonshogskole) sá um framkvæmdina og gaf síðan út í júní síðastliðnum allþykka skýrslu er nefnist: BRODD RAPPORT : klassifikasjon og indeksering i Norden, Fase 1 : kartlegging av praksis. Skýrslan dregur fram margvíslegt samræmi og ósamræmi milli bæði safna, safnategunda og landa og var um margt af þvi vitað áður, t.d. mismunandi flokkunarkerfi, mismunandi afbrigði sama flokkunarkerfis, mismunandi áherslur og hefð í lyklun eftir löndum og stofnunum. í könnuninni er þetta nú sett fram í töflum og heildarniðurstöður svo kynntar í fáum orðum og tek ég þær hér orðrétt upp: "Undersokelsen viser at klassifikasjonspraksis ikke er ens hverken innen ett land eller innen en type bibliotek. Undersokelsen viser ogsá at det heller ikke er ens praksis innen ett og samme bibliotek nár biblioteket er av en viss storrelse. Et annet resultat af undersokelsen er at bruken av kontrollerte emneord ikke er utbredt. Blant de vokabularer som brukes finner man báde internasjonale, sásom MESH og LCSH, og helt lokalt utviklede sá som Topografisk katalog ved Universitetet i Trondhjem." Fýrsta dag ráðstefnunnar kynnti Liv Holm frá Norska bókavarða- og upplýsingafræðiháskólanum efni skýrslunnar og spunnust af þvi nokkrar umræður.

x

Fregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.