Alþýðublaðið - 13.12.1969, Síða 4
WWWWWWWWWWWWWWWWWW»WWWMWWWWWmMiWW<MWWWWWWWWmWWWWWV>WW>WWtWWMWWWWWWWWWMWWWWWVWWWWWWWWWW^
20 Alþýðublaðið 13. desember 1969
j3œkur jiesscir jásl hj á bóksöluni og beirif frá úlgáfuuHt
BÓKAÚTGÁFA GUÐJÓNSÓ
Hallveigarstíg 6-8 Reykjavík Sími 15434
Kári Tryggvason;
Sunnan jökla
<ljóð).
ísafoldarprentsmiðja.
84 bls.
ÞETTA er þriðja bókin, sem
Kári Tryggvason yrkir full-
orðnum, en auk þeirra hefur
hann margt ritað fyrir börn og
unglinga. Skáldið er þingeyskt
að ætt og uppruna, var lengi
bóndi í Víðikeri og kennari í
Bárðardal, en hefur nú um ára-
Kári Tryggvason.
skeið átt bólstað í Hveragerði.
Dvölin sunnan jökla eykur
Kára Tryggvasyni lífsreynslu,
svo og kynni hans af framandi.
löndum og þjóðum handan við.
sæinn. Endurminningin merlar
honum átthagana, svo að hann
skynjar þá í nýju ljósi. Ferða-
lögin erlendis hafa og gert
hann að heimsborgara í skáld-
skap sínum. Slíkt verður oft
næmgeðja manni þroskavænleg
opinberun. Kári hefur vaxið
sem skáld af þessum örlögum
sínum. Sunnan jökla er drjúg-
um meira fagnaðarefni en Yíir
Ódáðahraun og Hörpur þar
sungu. Kvæðin eru listrænni í
heild sinni og sum miklu
snjallari.
Sunnan jökla skiptist í þrjá-
flokka, en meginatriði.vinnu-
bragðanna reynast tvenns kon-
ar. Annars vegar eru rímuð
kvæði hefðbundinnar aðferðar,
en hins vegar órímuð. Ný-
breytni skáldsins að yrkja ó-
rímað gefst Kára ágætlega. Ó-
rímuðu Ijóðin bera af að hug-
kvæmni og smekkvísi. Þau
forða því, að höfuðstafir og
stuðiar einskorði orðavalið og
kveðskapinn, en við því er
hætt, þegar annar eins hag-
yrðingur og Kári Tryggvason
rímar.
Gallar rímuðu ljóðanna fel-
ast einkum í byggingarlagi
þeirra. Kári sér ýmsar sýnir og
er myndrænt skáld, en honum
tekst ekki nærri allfaf að raða
þeim sýnum í túlkuninni þann-
ig, að úr verði nægilega sam-
felld heild. Þó munar stundum
mjóu. Svo er um Fjallgöngu*
mann. Það kvæði myndi sýnu
betra, ef öðru erindinu væri
sleppt. Þögull ég geng hleðst
og verr en skyldi. Mér dettur i
hug,, að fyrsta erindi þess ætti
að vera síðast. Heimkoman i
Djúpadal virðist þar bersýni-
lega aðalatriði, er nýtur sín
ólíkt betur í niðurlagi en upp-
hafi. Bezt rímuðu ljóðanna
finnst mér Þjóðsaga. Samlík-
ingin um hindina í skóginum
gæti raunar verið frá Drach-
mann eða Davíð, en það skiptir
varla máli. Úrslitum ræður, að
hér kemst skemmtileg mynd
prýðisvel á framfæri við i.es-
endur og magnar kvæðið ríku
skáldskapargildi.
Órímuðu ljóðin standa ótví-
rætt betur fyrir sínu, þó að
byggingarlagi sumra þeirra sé
ábótavant. Hórfið barn nær ein-
hvern veginn ekki tilgangi sín-
um, enda þótt hugmyndin sé
áhrifarík í hófsamri. varfærni.
Kannski er röðunin hæpin.
Kæmi hér ekki til greina að
láta síðasta erindið vera fyrst,
miðerindið á sínum stað og
fyrsta erindið síðast? Þá væri
samlíkingin um leikföngin orð-
in þungamiðja. Slíkri aðferð
beitir Kári í Vetrarnótt, Mol-
búum og Feluleik með þeim
árangri, að kvæðin sameina
myndræna smelckvísi og kunn-
áttusamt formskyn. Þau !jóð
ætla ég að skeri úr um, að
Kári Tryggvason sé listrænt
skáld, þegar orðin rugla ekki
skynjunina. Hann má vara sig
á málgleði sinni og hagmælsku.
Honum er ekki nóg að komast
suður jökla og út í heim, þó
að hann hafi farið þangað
mikils erindis. — Reynslan
ijær honum listrænni yrkis-
efni en norðan fjalla, en hún
gerist ekki nema hálfur sigur,
ef vinnubrögðin fara í handa-
skolum. Kári er þvílíkt skáld,
að maður hlýtur að gera til
haús strangar kröfur.
Þeim svarar hann að minni
hyggju ágætlega í Þjóðsögu:
Við gengum til skógar og
glóey skein
svo glatt og hlýtt.
Framh. á bls. 25.
bækur
Sunnan jökla og
úti í heimi
GUÐMUNDUR DANÍELSSON
DUNAR Á EYRUM
ÖLFUSÁ - SOG
Alhliða lýsing á þessum tveimur ólíku straum-
vötnum. Saga samgangna fyrr og nú, ferjurnari
brýrnar, slysfarir og þjóðtrú, auk stangarveiði..
» Rætt við: Jörund Brynjólfsson, Tómas Guð-
mundsson, Adam Hoffritz, Ósvald Knudsen o.fl.
» Annað efni ma.: Gallharður að bjarga mér,
Úr fórum Árna í Alviðru og sögur af Nes-Gísla-,
Hrakfallasögur, Skrímslið, Flóðin, Loftárás o.fíw
JStefáft /Jóhssoh
Bók um sraldurinn að fiska á siöngr
«Sf niennina, sem knnna það
ROÐSKINNA er fyrsta bók sinnar tegundar á
íslenzku — Stangarveiði, veiðimannasögur
■Á: Skrifuð fyrir þá geysimörgu, sem eru for-
fallnir í stangarveiði eða eru líklegir til að fá
þessa bráðskemmtilegu „bakteríu.“
'A' 47 litmyndir af laxa- og silungaflugum
Hedevig Winther
3^S/j/'/'s//ss/'és//'/s<isi'
/'p ///'S'-i Ai á ///'//$
Heillandi ástarsaga, slungin töfrum góðlátlegrar
glettni og gamansemi með ívafi harmsögulegra
atburða, sem leiðir af gjálífi ungs aðalsmanns.
Bók unga fólksins á hverjum tíma, tildurslaus
og sannfærandi. * Fylgist með unga manninum
á torsóttri leið hans til lífshamingju
BYSSUR og SKOTFIMI
Eftir EGIL JÓNASSON STARDAL
Fyrsta bókin um skotfimi, byssur og veiðar
á íslenzku. Bókin er bráðnauðsynleg fyrir hinn
vana veiðimann sem byrjandann. Lesið í bókinni:
* Um sögu skotvopnanna.
* Hvernig á að skjóta á flugi.
* Hvernig á að hirða og hreinsa skotvopn.
* Hvernig á að stilla miðunartæki og sjónauka.
* Hvernig á að búa sig í veiðiferð um vetur.