Helgarpósturinn - 24.11.1994, Side 17
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FÓLK
17
ÞRÁINN BERTELSSON
Oft hefur Þráinn verið heitur en
aldrei sem núna. Hann er alveg buJI-
andi. Það er alveg sama hvað menn-
ingarvitarnir reyna að gera sig breiða
og eru eitthvað að pota í listrænt
gildi þáttanna „Sigla himinfley" —
Þráinn gefur þeim puttann því hann
veit hvar hjarta þjóðarinnar slær og
hefur nú dagbókarkönnun með ótrú-
legum áhorfstölum í höndunum sem
hann getur veifað framan í fúlistana í
menningarelítunni sem aldrei hafa
haft snefil af tilfinningu fyrir því hvað
það er sem Jón Jónson Islandus vill
sjá og heyra.
PRESTAR
Það er heitt að vera prestur. Klerk-
ar eru fyrirferðarmiklir í sögum fyrri
tíma. En það væri forvitnilegt að
geta séð með hvaða orðum prestar
dagsins í dag verða færðir á spjöld
sögunnar. Við erum að tala um
kappa á borð við herra Ólaf Skúla-
son! Séra Heimi Steinsson! Séra
Pálma Matthíasson (Michael Jackson
prestastéttarinnar)! Séra Solveigu
Láru! Og séra Gunnlaug Stefánsson!
Vá'mar. íurðulegt að enginn þeirra
hafi verið staðinn að því að segja við
þann naesta: „Hey boy! This town
isn't big enuf for the both of us."
JÓLASVEINNINN
Jólasveinninn er svona moðvolgur
núna. Hann á þó sjálfsagt eftir að
skjótast til og frá á hitakvarðanum í
nánustu framtíð. Þetta er umdeildur
faktor, flestir eru á því að hann, að
undirlagi kaupmanna, sé alltaf að
færa sig upp á skaftið og sé fyrr og
fyrr á ferðinni- Samkvæmt því ætti
hann að vera undir 0° en í Ijósi þess
að jólasveinninn á eftir að verða æ
fyrirferðarmeiri á næstunni þá er
hann heitari en kaldari núna.
SIGURÐUR SVEINSSON
Hver hefði getað ímyndað sér að
þessi ástsæli handboltamaður lenti
hérna megin 0 gráðunnar? Þessi
helsti djókari íþróttamanna? (Og eru
þeir þó margir snjallir í gríninu.)
Þessi kappi sem Samúel Örn Erlings-
son fær aldrei nógsamlega lofað og
hlær í annarri hverri setningu þegar
hann ber á góma? Já... Uhh, það er
kannski ekki Sigga Sveins að kenna
fremur en því að hugmyndasnauðir
auglýsingafrömuðir sjá hann alltaf
fyrir sér þegar þeir eru að láta sér
detta einhver brilljansinn í hug. Hvað
er maðurinn eiginlega í mörgum
auglýsingum núna?
HIPP-HOPP DERHÚfUR
Eitthvað sem enginn með sjálfs-
virðingu lætur sjá sig með þó að höf-
uðföt séu að öðru leyti allt of lítið til
brúks á íslandi. Og þeir sem snúa
derhúfunni öfugt með plastið á enn-
inu eru ekki hægt. Upphaflega kom
þetta til landsins vegna þess að
súkkulaðibrúnir Ameríkanar sem
rappa og segja: „Jó!“ báru þessi
pottlok og svo sem ekkert hægt að
agnúast út í æskulýðinn þó að það
beri á því nýjasta í Ameríku í tísku
hérlendis. En þá um stutta stund og
þeir sem eru enn að flagga þessu á
kolli sínum eru vel undir 0°.
AUGLYSINGALEIKIR
Lágkúra sem veður uppi í hinum
svokölluðu frjálsu fjölmiðlun: síma-
leikir, klippaútleikir, aulalega ein-
faldir spurningaleikir og Guð veit
hvað. fólki er lofað gulli og grænum
skógum taki það þátt, en það þarf
svo sem engan leiftrandi greindan
rýni til að sjá undirtextann sem er
svohljóðandi: Við erum með svo lé-
legt efni að við verðum að kaupa
ykkur til að hlusta/horfa eða lesa
okkur. Mikið af þessu er auðvitað
tengt óbeinum auglýsingum sem eru
kolólöglegar auk þess sem þetta er
helstefna: Ekki er þetta skemmtilegt
efni og þegar enginn sýnir lengur
áhuga þá hætta auglýsinganissarnir
að endingu að auglýsa. Alveg veru-
lega kalt item.
Hlíti Mogensen sem er án efa
fárra eftirsóttustu fyrirsceta ís
lands hefur starfað sem já
módel á Ítalíu undan-
farin tvö ár. Hún
er 22 ára og
sýnir sig á
þessm i
mytid i
fatiu'.di fráM
s: i VH
■ Linda Björg Arnadóttir, setn fetaði ífótspor I
9 ippíu Elísdóttur er hún tók þátt semfulltrúi ne
■ í fatahönnun í alþjóðulegu Smirnoff-keppninn
sýndifatnað sinn á Ömmu Lú á dögunum. Líkt
r og Filippía varð Linda Björg ífjórða sœti í alþjóða-
keppninni sem að þessu sinnifórfram í Dyflinni. Sér-
staka athygli vöktu frumlegir skartgripir sem eru unnir
úr ísmolum. Það má hins vegar leiða líkum að því að
l erfitt sé að bera þá inni á heitum skemmtistöðum. t
Ék. Hins vegar œttu þeir að njóta sín vel á skvís- M
unum þegar kveikt verður á jólatrénu á
Austurvelli. íslensk draugatíska
vœri líklegast rétta orðið yfir
hönnun Lindu. fsu
■
■
ÞAKKAGTORÐAR DAGAR
A CAFE LÆK DAGANA 24.11 - 27.11
1 hádeginu verður boðið uppá hlaðborð að
amerískum hætti
CAFÉLÆKUR
LÆKJARGÖTU 4, SÍMI 10100
KAFFIHÚS FJÖLSKYLDUNNAR
.J()|AII1,AI)IH)RI)
í H VOK.IM
KU. 1590,-
Í KVÖLDIN
KU. 1790,
A kvöldin og virka daga í hádeginu í Ingólfsstræti 1, simi 17776
Á HORNIBANKASTRÆTIS OG ÞINGHOLTSSTRÆTIS, SÍMI 62 73 35