Helgarpósturinn - 11.04.1996, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 11.04.1996, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR ±L APRÍL1996 Sjórnmál — hin hliðin Alþingi hefur komiö saman eftir páskahlé og ráögert er að Ijúka þingstörfum 15. maí. Nú eiga öll mál að vera komin í Ijós sem leggja á fram á þessu þingi. Þó telja starfsmenn Alþingis ekki loku fyrir þaö skotiö aö einhverjir þingmenn hafi mál uppi í erminni sem þeir reyni aö leggja fram. Nokkur stórmál bíöa afgreiðslu þingsins en Sæmundur Guðvinsson leit hins vegar á nokkur smærri mál sem ekki eru síður áhugaverð þegar grannt er skoðað. Til dæmis frumvarp um skráningu katta og eftirlit meö þeim og fyrirspurn um hve margir hádegisveröir eru framreiddir á dag í ríkisreknum mötuneytum og hvert sé meðalverð þeirra... Hjörleifur Guttormsson leggur fram frumvarp um gæludýralög Allir kettir skrásettir Hjörleifur vill að sveitarfélögum verði heimilað að skrásetja ketti og önnur gæludýr. Ef frumvarp sem Hjörleifur Guttormsson hefur lagt fram á Alþingi verður að lögum verður sveitarstjórnum heimilt að halda skrá yfir gæludýr, þar á meðal ketti. Einnig verður þeim heimilt að handsama ketti sem ganga lausir utan lóð- armarka í þéttbýli og hafi katt- ar ekki verið vitjað innan viku skal honum ráðstafað til nýs ábyrgs eigenda, hann seldur fyrir áföllnum kostnaði eða af- lífaður. í frumvarpinu um gæludýra- hald kemur fram að markmið laganna sé að festa í lög reglur um gæludýrahald í þéttbýli, kveða á um réttarstöðu eig- enda þeirra og annarra og veita sveitarfélögum heimild til að setja nánari reglur í samþykktir um gæludýrahald. Með gælu- dýrum sé átt við hunda og ketti og önnur þau dýr sem einstak- lingar haldi sér til afþreyingar og hleypt er út undir bert loft um lengri eða skemmri tíma. Sveitarstjórnum verði heimilt að halda skrá yfir gæludýr í sveitarfélaginu samkvæmt nán- ari ákvæðum í samþykkt og skal eiganda gæludýrs eða for- ráðamanni eiganda sem er undir 16 ára aldri skylt að gera grein fyrir gæludýrum sem hlutaðeigandi heldur, ef þess er krafist. Fjöldi slysa í greinargerð með frumvarp- inu segir að gildissvið þess sé takmarkað við gæludýr, en það hugtak hafi ekki verið skilgreint í lögum og í raun sé erfitt að af- marka það með glöggum hætti. Frumvarpinu sé fyrst og fremst ætlað að ná til þeirra dýra sem menn halda í híbýlum sínum en þó höfð að einhverju leyti utan dyra. Eðli málsins samkvæmt taki frumvarpið í raun einkum til hunda og katta en takmarkist þó ekki við þær tegundir. Bent er á að það sé löng hefð fyrir því að fóik í þéttbýli haldi dýr sér til afþreyingar og yndis- auka. Hins vegar verði ekki framhjá því litið að ýmsir ókostir fyigi dýrahaldi í þétt- býli. Árið 1994 hafi verið skráð alls 375 slys af völdum dýra á Borgarspítalanum, þar á meðal bitsár. Ekki liggi fyrir heildartöl- ur um gæludýrahald hér á landi, enda er einungis hunda- Ogmundur Jónasson vill skýr svör: Öll töpin á borðið Hinn óháði þingmaður Al- þýðubandalagsins, Ög- mundur Jónasson, hefur lagt fram fyrirspurn til Finns Ing- ólfssonar viðskiptaráðherra um hver hafi verið útlánatöp banka, sparisjóða og sjóða 1990-1995. Einnig er spurt um töpuð útlán sem hlutfall af heildarútlánum á sama tíma- bili. Ennfremur spyr Ögmund- ur hversu háar upphæðir á þessu tímabili hafi verið greiddar ríkinu af hverri inn- lánsstofnun fyrir sig í tekju- og eignarskatt. I greinargerð með fyrir- spurninni segir að á dögunum hafi komið fram fyrirspurn um útlánatöp ríkisbanka og opin- berra sjóða. Sú fyrirspurn hafi ekki verið fullnægjandi þar sem ekki hafi verið spurt um tap allra fjármálafyrirtækja í landinu. Tap þjóðfélagsins sé jafnmikið hvort sem rekstrar- formið sé ríkisfyrirtæki eða einkafyrirtæki. Því sé nú spurt um öll fyrirtæki á þessu sviði. Einnig sé spurt um hlutfall tap- aðra útlána af heildarútlánum Ögmundur: Hver voru útlánatöpin í heild? sem segi meira um rekstur hverrar stofnunar vegna mis- munandi stærðar þeirra. Til samanburðar sé spurt um skatta og gjöld sem þessi fyrir- tæki greiði til ríkisins. -sg hald háð opinberri skráningu. í Reykjavík voru skráðir um það bil 1.135 hundar í fyrra en á Ak- ureyri voru skráðir hundar um 200 talsins. „Ekki er vitað um fjölda annarra gæludýra en ljóst er að kattahald er nokkuð almennt," segir í greinargerð- inni. Kattarspóluormur Frumvarpinu fylgir greinar- gerð sem er frétt úr Morgun- blaðinu frá 9. febrúar á þessu ári. Þar kemur fram að engar reglur eru til um kattahald í Reykjavík og ekki er unnið skipulega að útrýmingu úti- gangskatta í borginni. Margir kattaeigendur láti hjá líða að ormahreinsa ketti sína. í rann- sókn sem Heiðdís Smáradótt- ir, líffræðinemi í Háskóla ís- lands, gerði á sandkössum í Reykjavík og Kópavogi fannst kattarskítur í 66% kassanna. Kattarspóluormur fannst í 9% sandkassanna, en hann getur verið mönnum hættulegur. Þá fannst í einu tilviki toxo- plasma, en hann getur valdið fósturskemmdum. - SG Þingmennirnir Asta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Einar K. Guðfinnsson spyrja ráöherra um gjaldþrot einstaklinga. Hvað kostar það ríkið að keyra fólk í þrot? Pyrirspurnum um gjaldþrot rignir nú yfir ráðherra frá þeim Ástu Ragnheiði Jóhann- esdóttur og Einari K. Guðfinns- syni. Eflaust eru margir sem velta vöngum yfir þeirri hrinu gjaldþrota sem gengið hefur yf- ir einstaklinga undanfarin ár og ekkert lát virðist vera á. Fram hefur komið að innheimtumenn ríkissjóðs eru iðnir við að keyra fólk í gjaldþrot þótt fyrir liggi að það eigi ekki bót fyrir bor- una á sér og krafa um gjaldþrot hafi ekkert annað í för með sér en fjárútlát fyrir ríkissjóð. Ásta Ragnheiður spyr Þor- stein Pálsson dómsmálaráð- herra hve nargir einstaklingar hafi orðið gjaldþrota á íslandi síðastliðin tíu ár, flokkað eftir aldri og árum. Hún spyr ráð- herra einnig hvort vitað sé hve margir einstaklingar sem hafa orðið gjaldþrota á þessu tíma- bili séu launamenn og hve margir verktakar. Þá hefur Ásta Ragnheiður lagt fram fyrir- spurn til Páls Péturssonar fé- lagsmálaráðherra um aðstoð vegna gjaldþrota einstaklinga. Spurt er hvort fyrir liggi félags- leg rannsókn á því hversu margar fjölskyldur hafa lent í þrengingum vegna gjaldþrota einstaklinga og fyrirtækja síð- astliðin tíu ár. Einnig hvort vit- að sé hversu margar fjölskyld- ur hafi flutt úr landi í kjölfar gjaldþrots þar sem þær treysti einnig hvort ríkissjóður hafi fengið greitt upp í kröfur sínar í þessum gjaldþrotum. Þá spyr Einar dómsmálaráð- herra hversu margar beiðnir um gjaldþrot einstaklinga hafi verið gerðar á árunum 1992-95 að kröfu innheimtumanna ríkis- Einar K.: Hvað kostar það ríkið að gera fólk gjaldþrota? sjóðs og tollstjóra. Sömuleiðis spyr Einar K. Guðfinnsson hve hátt hlutfall það hafi verið af gjaldþrotabeiðnum sömu ár. -SG Ásta Ragnheiður: Er vitað hve margir hafa flúið land vegna gjald- þrots? sér ekki til að búa á íslandi. Sömuleiðis spyr Ásta hvaða ráðstafanir ríkisvaldið geri til að aðstoða einstaklinga við að byrja nýtt líf eftir gjaldþrot. Loks spyr hún hvort komi til greina, með hliðsjón af því hve margir hafa orðið gjaldþrota á síðustu árum, að auðvelda fólki sérstaklega að komast inn á at- vinnumarkaðinn. Hvað fékk ríkið? Einar K. Guðfinnsson beinir fyrirspurnum til Friðriks Sop- hussonar fjármálaráðherra og Þorsteins Pálssonar dómsmála- ráðherra. Fjármálaráðherra er spurður hver hafi verið kostn- aður ríkissjóðs af gjaldþrota- beiðnum vegna einstaklinga á árunum 1992-95. Einar spyr Fyrirspurn frá Guömundi Hallvarðssyni: Hvað éta margir hjá ríkinu? Pram er komin á Alþingi fyr- irspurn frá Guðmundi Hallvarðssyni sem beint er til Friðriks Sophussonar fjár- málaráðherra og fjallar um rekstur mötuneyta. Guðmundur krefur ráðherra svara um hve mörg mötuneyti eru rekin á vegum ríkisfyrir- tækja og á vegum starfsmanna- félaga ríkisfyrirtækja. Ennfrem- ur hvað megi ætla að margir hádegisverðir séu framreiddir á dag í þeim mötuneytum og hvert sé meðalverð þeirra. Sömuleiðis spyr Guðmundur Hvað kostar hádegisverður hjá rík- inu? spyr Guðmundur Hallvarðs- son. hvernig háttað sé skattalegri meðferð slíkra hlunninda hjá mötuneytum ríkisfyrirtækja. Beðið er um skriflegt svar. - SG

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.