Helgarpósturinn - 16.01.1997, Blaðsíða 16

Helgarpósturinn - 16.01.1997, Blaðsíða 16
F1MM7UDAGUR16. JANÚAR1997 16 h,- Ravíólí með þjódfélagsrýni framboð af fólki í og sæti síðan uppi atvinnulaus með námslán á bakinu — færi ég í mál við ríkið. Það er alveg jafn van- hugsað að lána öllum til að læra hvað sem er eins og þeg- ar bankarnir stunduðu það á árum áður að lána fyrirtækjum fé án þess að kanna fyrirtækið og fjárfestingar þess.“ Hugur og hönd veroa ao vinna saman „Önnur vitleysan í íslenska menntakerfinu er að hug- myndaauðgi er ekkert ræktuð. Þú flýgur í gegnum skólakerfið ef þú hefur lært utan að eitt- hvað sem annar hefur ritað á blað fyrir þig! En hugmynda- auðgi ber vitni um greind og hugur og hönd verða að vinna saman,“ segir Hjördís og er svo sannarlega ekki búin, því nú víkur hún máli sínu að al- þingismönnum. „Mér finnst stundum að það safnist saman á Alþingi fólk sem hefur aldrei á ævinni starfað í einkageira atvinnulífsins. Flestir virðast hafa unnið á ríkisstofnunum allan sinn starfsferil og þekkja ekki hjartslátt atvinnulífsins. Fólk sem er í viðskiptum þarf að taka ákvarðanir hratt því tækifærin eru fljót að fara. Á Alþingi eru öll mál sett í nefnd- ir og svo eru haldnir endalaus- ir fundir og loks er tekin ákvörðun eftir eitt eða tvö ár. Þá er tækifærið sem gafst farið veg allrar veraldar. Að hika er sama og tapa, það er lífsins lottó,“ segir hún festulega. Þegar hún er innt eftir hvort hún hugleiði ekki að fara í póli- tík fer Hjördís að hlæja og seg- ist ekki geta hugsað sér að þurfa að taka ákvarðanir með svona mörgum. „Og ég get eig- inlega ekki heldur hugsað mér að verða einræðisherra, því ég hef aldrei haft áhuga á að hafa ítök í annarra manna sálum. Ég held ég láti mér bara nægja að ráðskast heima hjá mér í bili.“ mat hiá... Hjördísi Gissuraraóttur Hjördís Gissurardóttir, gull- smiður og fyrrverandi fatakaupmaður, er mikill aðdá- andi ítalskrar menningar, sem m.a. birtist okkur í ljúffenga ravíólíréttinum sem hún gefur okkur. „Listir og hönnun eru svo ríkur þáttur í lífi ftala. Þeir þekkja vel sína listasögu og það kemur fram í sterkri vit- und þjóðarinnar fyrir gæðum og fegurð. Hér vantar meiri uppfræðslu, því íslendingar þjóta úr einni tískubólunni í aðra og það gerir allri sköpun og smáiðnaði ákaflega erfitt fyrir,“ segir gullsmiðurinn. „Þeir sem starfa við hönnun og handverk ná aldrei að koma vel undir sig fótunum og það gerir þeim illmögulegt að færa út kvíarnar erlendis. Lítum á Tvílitt ravíólí fyllt meö eggaldini og kúrbít (zucchini) Oeig 300 g hveiti 3 egg 1/4 tsk. salt 6 msk. soðið, síaö og maukaö spínat Hnoðið saman hveiti, salti og eggjum. Skiptiö deiginu í tvo hluta og blandiö spínatinu í ann- an hlutann og hnoöiö vel sam- an. Fletjið deigiö út þannig aö paö sé u.þ.b. 3 1/2 mm þykkt. Skeriö út hringi, u.þ.b. 7-8 sm I þvermál, með glasi eöa tilheyr- andi hringskuröjárni. Helmingur hringjanna er grænn og hinn Ijós. Fylling 2 eggaldin 2 kúrbítar 30 g smjör 1/2 bolli hvítvín 2 dl rjómi 1/2 tsk. ferskt timían 200 g kotasæla 1 bolli rifmn parmesanostur 1 teningur sveppakraftur (Knorr) Skeriö grænmetiö I smáa fern- inga. Bræöiö smjör og setjið grænmetiö út í ásamt örlitlu satti. Hvítvíni hellt yfir og látiö krauma smðstund. Rjóma og timían bætt út í og látiö sjóöa vel upp. Sigtiö vökvann frá grænmetinu og geymiö soðiö í sósu. Maukiö grænmetiö f ma- tvinnsluvél. Bætiö kotasælu og helmingnum af parmesanostin- um út í og blandiö vel saman viö. Setjiö u.þ.b. 1 tsk. af maukinu á deighringina. Þeireru lagöir saman meö gaffli í hálfmána, gott er aö pensla brúnina áöur meö pískaöri eggjahvítu. Sjóöiö pastað 'i 20 mín. I söltu vatni. Gott er aö setja 1 tsk. af ólífuol- íu í vatniö til aö pastaö festist síöur saman. Sósa Soöiö bakaö upp og bragöbætt með sveppakrafti. Afganginum af parmesanostinum er stráö yf- ir pastaö meö sósunni. nágrannaþjóð okkar Finna sem flytja út vandað handverk sem er þekkt fyrir gæði og fallega hönnun. Slíkt ættum við að geta gert.“ Hjördís segir markaðinn fyr- ir hönnun vera að breytast og möguleikarnir að aukast með tilkomu skiptigallería út um allan heim. Það er því ekki lengur nauðsynlegt að setja á stofn litla búð til að selja varn- inginn. Færí í mál við ríkið Hjördís vili breyta því fyrir- komulagi sem hér er á gull- smíðanámi og vill að fagið verði kennt við Myndlista- og handíðaskólann. „Kerfið sem hér ríkir er ákaflega heftandi og mikið af hæfileikaríku fólki —mm kemst ekki á samning. Þetta er atvinnugrein g. sem gengur nánast í erfðir. Ef þú ert ekki fæddur inn í gullsmíða- fjölskyldu hefurðu litla möguleika á að fá að læra þetta fag. Það er líka afar misjafnt hvað neminn lærir hjá meist- aranum, því stór hluti gullsmiða er meira í inn- flutningi og viðgerðum en smíðum og hönnun. Ef gullsmíðanám er kennt í listaskóla er samræmi í náminu og hæfileikafólk kemst að, hinir detta út úr faginu. Þannig á það líka að vera í öllum faggrein- um,“ segir Hjördís. „Það þarf raunar að taka til hendinni í íslensku skólakerfi. Hér taka allir stúdentspróf, fara svo í háskólann og renna í gegnum hann og engin nýsköpun skilar sér til þjóðarinnar. Undan- tekningar eru til, en þær eru of fáar. Ef ég væri ung kona núna — búin að læra fag sem væri of- Arshátíðir í augsýn Við getum ekki vasast of lengi í amstri hversdags- leikans án þess að gera eitt- hvað til hátíðabrigða. Jólin eru frá og árshátíðir og þorrablót í augsýn. Það er ákaflega mis- jafnt hvernig fyrirtæki kjósa að haga árshátíðahaldi. Eitthvað er um að fyrirtækin bjóði starfsmönnum sínum í helgar- ferð út fyrir landsteinana eða á hótel í öðru byggðarlagi. Sumir kjósa að stefna starfsfólki sínu á stærri staði þar sem boðið er upp á skemmtiatriði og dans- leik. Enn aðrir kjósa að leigja sérsali og kaupa matinn hjá einhverju þeirra fjölmörgu fyr- irtækja sem sérhæfa sig í veisluþjónustu. Smæstu fyrir- tækin halda jafnvel sína hátíð í húsnæði fyrirtækisins eða í heimahúsi og sérpanta mat- inn. Einnig eru nokkur brögð að því að leigður sé salur utan borgarmarkanna og fengin rúta til að ferja fólkið. Jörgen Þór Þráinsson hjá veisluþjónustu fslandskosts kannast við öll þessi afbrigði árshátíða. Hann segir þær þó allar eiga það sameiginlegt að fólk sé íhaldssamt hvað varðar val á matseðlinum. Hann kveð- ur það nánast staðlað að fólk velji sjávarrétti í forrétt, kjöt í aðalrétt og svo eftirrétt, lítið sé um að fólk velji framandlega rétti eða fisk í aðalrétt. Jörgen segir aðalkostinn við að leigja sal úti í bæ þann að fyrirtækið eða starfsfólkið geti komið með eigin drykkjarföng og það lækki reikninginn verulega. Verðið sem þeir bjóði upp á sé á milli 2 og 4 þúsund á mann. Verðmunurinn er vitaskuld fólginn í því hvað er á matseðl- inum. í verðinu er oftast leiga á sal sem þeir geta aðstoðað fólk við að finna. Jón Þór Einarsson, fram- kvæmdastjóri hjá veisluþjón- ustunni Eldhúsi sælkerans, segir verðið hjá þeim rokka frá 1.100 krónum upp í 3-4 þús- und, allt eftir því hvað fólk vilji snæða. Ódýrast sé að fá pott- rétt en yfirleitt vilji fólk eitt- hvað bitastæðara. Jón Þór seg- ir samkeppnina mikla en vera að ná ákveðnu jafnvægi því bíl- skúrsfyrirtækjum í bransanum hafi fækkað verulega. „Þessir aðilar lækkuðu verðið niður úr öllu valdi og vitaskuld var allt undir borðið." Jón Þór segist hafa aðeins orðið var við að beðið sé um nýstárlega rétti og fólk haldi t.d. spænska árshátíð og jafn- vel finnska — þar sem gott vodka sé nú kannski aðalmál- ið. Margir velja að kaupa pakk- ann í heilu lagi og fara á stað sem býður upp á mat, dans- leik og skemmtiatriði. Svein- björn Friðjónsson hjá Hótel Sögu segir skemmtidagskrá sem þeir bjóða upp á mjög vinsæla og einfalda leið til að halda vel lukkaða árshátíð. Slíkur pakki kostar tæpar 5 þúsund krónur. Skemmtunin verður með frönsku sniði í ár og meðal þeirra sem troða upp er að finna þrjá Spaug- stofumenn og Egil Ólafsson. Sveinbjörn segir einnig mögu- legt að leigja hliðarsal og sleppa skemmtiatriðunum en opna á milli þegar dansleikur hefst og borga 2 þúsund krón- um minna. Hótel ísland býður upp á svipaðan pakka. Ný sýning, með tónsmíðum Magnúsar Ei- ríkssonar í flutningi okkar helstu tónlistarmanna, verður frumflutt 8. febrúar. Verðið á sýningu, með mat og balli á eftir, er 4.900 krónur. Á Hótel íslandi er einnig boðið upp á að snæða í hliðarsal og sleppa skemmtuninni en fara á dans- leikinn að máltíð lokinni. Möguleikarnir eru auðvitað miklu fleiri þannig að augljós- lega er úr mörgu að velja, allt eftir efni, aðstæðum og áhuga. Dýraafurðir! uauo ayr 1 sósum os sælecæti Ahugafólk um jurtafæðu ætti að bregða sér í heim- sókn á veg.web á Veraldarvefn- um. Þar er að finna urmul spennandi uppskrifta og góðra ráða. Einnig getur verið skemmtilegt að taka þátt í eða bara fylgjast með þeim umræð- um sem eiga sér stað á græn- metisvefnum. Síðustu daga hafa til að mynda staðið yfir miklar umræður áhyggjufullra mæðra um það hvernig verja megi börnin fyrir dýraafurðum sem geta leynst í sakleysisleg- um búningi. Þetta getur eðli- lega verið snúið, því blessuð börnin borða oft í skólanum eða heima hjá vinum og vanda- mönnum. Flestir eru allir af vilja gerðir til að halda dýraaf- urðum frá jurtafæðisbarninu þótt auðvitað séu hryðjuverka- menn stundum á ferðinni. Til að mynda lenti ein móðirin í þeim hremmingum að kunn- ingjakona tældi barnið hennar til að borða samloku með skinku og leiddi atburðurinn til dramatísks uppgjörs og vin- slita. En dýraafurðir geta leynst víðar en mann grunar og höfðu mæðurnar miklar áhyggjur af matarlími sem er notað í ýmsa rétti og einnig i sælgæti eins og hlaup og sykurpúða. Matarlím er nefnilega fengið úr fiski eða soði af kálfslöppum, en fólk sem ekki veltir þessum málum fyrir sér alla jafna veit auðvitað ekki svona hluti. Mæðurnar á Vefnum benda fólki á að í stað duldu dýraafurðarinnar sem matarlím óneitanlega er megi nota hleypiefnið Agar sem fæst úr sjávarþangi. Þær vara einnig sterklega við Worchestersósu því eitt af því sem gefur henni bragð eru ansjósur, sem eitt sinn syntu sprelllifandi í haf- inu. Áhugasamir fá hér uppgefið netfang grænmetisvefjarins, htp://www.vegweb.com/

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.