Alþýðublaðið - 15.03.1973, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 15.03.1973, Blaðsíða 2
dagavinnu 294.50 krónur. Viku- kaupið fyrir 40 stunda vinnuviku er 6.545.00 krónur. Járnsmiðir í þjónustu Alversins hafa laun sem hér segir: Eftir 2 ár er timakaupið i dag- vinnu kr. 246.10, i eftirvinnu kr. 344,54 og i nætur- og helgidaga- vinnukr. 442,98. Vikukaupið fyrir 40 stunda vinnuviku er 9.844.00 krónur. Eftir 4 ár er timakaupið i dag- vinnu kr. 255,48, i eftirvinnu kr. 357,67 og i nætur- og helgidaga- vinnu kr. 459,86. Vikukaupið er 10.219,00 krónur. Þessi samanburður sýnir, að járnsmiður hjá Isal hefur eftir 2 ára starf kr. 86,10 hærra tima- kaup i dagvinnu en aðrir járn- smiðir á öðru og þriðja starfsári. Þá hefur járnsmiðurinn hja Isal eftir 4 ára starf kr. 91.88 hærra timakaup i dagvinnu en aðrir járnsmiðir eftir þriggja ára starf. Rafvirkjar almennt á vinnu- markaðnum hafa laun sem hér segir: Miðað er við hæsta kaup, sem tilgreint er i Kaupgjaldstíð- indum Vinnuveitendasambands Islands, þ.m.t. 10% álag og inni- falið i tölunum er 4,23% verk- færagjald: Á 2. og 3. starfsári er timakaup rafvirkja kr. 184,80 i dagvinnu, kr. 258,70 i eftirvinnu og 332,60 krónur i nætur- og helgidaga- vinnu. Vikukaupið fyrir 40 stunda vinnuviku er 7.390,00 krónur. Eftir 3ára starf er timakaupið i dagvinnu kr. 189,10, i eftirvinnu 264,70 og i nætur- og helgidaga- vinnu kr. 349.40. Vikukaupið fyrir 40 stunda vinnuviku er 7.564,00 krónur. Rafvirkjar i þjónustu Isals eru i 9. launaflokki eins og flestir eða allir iðnaðarmenn hjá verksmiðj- unni hafa laun sem hér segir: Eftir 2 ára starf er timakaupið i dagvinnu kr. 246,10, i eftirvinnu kr. 344,54, og i nætur- og helgi- dagavinnu kr. 442,98. Vikukaupið fyrir 40 stunda vinnuviku er 9.844,00. Eftir 4 ára starf er timakaupið i dagvinnu kr. 255,48, i eftirvinnu kr. 357,67 og i nætur- og helgi- dagavinnu kr. 459,86. Vikukaupið er 10.219,00 krónur. Samanburðurinn leiðir i ljós að rafvirki hjá Isal hefur i laun eftir 2 ára starf kr. 61,30 hærra tima- kaup i dagvinnu en aðrir raf- virkjar á öðru og þriðja starfsári. Þá hefur rafvirki i starfi hjá Álverinu eftir 4 ára starf kr. 66,38 hærra timakaup i dagvinnu en félagi hans annars staðar á vinnumarkaðnum eftir 3 ára starf. ....... Timakaup járnsmiða i dag- vinmi á 2. og 3. starfsári á hinum almcnna vinnumarkaði er tæp- loga 54% lægra en félaga þeirra eftir 2 ára starf hjá Alverinu í Straumsvik. Timakaup rafvirkja i dagvinnu á 2. og 3. starfsári á hinurn al- menna vinnumarkaði, þ.e. hæsta kaup. sem tilgreint er i Kaup- gjaldsskrá Vinnuveitendasam- bands íslands, að viðbættu 10% álagi, er 33,2% lægra en timakaup rafvirkja i dagvinnu, sem starfa hjá isal. Tintakaup hafnarverkamanna, sem taka laun samkvæmt 4. taxta Dagsbrúunar, er i dagvinnu lið- lega 30% lægra en timakaup verkamanna við flutningastörf hjá ísal, sem talin eru santbæri- leg við hafnar- og skipavinnu. Þetta kemur i Ijós við lauslega alhugun og santanburð á launa- töxtum ísals og kauptöxtum i nyrri Kaupgjaldsskrá Vinnuveit- endasambands islands, sem gildir frá 1. ntarz s.l. 1 þessum samanburði er miðað við sambærileg störf þriggja hópa. Tekið skal fram, að rauntekjur starfsmanna Alversins eru þó allmiklu hærri en viðmiðunartöl- urnar gefa til kynna, þar sem mikill meirihluti starfsmannanna gengur vatkir og fær sérstakt vaktaálag greitt fyrir. Járnsmiðir almennt á vinnu- markaðnum hafa laun sem hér segir: Á öðru og þriðja starfsári er timakaupið i dagvinnu kr. 160.00 i eftirvinnu kr. 224.00 og i nætur- og helgidagavinnu kr. 288.00. Viku- kaupið fyrir 40 stunda vinnuviku er 6.398.00 krónur. Eftir 3 ár i starfi er timakaupið i dagvinnu kr. 163.60, i eftirvinnu kr. 229,00 og i nætur- og helgi- FOTIN ORÐIN HÁLF- DRÆTTING- UR Á VIÐ FISKINN Islendingar ættu hvað úr hverju að fara að verða vel klæddir, þvi fataiðnaðurinn hér, er nú orðinn hálfdrættingur á við sjávarútveg- inn, hvað mannafla snertir. Þessi mannskapur hefur aldeil- is ekki setið auðum höndum i vet- ur, heldur keppzt við að sauma föt fyrir sumarið, og i dag hyggst kaupstefnan Islenzkur fatnaður hefja kynningu á þessum vörum fyrir voriö. Um 20 fyrirlæki kynna þar framleiðslu sina. Kaupstefnan verður i fþrótta- húsinu á Seltjarnarnesi, og er þetta i ll.sinn sem hún er haldin. Sem dæmi um giidi þessarar kaupstefnu, má nefna að sum fyrirtæki hafa selt allt að hálfri ársframleiðslu sinni á henni. Kaupstefnan hefur hingað til eingöngu verið ætluð kaupmönn- um og innkaupastjórum, en nú hefur verið ákveðið að veita al- menningi aðgang að sýningunni. Einnig verða tvær tizkusýningar opnar almenningi. Pálina Jónmundsdótlir, sem stjórnar tizkusýningunum, sagði á fundi með fréttamönnum, að fataiðnaðurinn hér hefði tekið miklum framförum frá i fyrra. Annars væru nú sterkir og skærir litir greinilega rikjandi, og áberandi væri framboð á kven- buxum fyrir sumarið. - HUNDAMATUR Terty Arnall í Okla- homa mótmælti verð- hækkunum á matvörum á þann háttað fara að lifa á hundamat úr dósum. Hann komst að raun um það að i dósunum er slik úrvalsfæöa, að nú borðar hann helzt ekki annað — og fyrir minni pening. Aösent bréf um útvarpserindi Gunnars Bjarnasonar og „kommúnistana á ríkisútvarpinu” „ÞAÐ MÁ EKKI GAGNRÝNA ÚTVARPID - EN UTVARPID MÁ GAGNRÝNA EINSTAKLINGA” Stokkseyri, 11. marz. fcg vil þakka Gunnari Bjarna- syni fyrir hans góða þátt i út- varpinu fyrir nokkru (,,Um daginn og veginn"). fcg veit, að hann talaði þar fyrir munn margra útvarpshlustenda, þvi áróftur kommúnista i frétta- flutningi útvarpsins I sambandi vift Vietnam-striftift gat hver og einn heyrt sem hefur svona meftalgreind. Vift útvarpshlust- endur crum ekki svo heila- þvegnir ennþá, aft viö getum ekki vegift og metift þaft, sem þar er á boftstólum. Þaft var ekki mikift i fréttum útvarpsins um árásir N-Vietnama á konur og börn i S-Vletnam, en þar voru bara rússneskar sprengjur á ferftinni og hafa kannski verift meinlausar. En þaft má ekki gagnrýna útvarpift, efta svo seg- ir hið háa útvarpsráð, en út- varpið virftist mega gagnrýna ýmsa einstaklinga, samanber þátt Páls Heiftars á laugardög- um. Ýmsir, sem þar hafa komið fram, hafa ráðizt á mæta menn og einkum þá er flytja boftskap kirkjunnar. Haraldur Júliusson. HEIMA ER BEZT Það fór illa fyrir Brian Oliver í Portsmouth í Englandi er hann nýverið stal kassa, sem hann sá í járnbrautarlest. Þegar hann opnaði kassann heima hjá sér svifu upp úr honum tíu bréfdúfur, sem flugu rakleitt heim til sin á ný. „ÆXLIÐ" VAR ÞÁ AÐEINS TYGGJÓ llinu |{) mánafta gainli I)un- ean Kusscll frá l.ondon hefur verift vandamál fyrir lækna- visindin. en er þaft tii allrar hamingjii ekki lengur. Aslæft- ur voru þær, aft menn sáu eitt- hvaft undarlegt i munni hans. Tannlæknar voru ráftþrota. Fjöldinn allur af röntgen- myndum var tekinn — og svo var drcngurinn sendur á há- skólasjúkrahúsift i I.ondon, þar sem sérfræftingar voru látnir rannsaka hann. Þar sem drengurinn lá meftvitund- arlaus á skurftarborftinu reyndi einn læknanna að grandskofta meinsemdina bet- ur. Ilann dró þá fram tyggi- gúmmikökk. ,,Þetta leit svo sannarlega út á myndunum eins og æxli”, sögftu læknarn- ir, og skellihlógu aft öllu sam- an. Móðir Duncans telur, aft hann hafi fengið „æxlift” frá eldri hræðrum sinum. BORMANN HÖFUNDURÞÝZKAEFNAHAGSUNDURSINS? 1 grein i stórblaðinu „The New York Times” er þvi haldið fram, að formúlan, sem Þýzkaland var endurbyggt eftir og gert með methraða að efnahagsstórveldi eftir siðari heimsstyrjöldina, hafi verið samin af Martin Bormann, hinum fræga staðgengli Hitlers. Greinarhöfundurinn, Poul Manning — höfundur bókarinnar „Martin Bormann — skapari sjöttu herdeildarinnar” — full- yrðir einnig, að Martin Bormann sé á lifi cg búi i Suður-Ameriku. I greininni segir Manning, að áætlanirnar um efnahagslega viðreisn Þýzkalands hafi verið lagðar á fundi i Strassbourg 10. ágúst árið 1944 þegar ljóst var orðið, að Þýzkaland myndi tapa striðinu. Hann sagði, að brottflutningur efnahagslegra verðmæta Þýzka- iands — svo sem einkaleyfa, pen- inga, visindamanna og skipu- leggjenda — hafi verið opinber stefna nazista eftir fund þennan, en þangað hafi Bormann sent fulltrúa sinn. Manning vitnar i skýrslu frá bandariska fjármála- ráðuneytinu, sem sýnir, að eftir að fundurinn var haldinn i Strass- bourg stofnuðu þýzkir „bisniss- menn” 750 fyrirtæki viðs vegar um heim — 112 á Spáni, 58 i Portúgal, 35 i Tyrklandi, 98 i Argentlnu, 214 i Svisslandi og 233 i öðrum löndum. — Aætlanir Bormanns fyrir þýzka iðnaðinn voru ýmist um að flytja öll verðmæti burt úr þriðja rikinu ellegar að auka fjárfest- ingar Þjóðverja i hlutlausum löndum, segir i grein Mannings. 0 Fimmtudagur 22. marz. 1973.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.