Alþýðublaðið - 10.04.1973, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 10.04.1973, Blaðsíða 1
Islenzk stjórnvöld hafa heimilað varnarliðinu á Keflavikurflugvelli að byggja 50 metra langa sundlaug á Keflavikurvelli. Varnarliðsmenn ætla að hefja byggingu sund- laugarinnar i sumar og ljúka henni i haust, þannig að hún verði tilbúin til notkunar á þjóðhátiðarári tslendinga — árinu 1974. Páll Asgeir Tryggvason, deildarstjóri i Varnar- máladeild utanrikisráðu- neytisins staðfesti þetta i viðtali við Alþ.bl. Aðspurður sagði hann, að varnarmálanefnd færi ávallt utan einu sinni á ári til viðræðna við Banda- ríkjamenn um fram- kvæmdir á vellinum og þar væru slikar umsóknir formlega afgreiddar, en til þess að geta hafizt handa þurfa varnarliðsmennirnir leyfi islenzkra stjórnvalda. Páll sagði, að nefndin hefði siðast farið utan þess- ara erinda i októbermánuði s.l. og þá var leyfið til um- ræddrar sundlaugarbygg- ingar veitt. — Þetta er gömul fram- kvæmd til þess fallin að bæta aðbúð og aðstæður hermanna á Vellinum, sagði Páll. Hún kom fyrst á dagskrá á timum Way- mouths aðmiráls, en siðan fórust framkvæmdir fyrir — að þvi ðeg held vegna minni áhuga aðmirálanna, sem tóku við af honum. En nú hefur þessi framkvæmd sem sagt komið á dagskrá aftur og verður unnin. — En þarf ekki varnar- málanefnd að fá leyfi sins yfirmanns — utanrikis- ráðherra — til þess að gefa slika heimild? — Jú, að sjálfsögðu. — Og þótt málið hafi áður komið á dagskrá við islenzk stjórnvöld, þá hefur nú þurft að endurnýja umsóknina? - Já. — Og það var sem sé gert núna'? — Já, eins og ég sagði áðan, þá var umsóknin lögð fram nú i haust og þá form- lega samþykkt af okkur að höfðu samráði við okkar yfirmenn. Þá hefur Alþýðublaðið einnig fregnað að yfirmenn varna rliðsins hyggist byggja á næstunni um 200 nýjar ibúðir i fjölbýlis- húsum á Vellinum til þess að endurnýja gömul ibúða- húsakynni, sem farin eru að ganga úr sér. Páll Asgeir Tryggvason sagði, að engin slik formleg umsókn hefði komið til is- lenzkra aðila frá varnar- liðinu, en hins vegar hefði hann frétt af þvi, að Bandarikjaþing væri búið að samþykkja heildarfjár- hagsáætlun um endurbygg- ingar á mannvirkjum við herstöðvar Bandarikja- manna erlendis, sem m.a. fælu i sér talsverðar endur- nýjanir á húsakosti varnarliðsmanna á Kefla- vikurflugvelli. yfirferð, þótt það sé fátitt. A meðan biöu eigendur seðlanna fimm i ofvæni, þvi það gat skipt þá þúsundum króna, hvort seðillinn fyndist eða ekki. Og seðillinn fannst, en viti menn, á honum voru bara tveir réttir leikir! Eigendur seðlanna fimm vörpuðu öndinni léttar, en starfsmenn Get- rauna hugsuðu ekki hlýtt til grallar- ans, sem mun búa i Kópavogi. t hæsta vinning fengust 67.500 krónur, en i annan vinning 3000 krónur. Veltan var ein milljón, i þessari getraunaviku. Oþekktur grallari gerði starfs- mönnum Getrauna erfitt fyrir i gær. Hann hringdiog tilkynnti miða með 11 réttum leikjum, en fram að þeim tima höfðu bara fundizt seðlar með 10 réttum leikjum, og voru þeir seðlar fimm. Hófst nú umfangsmikil leit að seðlinum, þvi það getur komið fyrir að vinningsseðlar'finrlist ekki við fyrstu alþýou - judagur 10. april l 973 84. tbl. 54. árg. RIKISSTJORNIN LEYFIR AFRAMHALDANDI GERÐ MANNVIRKIA A KEFLAVlKURVELLI FÚSTUREYÐINGAR ÚTFLUTNINGSVARA Nálega þriðjungur þeirra 156.714 kvenna sem fengu framkvæmda löglega fóstur- eyðingu i Bretlandi á siðasta ári, voru erlendis frá. PRENTIÐNAÐURINN KAUPIR DANSHÚS Félag islenzka prentiðn- aðarins hefur fest kaup á hús- næði dansskóla Hermanns Ragnars að Háaleitisbraut 58- 60, og var kaupverðið hálf elleftá milljón króna. Með brauðið í lúkunni og öndina í hálsinum ,,Vist er ég búin með brauðið”, segir litla daman á myndinni hér fyrir neðan, en það er greinilegt aö gæsin trúir ekki meira en svo á þessa fullyrðingu hennar. Þessi vafi gæsarinnar er kannski skiljan- legur þegar litið er til ,,birgöanna”, sem telpurnar á stóru myndinni eiga. En þarna er marga munna að metta og þvi varð gæsin að láta sig fyrir rest. Bingó! - og þó!

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.