Alþýðublaðið - 02.08.1974, Síða 1
FLUG
- 50 ÁR -
Á (SLANDI
alþýðu
FORSÆTISRÁÐHERRA
VILLEKKIOPNA
FYRIR A.S.Í.
„Á ÞESSU STIGI”
,,Ég hef ekki í
hyggju að bjóða
fulltrúum verka-
lýðshreyf ingarinnar
aðgang að stjórnar-
myndunarviðræðun-
um á þessu stigl",
sagði Ólafur
Jóhannesson, for-
sætisráðherra, þeg-
ar Alþ.bl. spurði
hann um þetta í
gærkvöldi í fram-
haldi af samþykki
miðstjórnar ASí,
sem Alþýðublaðið
skýrði frá í gær, en
þar lýsir miðstjórn
ASÍ þvi m.a. yfir, að
hún.sé f ús til að taka
upp viðræður við
samtök atvinnurek-
enda, stjórnvöld og
stjórnmálaf lokka
um leiðir til að leysa
farsællega úr efna-
hagsvandanum.
Um tilmæli ASÍ
um aðild þess að
stjórnum ríkisstofn-
ana í efnahags-
kerfinu sagði for-
sætisráðherra, að
honum fyndust þau
,,mjög athyglis-
verð".
Loks spurði Al-
þyðublaðið forsætis-
ráðherra, hvort eitt-
hvað miðaði í
stjórnarmyndunar-
viðræðunum. ,,Það
er nú erfitt að
segja", svaraði
hann. „Ég held okk-
ur miði ekki aftur á
bak að minnsta
kosti."
EKKI AFTUR Á BAK EN ERFIÐARA
AÐ SEGJA UM HVORT ÁFRAM MIÐAR
FÖSTUDAGUR
2. ágúst 1974 - 140. tbl. 55. árg.
SYNGUR I
VEÐRUM
„bað kom fram, sem
listamaðurinn sagði,
þegar búið var að setja
myndina upp, að vind-
urinn syngur i henni og
myndar tóna i pilárun-
úm”, sagði Pálmi Ste-
fánsson, verkfræðingúr
hjá álverksmiðjunni i
Straumsvik, i samtali
við Alþýðublaðið i gær,
en hann hefur unnið að
þvi að setja upp stöpul
undir verk Asmundar
Sveinssonar mynd-
höggvara, „Undir frið-
ar- og landnámssól”,
sem Islenska álfélagið
hefur keypt af lista-
manninum til að gefa
islensku þjóðinni i til-
efni af 1100 ára afmæli
Islandsbyggðar.
Myndin var sett upp i
gær á mótum Bæjarháls
og Höfðabakka, og snýr
hún i austur. Vindur var
að norðaustan, þegar
myndin var sett upp, en
að sögn listamannsins á
að syngja i henni henni i
öllum austanstæðum
áttum.
Að þvl er Asmundur
Sveinsson sagði við
fréttamann Alþýðu-
blaðsins i gær, gerði
hann fyrstu frummynd-
ina að verki þessu fyrir
um það bil tveimur ár-
um, en hann hafði ný-
lokið við að stækka hana
upp i þriggja metra
hæð, þegar Ragnar
Halldórsson, forstjóri
Islenska álfélagsins fal-
aðist eftir henni. Siðan
var myndin stækkuð
enn, — nú upp i sex
metra.
Lögregluvarðstjórinn
á tali við eigendur
verktakafyrirtækisins
og húsmóðurina að
Álfhólsvegi 44.
Verktakarnir styðja
íbúanagegn bænum
Lögreglan i Kópavogi
var i gærdag kvödd að-
Álfhólsvegi 44 i Kópavogi
til að stöðva framkvæmd-
ir verktaka, sem vinnur
að gatnaframkvæmdum
við götuna, þegar átti aö
hefjast handa við að taka
þriggja metra ræmu af
Íóðinni við húsið til að
leggja hana undir götu og
gangstétt.
bað var húsmóðirin,
buriður Einarsdóttir,
sem kvaddi til lögregl-
una, en varðstjóri sá, sem
kom á staðinn, sagði, aö
hann gæti ekki stöðvað
vérkið, aðeins reynt að
leita sátta i málinu á
iljótlegan hátt. Tveir að-
aleigendur verktakafyr-
irtækisins, sem komu á
staðinn, sögðust hinsveg-
ar ekki halda áfram með
verkið fyrr en húseigandi
hefði náð samkomulagi
við Kópavogsbæ. og að
þvi er Alþýðublaðið
fregnaði seint i gær, fluttu
þeir vélar sinar innar eft-
ir götunni og hófu að
vinna þar.
Aiþýðublaðið skýrði frá
þvi i vor. að lögfræðingur
Kópavogsbæjar hefði sent
nokkrum húseigendum
við Álfhólsveg bréf þar
senvskvrt var frá þvi, að
taka þýrfti af lóðum
þeirra, og óskaði hann
eftir. að þeir kæmu á fund
sinn til að ræða málið. Að
sögn buriðar sáu þau
hjónin ekki ástæðu til að
fara á fund lögfræðings-
ins. „Ég efast um, að lög-
fræðingurinn geti staðið á
þvi að boða til sin fólk úr
vinnu þess, þegar hann á
sjálfur erindi við það”,
sagði hún.
Reynt var að ná bæði i
bæjarfógeta og lögfræð-
inginn i gær. en þeir voru
ekki viðlátnir. Hinsvegar
kom verkfræðingur frá
bænum á staðinn, og
sagði hann', að þetta verk
verði að vinna, og ákveðið
hafi verið að vinna verkið
fyrst en ræða sjðan við
húseigendur ura skaða-
að þær gætu orðið gifur-
lega miklar þar sem viða
við Álfhólsveg hafi verið
lögð gifurleg vinna við að
rækta upp garða á undan-
förnum 15 til 20 árum og á
þessum tima árs sé ekki;'
unnt að flytja gróður áij’
þess hann drepist, auk
þess sem húseignir hljóti
að lækka i verði. þegar
gatan verður komin svo
að segja upp að húsveggj-
um. Benti hún ennfremur
á, að ekki liggi i augum
uppi brýn þörf á að
breikka Álfhólsveginn
þar sem hann sé einungis
ibúðargata. bá var tekið
talsvert af lóðum þarna
fyrir allmörgum árum,
og þá staðhæft, að lóða-
mörk væru komin i end-
anlegt horf.
Annar eigenda verk-
takafyrirtækisins benti á,
að eitthvað hljóti mæling-
ar á lóðum að vera rang-
ar, þvi fyrirhugaða götu-
linan standist viða ekki á,
þegar farið er eftir töium
frá bæjarverkfræðingn-
um. bá kom það fram i
frétt i Alþýðublaðinu,
þegar við sögðum frá þvi
vor, að þetta mál væri i
uppsiglingu, að eftirlits-
menn frá verkfræðistofu
þeirri, sem hannaði hita-
veitulögnina i Kópavogi,
hefðu rekist á útreikn-
ingsvillur á mælingakort-
um frá bæjarverkfræð-
ingnum.
íslenskt fyrirtæki
með von í Evrópu-
markaðinn fyrir
ameríska ísvél
Fyrirtækið Stálver hefur hafið framleiðslu á ame-
riskri isvél fyrir fiskiskip, sem framleiðir isinn
beint úr sjó og þarf ekki að eima sjóinn áður. Skilar
vélin krapi sem er sjö kuldastig.
Stálver hefur einkaleyfi á Islandi á þessari tegund
isvéla og ef vel gengur á Stálvik möguleika á þvi að
fá að framleiða þessa vél fyrir Evröpumarkaðinn
allan.
BORGAR-
BÚKASAFNIÐ ? ?
Starfsfólk Borgarbóka-
safns Reykjavikur hefur
i hyggju að leggja niður
vinnu i dag eða einhvern
næstu daga fái það ekki
greidd þau laun sem þvi
ber.
Eins og allir starfs-
menn hins opinbera átti
starfsfólk safnsins að fá
launauppbót þann 1.
ágúst. Uppbótinní hafði
áður verið lofað 20. júli en
þegar ekki var hægt að
standa við það þá var
uppbótinni lofað 1. ágúst,
en það var einnig svikið.
Samkvæmt samningum
opinberrra starfsmanna
frá þvi fyrr i sumar áttu
þeir að hækka um tvo
launaflokka minnst, og
átti sú hækkun að gilda
frá áramótum. Nú um
þessi mánaðamót munu
opinberir starfsmenn
hafa fengið greitt sam-
kvæmt nýju samningun-
um, en eiga þá inni 6
mánaða launauppbót.
Starfsfólk Borgarbóka-
safnsins ætlar að mæta til
vinnu föstudaginn 2.
águst. Ætlunin er að hefja
ekki vinnu, heldur að
ganga á fund borgar-
stjóra og krefjast svara.
bað er siðan undir
borgarstjóra komið, til
hvaða ráðstafana verður
gripið. Er þvi vel mögu-
legt að safnið verði lokað
á morgun.
Fltira mun hafa skolast
til en beinar launagreiðsl-
ur til starfsfólksins. Nú
átti að greiða orlofsfé
sem er 10.000 kr. fyrir
starfsfólk i fullri vinnu og
hlutfallstala fyrir þá er
vinna hluta úr starfi.
Helmingur starfsfólks
safnsins mun hafa fengið
rétta útborgun en hinir
fengu allt of litið, munaði
þar allt að 5000 kr.
Mjög megn óánægja er
nú meðal starfsmanna
Revkjavikurborgar og
rikisins vegna þess, hve
dregist hefur að greiða
umsamin laun og hyggja
margir á aðgerðir.