Alþýðublaðið - 24.04.1975, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 24.04.1975, Blaðsíða 1
FRIÐRIK SIGRAR ENN BAKSIÐA URSL.IT I EVROPULEIKJUNUM DERBY ENGLANDSMEISTARI IÞROTTIR BLS. 13 VERÐUR METIÐ SLEGIÐ I AR? Um áramót heimilaði rikis- stjórnin Landsvirkjun að hækka heildsöluverð á rafmagni um 25% og aftur að hækka það um 11% frá og með 15. april s.l. Til þess að mæta þessum hækkunum til Landsvirkjunar hafa rafveiturnar séð sig knúnar til að hækka útsöluverð á rafmagni til neytenda, en alls hefur rafmagnsverð til neytenda frá Rafmagnsveitu Reykjavikur hækkað um 26,35% frá áramótum, en frá Rafveitu Hafnarfjarðar um 26,87%. Alþýðublaðið hefur tekið saman þær hækkanir, sem orðið hafa hjá þessum tveimur raf- magnsveitum siðastliðinn þrjá og hálfan mánuð. 1. janúar hækkaði rafmagn frá Rafmagnsveitu Reykja- vikur um 9,3% og 30. janúar hækkaði rafmagn hjá Rafveitu Hafnarfjarðar um hiö sama. 1. mars s.l. hækkaði rafmagn hjá báðum veitunum um 0.76 vegna söluskattshækkunar. 1. april s.l. hækkaði rafmagn hjá um- ræddum rafmagnsveitum um RAFMAGNIÐ HEFUR HÆKKAÐ UM 26% FRÁ ÁRAMÓTUM 10% „vegna gengisfellingar krónunnar”. Siðasta hækkunin kom siðan 15. april s.l. og nam hún 4,3% hjá Rafmagnsveitu Reykjavikur, en 4,73% hjá Raf- veitu Hafnarfjarðar. Samkvæmt verðþróuninni fyrstu mánuði þessa árs virðist rafmagnsverðið ekki ætla að hækka minna i ár en árið 1974. Á milli áranna 1973 og 1974 hækkaði rafmagnsverð til neyt- enda yfir 100%. 31. desember 1973 var meðalverð á raforku i krónum á hverja kilóvattstund til heimilisnota i Reykjavik kr. 3,51, en var 31. desember 1974 kr. 7,76 og er kilóvattstundin nú alveg um kr. 10.00,- RALLYIÐ 24. MAÍ HENRY LIDD0N YFIRDÓMARI Þrjátiu ökumenn höfðu i gær látið skrá sig i fyrstu islensku rallykeppnina, sem FIB stendur fyrir, en hún fer fram laugardag- inn 24. mai. öpinber skráning keppenda er þó ekki hafin, svo ekki reyndist unnt að fá upplýs- ingar um það, hverjir ætla að taka þátt i rallyinu, nema hvað meðal þeirra verður Magnús Helgason, sem sigraði góðakst- urskeppni Bindindisfélags öku- manna siðast. Yfirdómari keppn- innar verður rallymaðurinn Henry Liddon. Keppninni hefur verið frestað um viku frá þvi sem var, þegar Alþýðublaðið skýrði fyrst frá henni, en þá var fyrirhugað að halda hana á hvitasunnudag. Frestunin var gerð að beiðni lög- reglunnar, til þess að minnka lik- urnar á umferðaröngþveiti, þeg- ar sameinast þessi viðburður og venjuleg hvitasunnuumferð. Bilunum verður skipt i tvo flokka og eru fólksbilar i öðrum en éppar i hinum. Verðlaun i fólksbilaflokkunum eru 50 þús. 30 og 15 þús. krónur, en, éppaflokknum 30, 20 og 10 þúsund krónur. Leiðin sem ekin verður er 154 kilómetrar og 145 metrar, en hún verður ekki gefin upp fyrr en rétt fyrir keppni að öðru leyti en þvi, að byrjað og endað verður við Hótel Loftleiðir. Nánari lýsing á keppninni og reglum hennar verður i bilasið- unni i sunnudagsblaði Alþýðu- blaðsins. NtJ ER SA DAGUR, SEM ÍSLENDINGAR HAFA HVAÐ LENGST OG INNILEGAST FAGNAÐ. ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÓSKAR LESENDUM SÍNUM OG LANDSMÖNNUM ÖLLUM GLEÐILEGS SUMARS. Fsr Borgarfjarðar- brúin nú forgang? ,,Ég hef ekki trú á, að vegar- kafli, sem kominn er á vegaáætl- un, verði tekinn af”, sagði Hall- dór E. Sigurðsson samgönguráð- herra, þegar Alþýðublaðið innti hann eftir þvi i gær, hvort likur væru á, að fyrirhuguð brú yfir Borgarfjörð yrði hugsanlega ein af þeim framkvæmdum, sem skorin yrði niður i fyrirhugaðri sparnaðaráætlun rikisstjórnar- innar. Ráðherra sagði, að raunar sé ekki búið að ræða þessi mál á Al- þingi, en hann hafi enga trú á að þessari framkvæmd verði frest- að, en byrjað á henni i sumar, eins og fyrirhugað var. Þá sagði Sigurður Jóhannsson, vegamálastjóri i' samtali við Al- þýðublaðið, að venjulega sé sú regla viðhöfð, þegar frestað er vegaframkvæmdum, sem komn- ar eru á vegaáætlun, að þær framkvæmdir eru látnar ganga fyrir, sem áður hafi verið frestað. Sagði vegamálastjóri, að brú yfir Borgarfjörð hafi verið á vegaáætlun fyrir árin 1972—1975, og ætlunin hafi verið að hefja framkvæmdir við hana i fyrra. 600 MANNS SAGT UPP Verkafólki i þremur stærstu fiskiðjuverum borgarinnar, BÚR, Kirkjusandi og Isbirninum hefur nú verið 'sagt upp vinnu vegna fyrirsjáanlegs og þegar orðins hráefnisskorts. Ekki hefur tekist að afla upplýsinga um heildar- mannfjölda, en giska má á, að hér sé um 500-600 manns að ræða. 29 MILUARBAR NVILA A RIKIS- SIÖBI VEGNA SPARILANANNA Siðastliðin tiu ár hefur rikis- sjóður i sivaxandi mæli gefið út visitölutryggð skuldabréf og boð- ið út á almennum markaði. Hefur þetta verið gert i þvi augnamiði, að afla fjár til ýmissa fram- kvæmda, svo sem vegagerðar, skólabygginga og annarra, og er þess skemmst að minnast, að i fjáröflunarskyni til hringvegar- ins um landið, var boðið út rúm- lega fjögur hundruð milljón króna skuldabréfalán á siðastliðnu ári. A yfirstandandi ári, árinu 1975, er þegar ljóst, að gefin verða út skuldabréf með visitölutrygg- ingu, að nafnverði um 700 millj- ónir króna, að minnsta kosti. Með þvi láni eru i umferð visitölu- tryggð skuldabréf, útgefin af rikissjóði, að nafnverði samtals 2.845 milljónir króna, þar af skuldabréf að nafnverði 764 millj- ónir, sem þegar eru innleysanleg. Ofan á nafnverð bréfanna bæt- ast vextir, i flestum tilvikum 6% ársvextir að meðaltali, og verð- bætur, sem miðaðar eru við bygg- ingarvisitölu og eru ákaflega misjafnar eftir útgáfutima bréf- anna. Til dæmis lætur nærri að þau spariskirteini, sem gefin voru út á árinu 1965 samtals 75 milljón- ir að nafnverði, hafi um það bil ti- faldast að verðmæti, þannig að innleysing þeirra nemur ekki undir 750 milljónum króna. Þá má geta þess, að þau spariskir- teini, sem gefin voru út árið 1964 og komu til innlausnar fyrir sið- ustu áramót höfðu nær þrettán- faldast að verðgildi og kostar þvi Brúin væri hins vegar ein af þeim framkvæmdum, sem þá var frestað, og þvi hljóti hún að verða ein af þeim framkvæmdum, sem hafa forgang nú. ,,En hins vegar ersami vandi á höndum varðandi þessa brúargerð nú og þegar henni var frestað i fyrra, að nú er allt orðið ennþá dýrara en þá var”, sagði vegamálastjóri. innleysing þeirra, sem ekki eru þegar greidd um 715 milljónir króna. Miðað við að hvert lán fyrir sig tifaldist að verðgildi, sem er ekki óliklegt, miðað við að verðbólga verði rétt i islensku meðallagi á næstu árum, er það ljóst, að inn- leysing þeirra lána, sem nú eru á- hvilandi rikissjóði, vegna útgáfu spariskirteinanna, kostar ekki minna en 28 milljarði króna, eða 28.450 milljónir. KLEIFAR- VATNS- SKÝRSLAN TÝND? „Skýrslan vegna tækjanna, sem fundust i Kleifarvatni, hefur þegar verið send til dómsmálaráðuneytis, þannig að við i utanrikisráðuneytinu teljum okkur lausa allra mála, hvað hana varðar”, sagði Pét- ur Thorsteinsson, ráðuneytis- stjóri i utanrikisráðuneytinu, i viðtali við Alþýðublaðið i gær. „Um níðurstöður okkar er ég ekki reiðubúinn að tjá mig”, sagði Pétur ennfremur, „það væri næst að leita til ráðuneytisstjóra dómsmála- ráðuneytis, sem væntanlega hefur skýrsluna nú með hönd- um”. Alþýðublaðið hafði samband við dómsmálaráðuneytið og þar sem Baldur Möller, ráðu- neytisstjóri, var ekki viðlát- inn, varð fyrir svörum Ólafur Walter Stefánsson, fulltrúi. „Ég vil ekki tjá mig um þetta mál”, sagði Ólafur ,,og raunar vil ég ekki einu sinni kynna mér það. Það hef- ur enginn hér fjallað um það, annar en ráðuneytisstjóri sjálfur og verða fyrirspurnir um það að biða þess, að hann komi úr frii”. Alþýðublaðið hafði enn- fremur samband við dóms- málaráðherra, Ólaf Jóhannes- son: „Ég get ekki sagt til um það, hvenær opinberrar skýringar á Kleifarvatnsmálinu er að vænta, þar sem málið er i höndum utanrikisráðuneytis, en ekki dómsmálaráðuneyt- is”, sagði dómsmálaráðherra, ,,og sé hún þar ekki. hlýtur hún að hafa verið send sak- sóknara, en ekki dómsmála- ráðuneyti”. Alþýðublaðið gat þvi ekki fengið óyggjandi upplýsingar um það i gær, hvar Kleifar- vatnsskýrslan er niðurkomin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.