Vísir - 02.01.1973, Blaðsíða 5

Vísir - 02.01.1973, Blaðsíða 5
Visir. Þriftjudagur 2 janúar 1973 5 AP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson FRIÐARVIÐRÆÐUR HEFJAST AFTUR Sprengjuárásum hœtt Áöur en samningaviðræöur um friö i Vietnam hefjast á nýjan leik i Paris, mun Uenry Kissinger eiga itarlegar viö ræöur viö Nixon Bandarikja- forseta. Kissinger er væntanlegur til Washington idag frá Kaliforniu, þar sem hann hefur dvalið yfir jólin og hátiöirnar, og var ætlunin, aö hann færi þegar á fund forsctans. Friðarviðræðurnar milli Kiss- inger og sendimanna Norður- Vietnam eiga að hefjast i Paris þann 8. janúar, en þegar i dag áttu sendinefndir beggja aðila, sem af og til hafa átt fundi i Paris, þótt Kissinger og Tho hefðu slitið leyniviðræðunum, að hittast og ræða ýmis fram- kvæmdaratriði varðandi hugsanlega friðarsamninga. Strax eftir að Bandarikja- menn hættu sprengjuárásunum yfir Norður-Vietnam lýstubáðir aðilar þvi yfir, að friðarvið- ræður mundu hefjast á nýjan leik. 1 Bandarikjunum er það hald margra, að sprengju- árásirnar hafi knúið Norður- Vietnama til að setjast að .samningaborðinu aftur, en Norður-Vietnamar fullyrða, að Bandarikin hafi orðið að hætta árásunum til að uppfylla skil- yrði Norður-Vietnama fyrir samningaumleitunum. Norður-Vietnamar hafa i út- varpi og blöðum haldið fast fram kröfum sinum um, að Bandarikjamenn undirriti samningana, sem náðst höfðu i október, og hætti að draga vopnahléssamningana á lang- inn. Leiðtogar Sovétrikjanna og Kina hafa rækilega stutt þessar kröfur i áramótayfirlýsingum sinum. — Er þar lögð rik áherzla á það, að Vietnam sé eitt riki og stjórnin i Saigon ólögleg. Fréttir hafa borizt af þvi, að á nýársdag hafi Ngyuen Van Thiue, forseti Suður-Vietnam, sent fulltrúa sina til ýmissa landa i Evrópu, Suður-og Norður-Ameriku og Asiulanda til þess að afla stuðnings við þeim sjónarmiðum stjórnar- innar i Saigon, að Suður-Viet- nam verði haldið aðskildu frá Norður-Vietnam. Hann sagði á nýársdag, að „Suður-vietnamar vildu varan- legan frið, en ekki einungis stutt vopnahlé, sem kommúnistar mundu nota til að skapa glund- roða og undirbúa nýja innrás við þeim hentugri skilyrði". Suður-Vietnamar og Viet Cong sömdu með sér um 24 stunda vopnahlé yfir áramótin, en báðir aðilar hafa sakað hvorn annan um að hafa rofið vopna- hléð. Norður-Vietnaniskur heima- varnannaöur leiöir banda- riskan flugmann úr B-52 þotu, sem hann liefur tekiö fanga, um götur sveitaþorps. Annar flug- maöur kom fram i llanoi-út- varpinu og skýröi frá' þvi, aö honum heföu veriö sýnd verksummerki eftir sprengju- árásirnar. Ködd, sem sögö var flug- mannsins, Michael l{. Martini, liösforingja, sagöi. aö sprcngjurnar heföu hitt skóla- byggingar, sjúkrahús, — en hann hefði engin merki séö þess, aö sprcngjurnar heföu hitt neitt þaö, sem heföu hernaðarlega þýöingi' EBE-öndin „Bretar, írar og Danir urðu formlega fullgildir aðilar að Efnahags- bandalaginu á nýárs- dag, og eru aðildarlönd bandalagsins nú orðin niu . í Bretlandi er al- menningur enn á báðum áttum um, hvort þetta ,,sögulega skref”, eins og forsætisráðherra þeirra orðaði það, hafi verið eins góð hugmynd. Skæruliðarnir sem hernámu sendiráð tsraels i Bangkok, (sem hér sezt á myndinni), munu fá vélbyssurnar sinar aftur, en þær höfðu þeir skiliö eftir með þeim ummælum, að þeir vildu gefa þær forsætisráöherr- anum og yfirmanni Thailandshers til minja. — Byssunum hefur veriö skilað til egypzka sendiherrans og hann beðinn um aö koma þeim til skila. Hins vegar var fána Palestinuaraba haldiö eftir, en hann átti Bhumipol konungur aö fá aö gjöf . orðin níu Bretar, Danir og r Irar urðu formlega aðilar ó nýársdag Skömmu fyrir jól var efnt til skoðanakönnunar meðal 1000 Breta viðs vegar i landinu og kom þá i ljós, að 39% þeirra, sem spurðir voru, sögðust óánægðir með aðildina, 38% sögðust ánægðir með hana og 23% létu sér alveg á sama standa. En allar fyrri skoðanakannanir höfðu sýnt, að nær 60% voru á móti aðild. 1 Bretlandi héldu menn upp á þennan dag með þvi að taka sér fri frá vinnu. bótt nýársdagur sé sami annrikisdagur timbur- manna i Bretlandi og i öðrum löndum Evrópu, þá hafa Bretar — einir allra i Evrópu — enn ekki gert hann að almennum fridegi. Hvort það var aðildin daginn eftir eða bara áramótagalsi, sem olli þvi, að á Trafalgar Square safnaðist um 50.000 manns, söng þar og dansaði og margir busluðu í gosbrunnunum — vita menn ekki, en þetta er mesti manngrúi, sem safnazt hefur á torgið um áramót i heilan aldarfjórðung. Það má kenna nýtt hugarfar i afstöðu þeirra, sem enn eru á móti aðild Breta að bandalaginu. Aður óttuöust menn hækkun á matvörum og lifsnauösynjum og sömuleiðis skerðinga á sjálfstæöi Bretlands. Nú vilja menn, aö Bretland gegni stærra hlutverki innan bandalagsins en þvi er ætlaö og að það verði forusturiki innan Evrópu. Harold Wilson, formaður Verkamannaflokksins og leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sem var fylgjandi aðild, meðan hann var i stjórn, en á móti aöildarskil- málunum, eftir aö hann fór i stjórnarandstööu, beindi athygli hlustenda sinna að öðrum málum i áramótaræðu, sem hann flutti flokksmönnum sínum. Hann lagöi áherzlu á að timi væri til kominn, ,,að menn legðust á eitt við að losa landið við þá hofmóðugustu, ráðrikustu og gagnslausustu rikisstjórn, sem þar hefur setið að völdum siöan 1930”. Aðildin er einn mesti stjórnmála- sigur Edwards Heaths, en á nýársdag var hann i Ottawa, þegar sigurstundin rann upp. Hann var þar viðstaddur jarðar- för Lester Pearsons, fyrrv. for- sætisráðherra Kanada. 6000 í óeirðum á Floridaströnd Lögregla Fort Lauderdale I Florida lenti i átökum við fjögur til sex þúsund manna sæg á bað- strönd þar undir nýársdagsmorg- un. 27 manns særöust i þessum átökum og þar af 16 lögreglu- menn. 36 voru handteknir, en enginn kærður fyrir alvarlegri brot en ölvun á almannafæri og ryskingar. Ólætin brutust út á Atlantic Boulevard, þar sem barir og skemmtistaðir standa i röðum, en þangað sækja mikið námsmenn i helgarfrii sinu. Múgur safnaðist utan um tvo óeinkennisklædda lögregluþjóna, sem ætluðu að handtaka einn bargestinn vegna ölvunar og óláta. Einn unglingurinn sló til annars lögregluþjónsins, sem hleypti af byssu sinni, og lenti skotið i fót- legg annars unglings. bá hljóp allt i bál og brand, og múgurinn tók að grýta flöskum og bjórdós- um i lögreglumennina. Gluggar voru brotnir i nær- liggjandi húsum, sólbaðsstólum var rænt frá gistihúsum nærliggj- andi og þeim varpað á bálkesti á baðströndinni. Lögreglunni tókst með aðstoð táragass að koma ró á, en fleiri skotum var ekki hleypt af. Skæruliðahreyfing Palestinu- araba, sem hefur verið brotin á bak aftur i Jórdaniu, mjög tálmuð i Libanon og ströngu eftirliti háð i Sýrlandi, strengdi þess heit á ný- ársdag, ,,að árið 1973 skyldi verða ár uppreisnar, áeggjana og frels- unar”. Yasser Arafat, foringi skæru- liðanna, neitaði þvi, að hinir Áramótarœða Páls páfa VI Páll páfi VI. höfðaði i áramóta- ræðu sinni, sem hann flutti úr glugga skrifstofu sinnar i Vati- kaninu, til „friðar, hvað sem það kostaði” á nýja árinu. „Friður er mögulegur, hann verður aö vera mögulegur,” sagði páfinn, sem vegna inflúensu varð að slá á frest áramótaguðs- þjónustu sinni. ýmsu ættflokkar innan skæruliða- hreyfingarinnar ættu i deilum innbyrðis, og fullyrti, „að bylting Palestinu væri einhuga og menn reiðubúnir til þess að halda bar- áttunni áfram af lifi og sál”, Arafat stakk þvi að, að eftir 8 ára aðgerðir gegn Israel „hefði ekkitekizt að frelsa svo mikið sem þumlung lands”. Nýársheitingar Palestínuskœruliða boða fleiri hermdarverk

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.