Vísir - 07.05.1973, Blaðsíða 10

Vísir - 07.05.1973, Blaðsíða 10
— Einhver óvœntustu úrslit í sögu ensku bikarkeppninnar, þegar Sunderland sigraði 1<0 í mjög tvísýnum leik Leeds með fingur- bikarnum en töpuðu skinandi vel, og þó leikmenn Leeds væru meira með knöttinn voru upphlaup þeirra ekki hættu- leg i fyrri hálfleiknum. Miðvörður Sunderland — Watson — stakk ekki niður fæti rangt i leiknum og hélt Alan Clarke alveg i skefjum. Fyrri hálfleikurinn hafði verið frábær — og sá siðari var ótrú- lega spennandi, þótt mörkin kæmu ekki. Enn voru það leik- menn Sunderland, sem fyrri voru til að fá tækifæri — á 10 min. léku þeir Hughes, Kerr og Porterfield i gegn og markið blasti við opið — Porterfield átti lokaorðið, en skot hans lenti i hliðarneti, og Bob Stokoe, framkvæmdastjóra Sunderland og manninum bakvið sigur liðsins, varð svo mikið um, að hann stökk á fætur og missti af sér hattinn! En sókn Leeds varð stöðugt þyngri, og loks kom stóra tæki- færið. Jim Montogomery varði þá hörkuskot bakvarðarins Trevor Cherry — hélt auðvitað ekki knettinum, sem féll fyrir fætur skotharðasta mannsins i enskri knattspyrnu — Peter Lorimer. Hann sveiflaði hinum sparkvissa fæti sjö metra frá marki. Montgo- mery hálflá á vellinum eftir skot Cherry ,,en hvernig honum tókst að verja skot Lorimer i þverslá og aftur fyrir markið verður alltaf óskiljanlegt” sagði sá, sem lýsti leiknum i BBC. Hreint ótrúleg markvarzla, en Montgomery, sem er 29 ára og elzti maður Sunderland-liösins, var frábær i marki allan timann. Bezti mark- vörður Englands, sem ekki hefur verið valinn i landslið, segja þeir, sem til þekkja, en hann lék nokkra unglingalandsleiki. ,,Ég vildi ekki skipta á honum og nokkrum öðrum markverði”, sagði Bob Stokoe eftir leikinn. En hann var ekki einn um að sýna glæsimarkvörzlu — Harway varði stórkostlega fráHalom mið- herja Sunderland, rétt fyrir leiks- lok, þegar leikmenn Leeds reyndu allt til að jafna — en taugaspennan varð þeim þá að falli. Allir ætluðu að gera of mik- ið. Og Sunderland sigraði — ,,ég var svo þreyttur siðustu 15 min. að ég hélt aö ég myndi þá og þegar falla i völlinn”, sagði Billy Hughes eftir leikinn og svo var með flesta leikmenn Sunderland. Þeir höfðu gefið allt, sem þeir áttu gegn hinum frægu mótherj- um sinum, og stóðu uppi sem sigurvegarar i lokin — verðskuld- að. ,,Ég hef aldrei séð slikar senur á Wembley” sagði Feeney eftir leikinn — fögnuður áhorfenda var gifulegur, Daviö hafði sigrað Goliat. ,,You never walk alone” hljómaði alls staðar, þar til þjóð- söngurinn þaggaði niður i áhorf- endur. Bob Stokoe, maðurinn, sem unnið hefur slikt stórvirki hjá Sunderland, setti upp stærsta bros Englands — leikmenn liðsins vildu helzt bera hann um allan völl. Aftur stóð hann sem sigur- vegari gegn Don Revie, fram- kvæmdastjóra Leeds. Hann var leikmaður með Newcastle, þegar liðið sigraöi Manch. City i úrslit- um 1955 — Revie var i tapliðinu. Það er ekki nóg með að hann hafi gert liðið að stórveldi siðan hann tók við þvi i januar — öll borgin hefur vaknað til lifsins — Sunder- land þessi gamalvirta knatt- spyrnuborg á norð-austur strönd- inni. Eftir að sigurganga Sunder- land-liðsins hófst hefur fram- leiðsla i borginni aukizt mjög — það er eins og allir vinni með tvö- földum afköstum. Gleði og ánægja, og segi menn svo að knattspyrnan sé ekki til neins. Leikmenn gómanaá Ómar Olfarsson, KR, fcllir einn keppinaut sinn. Hann meiddist siðar á öxli og varö aö ganga úr glimunni. Ljósmynd Bjarnleifur. Þetta er annar sigur Sunder- land i bikarkeppninni i langri sögu félagsins — hin fyrri var 1937 — en félagið er eitt hið frægasta á Englandi gegnum árin með sex enska meistaratitla. Risar gærdagsins eru nú aðeins menn, sagði þulur BBC eftir að Sunderland hafði sigrað Leeds í úrslita- ieik ensku bikarkeppninnar á Wembley-leikvanginum á laugardag — einhver óvæntustu úrslit, sem orðið hafa í sögu bikarkeppninn- ar. Sunderland, fyrsta liðið úr 2. deild, sem sigrar i bikarkeppninni í 42 ár, vann 1-0 í „einhverjum mest spennandi úrslitaleik, sem nokkru sinni hefur verið háður— kannski ekki sígildur hvað knattspyrn- una snertir, en spennan hreint ótrúleg, sagði Paddy Feeney hjá BBC eftir leik- inn. Leeds United, liöið, sem hefur leikið svo vel síð- asta áratuginn, en samt unnið svo Iftið, var enn einu sinni komið með fingur- gómana á bikar, en missti svo takið á honum á síðustu stundu. Enn ein vonbrigði — kannski sárari en oftast áður, því nær allir tölu sigur Leeds vissan. Já, spennan var gifurleg frá byrjun, og hinir ungu leikmenn Sunderland áttu mestan þátt i að gera leikinn svo spennandi, sem raun ber vitni — þeir reyndu allt- af að leika knattspyrnu — alltaf reiðubúnir i sókn, og það var aldrei reynt að leika varnarleik, þótt liðið hefði yfir. Jafnvel voru stundum þrir leikmenn frammi, þegar Leeds sótti — ef sókn Leeds mistókst, var spennan strax mikil á hinum vallarhelmingnum. Leifursókn Sunderland var hættulegri, en hnitmiðaður leikur Leeds. Það var rigning, þegar leikur- inn hófst, en Wembley er að mestu yfirbyggður svo það kom ekki mjög að sök. Stóra spurning- in var. Tekst leikmönnum Sund- erland að komast yfir tauga- spennu fyrsta leikkaflans? Rúmenía íslenzku piltarnir tryggðu sigur íslands gegn Skotum! — ísland sigraði í skíðalandskeppninni í Hlíðarfjalli með 73 stigum gegn 50 Wolfermann bœtti metið í spjótkasti — kastaði 94.08 metra á laugardag Þorsteinn Einarsson, iþróttafulltrúi rfkisins, festir Grettisbeltiö á Jón Unndórsson, sigurvegarann i tslandsglimuni. Ljósmy.nd Bjarnleifur. Jón Unndórsson varði titilinn! eftir hörkukeppni við Pétur Yngvason Glimumaðurinn sterki úr KR, Jón Unndórsson, varði til- il sinn i íslandsglimunni, þeg- ar hann sigraði Pétur Yngva- son úr Vikverja i aukaglimu, en þeir voru jafnir að vinning- um eftir glimuna. Þetta var hörð og mikil viöureign — kannski ekki alltaf falleg — enda mikið i húfi, Islandsmeistaratitilinn og Grettis- beltið. Og Jón sigraði loks — annað árið i röð. Hann hlaut fjóra vinninga eins og Pétur i keppninni, og svo einn vinning i auka- glimunni. Pétur, hinn ungi glimumaður úr Þingeyjarsýslu, sem nú glimir fyrir' Vikverja, veitti honum nokkuð óvænt harðasta keppni. Bróðir hans Ingi gekk úr glimunni vegna meiðsla, en þriðji bróðir- inn, Kristján, hlaut einn vinning. Pétur hlaut þvi silfurverðlaunin, en i þriðja sæti varð Sigurður Jónsson, Vikverja, með þrjá vinninga, en hann hlaut fegurðar- verðlaun fyrir fegurstar glimur i keppn- inni. 1 fjórða sæti varð Guðmundur Freyr Halldórsson, Armanni með tvo vinninga og i 5.-6. sæti þeir Hjálmur Sigurðsson, Vikveria og Kristján Yngvason, HSÞ, með einn vinning hvor. Þrir glimumenn urðu að ganga úr glim- unni vegna meiðsla. Fyrst ömar Úlfars- son, KR, siðan Ingi Yngvason, HSÞ, og Rögnvaldur ölafsson, KR. Var mikill skaði, að þeir skyldu ekki geta lokið glim- unni. Ahorfendur veru margir, en glimt var i iþróttasal Vogaskóla i gær. A siðunni á morgun verður nánari frásögn af Islands- glimunni. vonn Rúmenia sigraði Albaniu 4-1 i gær i fjórða riðli undankeppni heimsmeistarakeppninnar i knattspyrnu. Leikurinn var háður i Tirana i Albaniu og sáu 20 þús- und áhorfendur hann. Staðan i hálfleik var 2-0. Islenzka skíðafólkið sigr- aði Skotland með nokkrum mun í skíðalandskeppninni, sem háð var í Hlíðarfjalli um helgina í allgóðu veðri og við ágætar aðstæður. Munur varð nokkru meiri, en reiknað hafði verið með eða 23 stig. ísland hlaut 73 stig, en Skotar 50 eftir að hafa haft forustuna fyrri daginn, þegar keppt var í stórsvigi. í sviginu f gær stóðu íslendingarnir sig mjög vel — einkum karl- mennirnir, sem voru í þremur fyrstu sætunum. Keppninni var hagað þannig, að árangur þriggja beztu frá hvoru landi i karlaflokki taldi i stiga- keppninni, en keppendur voru fimm frá hvoru landi og i kvenna- Þýzki Olympíumeistar- inn í spjótkasti, Klaus Wolfermann, sem er27 ára, setti á laugardag nýtt heimsmet í spjótkasti — kastaði 94.08 metra á frjálsiþróttamóti í Lever- kusenn í Vestur-Þýzka- landi. Wolfermann, sem sigraði neimsmethafann Jan Lusis frá Sovétrikjunum á leikunum i Munchen með aðeins tveimur sentimetrum — 90.48 metrum gegn 90.46 metrum — bætti nú einnig heimsmet Lusis um 28 sentimetra. Það var 93.80 metrar — sett i Stokkhólmi i júli i fyrra. Hann bætti nú árangurinn sinn stórlega — sigurkastið i Munchen var bezti árangur hans áður. Þriðji bezti árangur i spjótkasti er kast Finnans Jorma Kinnunen 92.70 metrar, sem hann náði 1969 og var þá heimsmet. Klaus Wolfermann — nýi heimsmethafinn. Eftir þennan leik er staöan þannig i riðlunum: Rúmenía 3 2 1 0 7-2 5 A-Þýzkal. 2 2 0 0 7-1 4 Finnland 3 1 1 1 2-6 3 Albania 4 0 0 4 1-9 0 Jim Montgomery, markvöröur Sunderland, átti snilldarleik gegn Leeds. Hann varöi meðal annars á hreint ótrúlegan hátt skot Lorimers af stuttu færi. flokki taldi árangur tveggja beztu frá hvoru landi. Þar voru kepp- endur fjórir í hvorri grein frá hvoru landi. Á laugardaginn var keppt i stórsviginu og voru Skotar þá nokkru betri, fengu samtals 678.78 sekúndur hjá keppendum sinum gegn 679.24 sek. íslenzku keppendanna. 1 karlaflokki sigraði Arni Óðinsson, Akureyri, á 128.06 sek. Annar varð Fuchs á 129.19 sek. og Guðjón Ingi Sverrison, Reykja- vik, óvænt i þriðja sæti á 130.81 sek. 1 kvennakeppninni i stórsviginu var hins vegar stórsigur hjá skozku stúlkunum. Þær urðu i þremur efstu sætunum. Sigurveg- ari varð Carmickel á 135.41 sek. Þá Field á 137.46 sek. og þriðja Allison á 142.59 sek. Bezt fslenzku stúlknanna varð Margrét Bald- vinsdóttir, Akureyri, á 143.06 sek. 1 svigkeppninni i gær var árangur islenzku piltanna óvæntur og góður. Arni Óðinsson varð aftur sigurvegari á 100.92 sek. Haukur Jóhannsson, Akur- eyri, varð i öðru sæti á 101.80 sek. og Jónas Sigurbjörnsson, Akur- eyri, þriðji á 105.36 sek. 1 svigi kvenna hafði Field, Skot- landi, mikla yfirburði — sigraði á 111.08 sek. Margrét Baldvinsdótt- ir varð önnur á 117.05 sek. og Margrét Vilhjálmsdóttir, Akur- eyri, þriðja á 119.41 sek. Þetta kom talsvert á óvart eftir yfir- burði skozku stúlknanna daginn áður. Þetta er ekki i fyrsta skipti, sem tsland sigrar Skotland i landskeppni á skiðum, þegar keppnin var háð á tsafirði 1970 sigraði Island einnig. P Sökkva hinir leikreyndu leikmenn Leeds liðinu þá ekki? Nei, taugaspennan þvingaði ekki leik Sunderlands — sem menn eru nú farnir að kalla Superland — þótt leikmenn liðsins séu alls óvanir stórleikjum. Eng inn landsliðsmaður i liðinu gegn 10 landsliðsmönnum hjá Leeds með yfir 200 landsleiki að baki — og spurningunni var fljótt svarað. Sunderland var skarpara liðið strax i byrjun. Horswill fékk fyrsta tækifærið — hörkufast skot hans straukst yfir þverslá Leeds- marksins. Leikmenn Leeds fengu ekki tækifæri til að byggja upp sinn venjulega leik á miðjunni — Gray, Giles og Bremner náðu þar ekki góðum tökum, og voru siðri en Horswill, Porterfield og Kerr, hinn smávaxni fyrirliði Sunder- land, aðeins 160 sentimetrar á hæð. Þetta gerði gæfumun. Gray, sem litiö hefur leikið að undan- förnu vegna meiðsla, og það háði honum greinilega, gat litið farið út á kantinn til aö styðja sóknina — varð að aðstoða Giles og Bremner á miðjunni. Um miðjan siðari hálfleik var hann tekinn út af — Yorath kom i hans stað, en það var þá orðið of seint. Sigurmark Sunderland var skorað á 31 min. fyrri hálfleiks- ins. Skozki landsliðsmaðurinn i marki Leeds, Harway, hafði áður varið hörkuskot i horn — Porter- field ætlaði að taka hornspyrn- una, en allt i einu hljóp Billy Hughes til og tók spyrnuna, en Ian Porterfield, stóri, sterki Skot- inn fór að markinu. Eftir tals- verðan atgang i vitateignum barst knötturinn til Porterfield, sem skoraði með föstu skoti af stuttu færi 1-0. Fögnuður var gifurlegur á Wembley, þvi nær allir áhorfendur voru á bandi „litla liðsins” Sunderland. Leikmönnum Sunderland jókst sjálfstraust við markið — léku oft Varð ríkur ,,Þú getur alveg eins stungið peningunum i ofn- inn” var sagt við mann nokkurn á Englandi, þegar hann veðjaði 500 sterlings- pund á Sunderland. Það var eftir fjórðu umferðina og hlutföllin voru þá 50 á móti 1. En það ótrúlega skeði — Sunderland sigraði og maðurinn hlaut 25 þús. sterlingspund eöa tæplega sex milljónir króna. Margir veðmangarar fóru afar illa út úr veðmálastarfseminni I sambandi við úrslitaleik bikarsins. 1 siðustu viku voru hlutföllin 3-1 Leeds i hag, en þaö var hægt að vinna enn betur á því að veðja strax á Sunderland. Þegar liðin i 1. og 2. deild hófu keppni i 3. umferðinni i janúar voru hlutföllin 250 gegn 1 á Sunderland —sem sagt meö þvi að veðja 500 sterlings- pund þá hefði það gefiö„125 þúsund sterlingspund. Mikið fjör á ís- landsmóti í júdó — en nokkur vonbrigði, þegar Svavar Carisen gat ekki keppt í opna flokknum vegna meiðsla Tæplega 100 keppendur mættu til leiks á Júdó- meistaramóti íslands, sem háö var í íþróttahúsinu í Hafnarfirði. Keppt var í sex flokkum karla, einkum kvennaflokki og fjórum flokkum unglinga. Meðal keppenda var Skotinn Ed- ward Mullen, háttgráðaður júdómeistari, og sigraði hann i sínum þyngdar- flokki — léttmi llivigt — og auk þess í opna flokknum, sem ekki var bundinn við þyngd. Svavar Carlsen, sem hlaut silfurverðlaun á Norðurlanda- meistaramótinu á dögunum, keppni i þungavigt og varð tslandsmeistari, en tók ekki þátt i opna flokknum vegna meiðsla i öxl. Úrslit i einstökum flokkum urðu þessi Opni flokkurinn 1. Edward Mullen, Skotland 2. Sig. Kr. Jóhannsson, JR 3. Sigurjón Kristjánsson, JR. Þungavigt (yfir 94 kg) 1. Svavar Carlsen, GR 2. Hannes Ragnarsson, JR 3. Oskar Guðmundsson, UMFG Léttþungavigt (81-93 kg) 1. Sig. Kr. Jóhannsson, GR. 2. Bjarni Björnsson, GR. 3. Hjörtur Sigurðsson, GR. Millivigt (71-80) 1. Sigurjón Kristjánsson, JR 2. Ossur Torfason, A 3. Sigurjón Ingvarsson, A Léttmillivigt (64-70 kg) 1. Edward Mullen, Skotlandi 2. Halldór Guðbjörnsson, JR 3. Viðar Guðjohnsen, A Hlauparinn kunni er þarna i öðru sæti, og Viðar, sem talinn er sérlega efnilegur júdómaður, er aðeins 15 ára. Léttvigt (undir 63 kg> 1. Hörður Harðarson, JR 2. Haukur Harðarson, JR 3. Leó Jónsson, UMFG Þeir Hörður og Haukur eru tviburabræður. Kvennaflokkur 1. Sigurveig Pétursdóttir, Á 2. Anna Hjaltadóttir, Á 3. Jóhanna Ragnarsdóttir, Á Þá var keppt i fjórum aldurs- flokkum drengja. Sigurvegarar urðu: 16-18 ára Sigurjón Ingvars- son, Á. 14-15 ára Viðar Guðjohn- sen, A. 12-13 ára Pétur Pálsson, UMFG, og 8-11 ára Bergþór Haraldsson, A. Flest verðlaun og alla tslands- meistarana, nema i kvenna- flokki.hlaut Júdófélag Reykja- vikur (JR). Einnig voru Armenningar seigir, einkum i yngri flokkunum, og keppendur frá Ungmennafélagi Grindavikur (UMFG) vöktu athygli.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.