Vísir - 27.10.1973, Blaðsíða 1

Vísir - 27.10.1973, Blaðsíða 1
vism 63. árg. — Laugardagur 27. október 1973 — 248. tbl. 600 lesta loðnuskip á sama verði og 17 lesta fiskibátur sjá baksíðu 17. aldar fólk á segul- bandi Miöilsröddin af segul- bandinu hljómar ekki eins og aftan úr 17. öld. Málfariö er nútimalegt — stöku mál- villur venjulegrar 20. aldar konu — og oröfar per- sónanna, t.d. Brynjólfs biskups, er ekki þrungiö glæsibrag menningar- frömuöarins og andans mannsins, heldur viröist það hversdagslegt. Blaöamaöur hlustaöi á stöku kafla af þeim frægu segulböndum, sem Ragnheiöur, Brynjólfur, Daði og fleira Skálholtsfólk frá 17. öld á aö hafa talaö inn á gegnum miðilinn Guörúnu Siguröardóttur á Akureyri. Stefán Eiriksson kaup- maöur, sá er upptökum stjórnaöi, segist eiga stutta kafla meö 17. aldar málfari á, en hann hafi i samráöi viö hina framliönu ákveöiö, aö þeir töluðu meö málfari nútimafólks, til aö gera vinnu við bókarsamninguna auöveldari. -GG. Sjá grein á bls. 4. ★ ★ FJARRI MANNA- BYGGÐ ÁN SÍMA EÐA FJAR- SKIPTA- TÆKJA Sauöfjárveikivarnir hafa i sinni þjónustu 10 menn, sem komnir eru á efri ár. Þeir gæta hliða, sem viöa eru úti á landi, til að koma i veg fyrir, aö fé geti borið sjúkdóma á milli. Þessir mcnn búa margir hverjir fjarri mannabyggð, án sima eöa fjarskiptatækja. —Bak- siða. Ráðunevti lœkkaði láamarks- aldur fvrir bvssulevfishafa — Sjá frétt á baksíðu Nixon samþykkir skipun nýs rannsóknardómara Sagði ekki þökk fyrir Nixon Bandarikjaforseti lofaöi I gærkvöldi að skipa nýjan rannsóknardómara i Water- gatemálinu f stað Archibald Cox, sem hann lét reka. Mundi Robert H Bork dómsmálaráö- herra skipa dómarann, og mundi hann fá „algert sjálf- stæöi” viö rannsóknina. Blaðamannafundurinn var hörð rimma milli forsetans og blaðamanna og gekk forsetinn skyndilega burtu eftir 40 minútna fund, án þess að segja „þökk fyrir” eins og venja hefur verið á blaðamannafundum Bandarikjaforseta. Nixon sagði, að segulbands- spólurnar með viðræðum hans við ýmsa menn um Watergate- málið, mundu verða afhentar dómaranum Sirica á þriðju- daginn, en þær yrðu ekki gerðar opinberar. Hann varði vin sinn Rebozo gegn ásökunum og sagði, að það sýndi að hann væri „alveg heiðarlegur”, að Rebozo hefði geymt óhreyft i 3 ár rúmlega 8 milljón króna kosningaframlag til Nixons frá auðkýfingnum fræga Howard Hughes. Ekkert væri gruggugt við þau framlög. Nixon telur friðarhorfur betri i Mið-Austurlöndum en þær hafi verið i 20 ár, eftir að risaveldin hafi komizt út úr háskalegustu deilu sinni siðan Kúbudeilan var háö áriö 1962. Nixon svaraði á blaðamanna- fundi ásökunum um, að það verið „sjónspil” að hann skipaöi herjum Bandarikjanna i fyrra- dag að vera viðbúnir átökum. Hann sagði, að mikil hætta hefði verið á kjarnorkustyrjöld, en hann hefði sýnt með atorku hversu rangt væri að segja, aö hann hefði „týnt viti.” Hann hefði haft samband viö Bresnjev i skyndi, og i sameiningu hefðu þeir afstýrt voðanum. Þá sagði hann, að Bandarikin mundu sennilega senda fulltrúa til Mið-Austurlanda til að fylgjast með málum, en þeir yrðu ekki starfsmenn i friðar- gæzlusveitum Sameinuöu þjóöanna. Hann sagði, að orð- sendingarnar, sem gengu milli hans og Bresnjevs hefðu verið ákveðnar og harðorðar, enda væri reynsla þeirra bezt af þvi, þá væri liklegast, að þeir semdu um málin. Þá er þaö veturinn, sem blasir við. i dag er fyrsti dagur vetrar sam- kvæmt dagatalínu, og næstu mánuðina verðum við að þreyja án þess að fá okkar skikkanlega skammt af sólarljósi. Þessi mynd var tekin af Einari Guðjohnsen i Þórsmörk og sýnir ein- mitt sumarið á undan- haldi fyrir vetri konungi. Loksins vatn r i kranana f i Grímsey — sjá baksíðu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.