Vísir - 18.10.1975, Blaðsíða 7

Vísir - 18.10.1975, Blaðsíða 7
VÍSIR. Laugardagur 18. október 1975. 7 BYRJA AÐ REYKJA NÍU ÁRA — flestir byrja af forvitni, en reykingar á heimilum hafa talsverð óhrif — hver íbúi reykir að meðaltali 1600 vindlinga ó óri Konuún á reykingavenjum nemenda i 21 barna- og ung- lingaskóla íReykjavik var gerð I aprll 1974. Hún náði til 9—17 ára nemenda, og tóku þátt i henni 10.282 nemendur, eða 96,6% þeirra, sem I skólunum voru þann dag, sem könnunin fór fram. Notuð voru spurninga- eyðublöð. Af niu ára börnum reynast 4,7% drengja og 2,5% telpna vera farin að reykja. A þessu verður stökkbreyting á aldrin- um 12 til 13 árá hjá báðum kynj- um, og úr þvi reykja fleiri stúlk- ur en piltar i öllum aldursflokk- um. Þegar 17 ára aldri er náð, eru tölurnar 47,3% og 61,6%. Við sams konar könnun árið 1959, reyktu rúmlega tvisvar sinnum fleiri piltar en stúlkur i aldurs- flokknum 13—17 ára. A sl. 12—15 árum hefur hlutfallstala reykj- andi pilta ekki aukist svo að um- talsvert sé, hins vegar hefur hlutfallstala reykjandi stúlkna tvö- til þrefaldast á þessu tima- bili. Flestir byrjuðu að reykja vegna forvitni Á sama tima hafa reykjandi unglingar aukið til muna það tóbaksmagn, sem þeir neyta. Þá hafa og daglegar reykingar farið mjög mikið i vöxt hjá báð- um kynjum, t.d. hjá 17 ára reykjandi stúlkum úr 9,8% i 46,5%. Daglegar reykingar eru nú tiðari á meðal stúlkna en pilta,13 ára og eldri. Um 80% reykjandi nemenda segja forvitni vera ástæðu fyrir þvi, að þeir fóru að reykja, en um þriðjungur þeirra, er svara, tilgreina fleiri ástæður en þessa einu. Reykingavenjur á heimili skipta nokkur i þessu efni. Nær allir þátttakendur, eða 97,5% pilta og 98,3% stúlkna, telja sig vita, að reykingar eru skaðleg- ar. Reykingar stúlkna aukast að mun --------------- Ekki þykir óliklegt að fara þurfi i enn iægri aldursflokk en 9 ára, ef kanna á, hvenær börn byrja yngst að reykja. Tala þeirra sem reykja nær hámarki hjá 16 ára piltum, en hjá stúlk- um ekki fyrr en þær eru 17 ára. Fjöldi nemenda 18 og 19 ára er of litill til að mark sé á honum takandi. Þegar gerður er samanburður á árunum 1959—’62 og svo árinu _ 1974, er það eftirtektarvert, að" fram að 14 ára aldri reykja færri piltar nú en þá, og þeim virðist einnig fækka eftir 16 ára aldur. Aðeins i 15 og 16 ára ald- ursflokknum reykja fleiri piltar en áður, en munurinn er ekki mikill. Allt öðru máli gegnir um stúlkur. Er það enn athyglis- verðara og jafnframt uggvæn- legt. 1 öllum aldursflokkum reykja fleiri stúlkur en áður. Þess gætir litið sem ekkert á aldrinum 10—11 ára, en slðan fer að verða vart við aukningu. í 17 ára aldursflokki reykja nú 61,6% stúlkna, en aðeins 19,5% árið 1962. Eftir 13 ára aldur reykja fleiri stúlkur en piltar ____ Arin 1959 og 1962 reyktu rúm- lega tvisvar sinnum fleiri piltar en stúlkur, en könnun 1974 sýnir að hér hefur orðið mikil breyt- ing á. Úr þvi að 13 ára aldri er náð, reykja nú fleiri stúlkur en piltar, og er munurinn mestur i 17 ára aldursflokknum. Piltar, sem reykja, reykja nú meira en áður. Það er mikið meira um daglegar reykingar á meðal þeirra nú en við fyrri kannanir og á það við um alla aldursflokka. A meðal stúlkna eru reykingar ekki aðeins miklu útbreiddarien áður, heldur hafa daglegar reykingar hjá þeim farið gifurlega i vöxt. Fleiri stórreykinga- menn á meðal pilta-— I lægstu aldursflokkunum 9—12 ára, er tóbaksneyslan minnst, 4ins og vænta mátti. Daglegar reykingar verða al- gengari eftir þvi sem aldurinn hækkar. Piltar sem reykja neyta tals- vert meira magns af tóbaki en reykjandi stúlkur. Einkum eru fleiri stórreykingamenn á með- al piltna en stúlkna. Auðsætt er, að börn og unglingar, sem reykja, neyta talsvert meira magns af tóbaki nú en fyrir- 12—15 árum. Reykingar á heimilum hafa talsverð áhrif - Flestir segjast hafa byrjað að reykja af forvitni. 34% vegna þess að foreldrar reykja, 13,8% af þvi þeim þykir það fint og 6,6% til þess að vera með félög- um sem reykja. Aðeins 68,5% svara spurningum um þetta efni, um 1/3 þeirra tilfæra fleiri en eina ástæðu. Reykingar á heimilum barna og unglinga hafa talsverð áhrif á reykingavenjur þeirra. Heimili þar sem engir reykja aðrir en þátttakendur i könnun- inni, er aðeins fimmti hluti allra heimilanna. Áhrifa gætir meira frá móður en föður, en mest frá systkinum, Reykviskar stúlkur reykja meira en jafn- öldrur þeirra viða er- lendis — -------- Ef marka má erlendar kann- anir sem birtar hafa verið und- anfarin ár, liturút fyrir að reyk- vísk börn byrji yfirleitt seinna að reykja en erlend börn. Úr þvi að 13 ára aldri er náð, fara pilt- ar hér fram úr jafnöldrum sin- um I Sviþjóð, en samanburður við aðrar þjóðir er óraunhæfur. Reykviskar skólastúlkur virð- ast hins vegar hafa aukið reyk- ingar hraðar undanfarin ár og reykja nú meira og yfirleitt mikið meira en jafnaldrar þeirra gera í til dæmis Sviþjöð, Bretlandi, Þýskalandi, Banda- rikjunum og Ástraliu. Hver ibúi reykir 1600 vindlinga á ári Arið 1974 var salan á vindling- um orðin 342,3 milljónir, Jókst um 15% frá árinu áður. í þess- um tölum er ekki meðreiknað það magn sem flugfarþegar og áhafnir kaupa á Keflavikur- velli, sem mun vera 11,5—12 milljónir vindlinga. Ekki er vit- að um hversu mikið isiendingar kaupa og reykja erlendis, né hversu mikið skipsáhafnir og skipsfarþegar flytja af vindling- um inn i landið. Ekki er heldur vitað um hvort einhverju er smyglað af þessari vöru, en sl. 10 ár hefur tollgæslan i Reykja- vik gert upptæka 358 þúsund vindlinga að meðaltali á ári. Siðastliðin þrjú ár hefur orðið gifurleg aukning i sölu vind- linga, og hver ibúi reykir að meðaltali næstum 1600 vind- linga á ári. Þá eru aðeins reikn- aðar tölur ATVR. —EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.