Vísir - 31.10.1975, Blaðsíða 5

Vísir - 31.10.1975, Blaðsíða 5
5 VtSIR. Föstudagur 31. október 1975 í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón: GP Spánska Sahara fyrsta verkefni Carlos prins Juan Carlos hefur tekið við stjórnartaumunum á Spáni af hinum deyjandi þjóðarleiðtoga Francisco Franco hershöfðingja, þegar spænska stjórnin verður að beina athygli sinni að hinu örlagaríka ástandi í spænsku Sahara. Juan Carlos sat i morgun i for- sæti á rikisstjórnarfundi eftir tveggja daga viðræður spænskra yfirvalda og leiðtoga Marokkó, Máretaniu og Alsir. Fréttir herma að forsætisráð- herrann, Carlos Arias Navarro, fyrrum aðmiráll, hafði neyðst til að láta til skarar skriða er ljóst var að styrka hönd þurfti til þess að leiða Spán úr ógöngunum i Sahara. i Forsætisráðherrann hefur beð- iþ átekta s.l. 10 daga, en notfærði sér loks lagalega smugu i spænsku erfðalögunum þar sem segir að prinsinn geti tekið við stjórnartaumum um stundarsak- ir i veikindaforföllum þjóðarleið- togans. Tilkynningu um að Juan Carlos hefði tekit við völdum var frestað þar til i gærkvöldi er læknar höfðu gefið út yfirlýsingu um að liðan Francos væri óbreytt, en mjög væri af honum dregið. Ef liðan hershöfðingjans hefði versnað verulega, hefði stjórnin beðið eftir dauða Francos, og Juan Carlos hefði sjálfkrafa orðið konungur Spánar. Carlos endanlega tekin við Eins og stendur er allt útlit fyrir að hann sé fastur i valda- sessi þvi engar likur eru til að Franco komist til heilsu eftir hjartaáföll, innvortis blæðingar, blóðtappa og ýmislegt annað sem hefur hrjáð hann siðan hann fékk inflúensu 17. október s.l. Þetta er i annað skipti sem Juan Carlos tekur við stjórnar- taumunum til bráðabirgða á s.l. 16 mánuðum vegna forfalla Francos hershöfðingja. t fyrra sinnið var á s.l. ári er prinsinn hélt varnfærnislega um stjórnvölinn i sex vikur frá 19. júli til 3. september, þegar Franco fékk æðabólgu i fótinn. — Lagt að Carlos frá báðum hliðum Prins Carlos stendur frammi fyrir óvissri framtið Spánar. Að honum verður lagt af hægri mönnum að vikja sem minnst frá einræðisstjórn Francos meðan vinstri mennn og þeirsem aðhyll- ast vestrænt lýðræði munu leggja að honum að slaka á stjórnar- taumunum. En það vandamál sem nú blasir Naverro forsætisráðherra og Juan Carlos prins sem nú er tekinn við völdum. við Juan Carlos og þeirri rikis- stjórn er hann hefur hlotið að erfðum er fyrst og fremst i spænsku Sahara. — Samkomulag við Marokko? Utanrikisráðherra Marokkó, Ahmed Laraki, sagði i gær þegar hann fór frá Madrid að sam- komulagsviðræðunum hefði mið- að i rétta átt. Þrátt fyrir það eru taldar miklar likur á að til vopn- aðra átaka kunni að koma. Sagt er að Spánn hafi gert bráðabirgðasamkomulag við Máretaniu og Marokkó um yfir- ráð yfir hinu fosfat-auðuga eyði- merkursvæði, og að Marokkó fái bróðurpartinn. Þá er sagt að Alsir sé þvi al- gjörlega mótfallið þvi að Marokkó fái meira landsvæði, og verði þar með sterkari, og hefur hótað að gripa til vopna til að hindra það. Flug- slysið í Prag Fyrir einhverja Guðs mildi kom- ust 52 menn lifs af þegar PC-9 þota, júgóslavnesk, fórst við flug- völlinn i Prag. Hún var að fljúga að til lendingar. Um borð i vél- inni voru 115 farþegar og 5 manna áhöfn. Myndin er við hliðina var tekin af hraki vélarinnar, og eins og sést hefur hún brotnað mélinu smærra, og óskiljanlegt hvernig nokkur slapp lifs úr þessum ósköpum. —Farþegarnir i vélinni voru allir tékkneskir. HÍRINN VIÐ OllU ILLU BÚINN Af HíRNUM Herflokkar í uppreistar- hug hafa lagt undir sig aðalvopnabúr Portúgals til að mótmæla áætlunum um að fækka 18% í her Portú- gals. Hermennirnir lokuðu sig inni í hergagnaskálum, sem hafa að geyma vopn er skilað hefur verið til Portúgals frá Afrikuný- lendum landsins. Þeir krefjast þess að frestað verði i bili áætlunum um að fækka i hernum meðan stjórnmála- ástandið er jafn ótryggt i Portú- gal og raun ber vitni. — Foringjar úr flestum deildum hersins komu i gærkvöldi saman til fundar að ræða málið. Agaleysi Agaskorturinn innan hersins sem agerist jafnt og þétt hefur orðið herforingjunum sivaxandi áhyggjuefni. Menn kviða þvi að ringulreiðin endi með þvi að her- deildum lendi saman i illu, og þá mundi skammt til borgara- styrjaldar. Atvinnu- leysi Ákvörðunin iim að fækka i hernum er tekin á timum, þegar atvinnuleysi rikir i Portúgal. Flótti portúgala úr afrikönsku ný- lendunum heim til Portúgals þar sem hundruð þúsunda eru at- vinnulausir fyrir hefur leitt til mikilla vandræða i þessum efn- um. Flest þetta flóttafólk (200.000 frá Angola einni) sneri heim eignalaust. Ur þessum vanda hefur stjórn Jose Pinheiro de Azevedo for- sætisráðherra ekki tekist að leysa siðan hún sór embættiseiða sina fyrir sex vikum. Gruna sína eigin menn Til dæmis um ólguna innan hersins er unnt að benda á um sagnir yfirmanna flughersins. Þeir hafa eflt vörðinn um flug- vélarnar dag og nótt af ótta við að aðrir herflokkar kunni að vinna á þeim spellvirki, eða einfaldlega þeir lægstsettu i flughernum. Og á meðan eru uppi kvittir um að hin og þessi deild innan hersins Iumi á byltingaráformum. Rœningjarnir að þrotum komnir A ellefta degi umsátursins i Monasterevin spáir irska lög- reglan þvi að ræningjar hol- lenska iðjuhöldarins, Tiede Herrema, séu farnir að þreyt- ast. Gerir lögreglan sér vonir um að ræningjarnir, hryðju- verkamenn úr IRA, springi á limminu i dag, á morgun eða næsta dag. Þau eru tvö sem verjast lög- reglunni með Herrema á valdi sinu. Eddi Gallagher og Mari- an Coyle. Hafa þau búið um sig á efri hæð húss þar sem lögreglan kom að þeim. Lögreglan hefur getað hler- að samtöl þeirra og fylgst með þvi hvernig þeim liöur. Misstu niður bombuna Inni i Nevada-eyðimörkinni misstu visindamenn niður kjarnorkusprengju tólf metra hátt fall — en ekkert skeði. Þeir voru að slaka þessum . 175 smálesta grip niður i nær 40metra djúpaholu. Gera átti tilraun með að sprengja hana neðanjarðar. — En þá varð óhappið: Þeir misstú sprengj- una niður siðustu tólf metr- ana. Sleppti gíslunum Maður sem hélt fjórum gisl- um i banka einum i Cleveland i nær heilan sólahring og hót- aði að sprengja þá i loft upp gafst upp fyrir lögreglunni i þann mund sem fresturinn rann út. Ræninginn sem nýlega var látinn laus úr fangelsi, var eitt sinn meðal 10 hættulegustu glæpamanna Bandarfkjanna sem FBI hafði á skrá sinni. Hann kom inn i bankann i fyrradag vopnaöur sprengj- um. Tók hann niu fanga og krafðist allra peninga bank- ans, en lögreglan kom að áður en hann komst út. / gegnum Súez á leið til ísrael Fyrsta skipið á leið með vörur til ísraels mun fara um Súezskurðinn i dag, en það er nær aldarfjórðungur siðan skip fór þá leið til Israels sið- ast. Þetta er samkvæmt nýjum ekki-árásar-samningum egypta og israela þar sem Egyptar gangast inn á að opna skurðinn til siglingar fyrir skip á leið til Isrgels, svo fremi þau flytji þá ekki her- gögn. Skip þetta er griskt og flytur sementsfarm til Eilat i Akaba- flóa. Nýtt Karatemet Karate kennarinn Tom Slaven, 35 ára gamall og að sjálfsögðu með svart belti, er aumur i hægri hendinni eftir að hann setti heimsmet i að brjóta múrsteina. Hann molaði alls 4487 múrsteina um 130 þús. kr. virði, á einni klukkustund. Gamia metið var 3774 múrsteinar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.