Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1925, Side 5
29. nóv. '25.
LB8BÓK MORQUNBLAÐSINS
5
Um
[ skipulagsuppdráttinn.
Hjer birtist skipulagsuppdrátt-
ui yfir hluta af Austurbænum,
eins og skipulagsnefndin eða hin
svonefnda „samvinnunefnd1 ‘ hefir
frá honum gengið. Samþykki bæj*
arstjórnar um skipulag þetta er
ekki fengið að öllu leyti.
Þarna er „háborgin" á Skóla-
vorðuholtinu, sem myndin var af
hjer í blaðinu í fyrra, Landsspí-
talinn, Járnbrautarstöðin, í einu
orði sagt allar þær helstu bygg-
ingar sem nú sveima í loftinu fyr-
ir hugskotssjónum manna. Þ. e. a.
s. Landsspítalinn er orðinn það
jarðbundinn, að nú er farið að
flytja til hans sand sunnan úr
Öskjuhlíð.
Eins og menn vita, á Lands-
spítalinn að standa suður á
Grænuborgartúni, austan vert við
Kennaraskólann.
A uppdrættinum sjást allar
hinar fyrirhuguðu 9 byggingar
hans.
Aðalbyggingin í miðjunni syðst,
með framhlið suður að Hring-
braut. Eigi verður sú bygging
öll gerð nú, heldur aðeins mið-
hluti hennar með útbyggingunum
litlu þremur.
Vestan við aðalbygginguna, við
Laufásveg (um það bil, þar sem
nú er Kennaraskólinn, á að vera
hús fyrir starfsfólk), en austast
við Hringbrautina læknabústaður.
Auk miðpartsins úr aðalbygg-
ingunni á nú að reisa húsið, sem
standa á í miðri húsaþyrpingunni.
Þar á að vera eldhús, þvottahús
og bústaður starfsfólks á meðan
ekki er meira bygt. Einnig á nú
að reisa nokkurn hluta af nyrsta
húsinu. Þar eiga að vera rann-
sóknastofur. Seinna á og þar að
vera kapella og líkhús. Þau fjög-
ur hús sem enn eru ótalin, eiga að
verða deildir spítalans, farsótta-
hús o. s. frv.
Austanvið Landsspítalann, með-
fram Hringbrautinni taka við
knattspyrnuvellir með leikfimis-
húsi, sundlaug og tennisvöllum,
og síðan „Stadion“, eða íþrótta-
sýningasvæði. Er eigi fullráðið
enn að þeirri tilhögun verði hald-
jð sem uppdrátturinn sýnir.
pá tekur við „háborgin“ á
Skólavörðuhæðinni. A miðju torg-
inu er kross-kirkjan, sem mikið
var talað um í fyrra. Grunnflötur
hennar — eins og við er að búast
— ekki „kirkjulegri“ að sjá, en
myndin sú í fyrra.
Skólavarðan er sem svartur dep-
ill norðvestanvið kirkjuna. Eftir
uppdrættinum að dæma, er lengd
þessarar fyrirhuguðu kirkju 4—5
sinnum „lengd“ Skólavörðunnar.
Gólfflötur kirkjunnar yrði rúm-
lega 20 sinnum gólfflötur „vörð-
unnar.“ Geta menn af því ráðið
hve kirkjan á að taka mikinn
„mannfjölda."
Suðvestanvið torgið er hús Ein-
ars Jónssonar teiknað alsvart, með
tveim álmurn óbygðum við báða
enda. Austanvið það hið almenna
listasafn. En suðaustanvið torgið
háskólinn og stúdentagarðurinn.
Norðan við stúdentagarðinn er
barnaskólinn, sem á að fara að
reisa á næsta ári.
Silkolin.,2
Munið eftir að biðja
kaupmann yðar um hina
alþektu „Silkolin“ ofn-
sveru. Engin ofnsverta
jafnast á við hana að gæð-
um!
Anör. J. Ðertelsen.
Sími 834. Austurstræti 17
Austanvið Hringbrautina er
járnbrautin teiknuð, með skifti-
brautum stöðvarinnar. Stöðin sjálf
löng bygging og mjó vestanvið
brautina.
Frá stöðinni á svo hafnarbraut*
in að liggja í norður, vestanvið
Gasstöð, norður í Skúlagötu og
eftir henni vestur til hafnarinnar.