Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.1940, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
hversdags tilveru.
Þessi óvenjulegi viðburður hafði
étt sjer stað fyrir nokkrum vik-
um, en var langt frá því að vera
gleymdur, og fólkið skemti sjer
enn við að tala um hann.
Dag nokkurn kom eistneskt skip,
„Vesta“ a ðnafni, með flutning til
Danzig og Antwerpen, en við það
var í sjálfu sjer ekkert undarlegt,
enda vakti skipið enga óvenju-
Jega athygli, fyr en það kom upp
úr kafinu, að skipverjarnir voru
22 kvenmenn. „Skipstýran“ var
ung og lagleg útgerðarmanns
ekkja frá Reval. Hún átti sjálf
skipið, og svo sjaldgæft sem það
annars er í Evrópu, hafði hún
skipstjórnarrjettindi til langferða.
Hún var ljósihærð og bláeygð,
dugnaðarleg og einörð í fram-
göngu. Hún saagðist stjórna skip-
inu sjálf, af sparnaðarlegum á-
stæðum, og kjósa miklu fremur
að hafa kvenmenn sem skipverja
hjá sjer, en karlmenn.
Á meðan skipið stóð við í Dan-
zig, komst hún í kunningsskap
við karlmann, þau urðu ógnar-
lega ástangin og opinberuðu trú-
lofun sína, svo að ekkert varð
úr því, að hún hjeldi ferðinni
áfram, en þá var úr vöndu að
ráða, skipið þurfti að koma vör-
unum á ákvörðunarstaðinn. En þó
leitað væri með logandi ljósi í
allri Danzig-borg, fanst engin
kvenmaður, sem hafði skipstjórnar
rjettindi. Loksins var horfið að því
ráði, að fela gömlum skipstjóra á
sjötugs aldri, skipstjórnina. Svo
ljet „Vesta“ úr höfn.
En er skipið kom aftur til
Danzig. Var ferðasagan í stórum
dráttum á þá leið, að til Ant-
werpen gekk alt vandræða lítið.
Þar fekk „Vesta“ flutning til
Rotterdam og svo þaðan fullfermi
tii Danz.ig. En af skipverjum var
það að segja, að sjö þeirra struku
í Rotterdam, og afganginn rak
skipstjórinn í land á leiðinni. Svo
þegar „Vesta“ kom aftur til Dan-
zig“, voru skiipverjarnir venju-
legir sjómenn.
Þegar eigandi skipsins, hin fyr-
verandi „skipstýra" heyrði þetta,
skýrði hún skipið upp, og kallaði
það „Vesúvíus".
S. K. Steindórs, þýddi.
Bygginganefnd
Reykjavíkur
Frh. af bls. 231.
næstu áratugi. Árið 1882 er út-
mæld lóð undir húsið nr. 2 við
Bókhlöðustíg og er ákveðið að
húsið skuli liggja í hinni gömlu
húsalínu í Ingólfsbrekku. Skömmu
fyrir aldamót var Barnaskólanum
ákveðinn staður og verður ekki
sagt að lega hans komi í bág við
þessa fyrirætlun nefndarinnar. En
þá voru líka mistökin á næstn
grösum. Árið 1898 er útmælt hús-
stæði við neðra horn Laufásvegar
og Bókhlöðustíg, einmitt á þeini
stað, sem byggingarnefndin hafði
friðað. Og furðulegast er það við
þessa útmælinu, að málið er af-
greitt í einu liljóði og eigi verður
sjeð að neinum andmælum hafi
verið hreyft. Ef til vill hefir eng-
um þeirra, er þá áttu sæti í nefnd-
inni, verið kunnugt um fyrri af-
stöðu nefndarinnar. En jafnvel
þótt svo hafi verið, þá er erfitt
að finna þessum nefndarmönnum
nokkra afsökun, sjerstaklega
vegna þess, að nú var efri húsa-
röðin komin alla leið suður úr og
var því augljósara, en áður, hví-
líkt skemdarverk var unnið, er
leyfð var húsabygging á þessu
svæði neðan Laufásvegar.
flugsanirnar
Hver einasta illgjörn hugsun
er eitraður „gerill“ í sál,
sem sýkir svo aftur okkar
athafnir og mál.
Hver einasta ástúðleg hugsun
ber engilbirtu í stál,
sem vermir og auðgar okkar
athafnir og mál.
Já, hugsanir okkar allar
eru eilífðarkorn í sál,
og af þeim spretta svo aftur
athafnir og mál.
Sigríður Oísladóttir
frá Skaftafelli.
239
S k á k
Skákþing Bandaríkjanna 1940.
Baráttan um fyrsta sætið.
Tveggja riddara leikur.
Hvítt: R. Fina
Svart: S. Reshevsky.
1. e4, e5; 2. Rf3, Rc6; 3. Bc4,
Rf6; 4. Rg5; 5. pxp, Ra5; (Rxp:
er ekki gott, vegna 6. d4!, eða jafn
vel. 6. Rxf7). 6. Bb5+, (Talið
betra en d3) 6.......c6; 7. dxc,
bxc; (Ef Rxp; þá 8. Bc4) 8. Be2,
h6; 9. Rf3, e4; 10. Re5, Bd6; 11.
f4, (Talið betra en d4) 11......
Dc7; 12. 0—0, 0—0; 13. Rc3, Bx
R; 14. pxB, Dxp; 15. d4, pxp; (í
framhjáhlaupi; þ. e. til d 3) 16.
Dxd3, (Hvítt á nú sýnilega mun
betri stöðu.) 16..... Rg4; (Ef
16.....Bg4; þá 17. Hxf6!!, og
hvítt vinnur mann). 17. Bf4,
(Betra en BxR). 17.........Dc5+;
18. Khl, Rf2+; 19. HxR, DxH;
20. Hfl, Dh4; 21. Dd6, Bg4;
(Staða Svarts er hræðilega erfið.
Biskupinn verður að komast út á
borðið, en hvert sem honum er
leikið annað, tapast að minsta
kosti skiftamunur). 22. Ba6, (Hót-
ar Dc7) 22.... Bc8; 23. Bd3;
— Stöðumynd — 23........... Be6;
(Tapar manni. En hvað átti svart
að gera? Hvítt hótaði b4, Rb7,
Dxc6, og svart er enn bundnara
en áður). 24. Db4, Dh5; 25. Bc7,
Rc4; 26. BxR, Dh4; 27. Bf4??,
(Örlagaríkur leikur. Tapar bisk-
upnum, meistaratitlinum og 1000'
dollurum í peningum. Eftir Hf4,
er skiákin ljett unnin á hvítt). 27.
.... BxB; 28. DxB, g5; 29. g3,
Dg4; 30. Dxp, pxB; 31. Hxp, De6;
32. Df3, f5; 33. Dd5, Hae8; 34.
Kg. 2, DxD+; 35. RxD, He2+;
36. Hf2, HxH+; og skákin varð
jafntafli.