Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1940, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1940, Page 1
JMoí’awnblaSsáns 43. tölublaC. Sunnudaginn 27. október 1940. XV. árgangur. Prestaæfir Sighvats Borgfirðings mest lesna rit Landsbókasafnsins Eftir Finn Sigmundssson magister Prestaæfir Sighvats Gr. Borgfirðings í bókahillu í Landsbókasafninu. Nokkur undanfarin ár hefir enginn starfsdagur í Lands- bókasafninu liðið svo, að ekki væri beðið um Prestaæfir Sig- hvats Grímssonar Borgfirðings. Það mundi einhver hafa brosað hjerna á árunum, þegar Skúli Thoroddsen var að reyna að sargu út úr þinginu 200 króna styrk handa Sighvati gamla í Höfða, til þess að hann gæti veitt sjer þá ánægju að hverfa frá búhokri sínu nokkrar vikur til fræðiiðk- ana hjer í söfnunum, ef því hefði þá verið spáð, að Prestaæfir hans yrðu 30—40 árum síðar mest lesna rit Landsbókasafnsins. En þetta er nú samt komið á daginn, og mjer finst vel mega vekja á því athygli. ef vera kynni, að einhver góður Vestfirðingur eða annar kunnug- ur maður yrði þá fremur til þess að minnast í ræðu eða riti þessa einstaka eljumanns á 100 ára af- mæli hans, sem nú er á næstu grösum. — Eins og kunnugt er eignaðist Landsbókasafnið öll handrit Sighvats að honum látu- um og eru þau þögult vitni um geysilega elju og fræðiáhuga fá- tæks bóndamanns við óblíð æfi- kjör, og hefir Sighvatur, eins og raunar margir fleiri fræðimenn úr alþýðustjett, hlotið of litla viður- kenningu fyrir mikið starf og ó- drepandi þrautseigju við söfnun og uppskrift margs konar fróð- s Sighvatur Grímsson Borgfirðingur leiks, þó að ýmislegt fánýtt hafi flotið með eins og jafnan vill verða. En um Prestaæfir hans a. m. k. er það að segja, að þar er saman dreginn geysimikill per- sónusögulegur fróðleikur, sem handhægt er að hafa á einum stað og mörgum kemur að gagni, sem þess háttar grúski sinng. ★ Sighvatur Grímsson Borgfirð- ingur var fæddur í Nýjabæ á Skipaskaga í Borgarfjarðarsýslu 20. desember 1840. Voru foreldrar hans Grímur Einarsson og Guðrún Sighvatsdóttir, þurrabúðarhjón á Akranesi. Ólst Sighvatur upp við

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.