Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1943, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1943, Blaðsíða 4
228 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS Þýzkur iangi í Túnis. Hann er hálf súr á svipinn og niðurdreg- inn þessi þýski hermaður, sem tekinn var til fanga í Túnis. að ur til útivinnu í vondum veðr- um og eigið hirðuleysi um að verj- ast ágjöfum. Þá var líka óhægra en nú um þurkun vosklæða, þar sem alt varð að þurka við hlóðarsteina. Jóhannes átti líka tæplega föt til skifta. Var það svo lengstan hluta æfi hans, að hann þoldi allra manna best hverskonar vosbúð og harðæri. Svo lauk veru Jóhannesar á Melstað, að hann fór þaðan ó- fermdur. Var honum nú komið fyr- ir á Mýrum, en þar var gömul kona, sem kenndi honum lestur og lærdómskver, svo að hann náði fermingu. Þegar Jóhannes var á Mýrum, var hann sendur suður um haust í fjallgöngur á Núpsheiði. Var farið fram úr Núpsdal laugardagsmorg- un í 22. viku sumars og legið yfir nóttina á Hraungörðum, sem eru á miðri Tvídægru. Á sunnudags- morgun skifti leitarstjóri gangna- mönnum í leitina, þegar er sauð- ljóst var orðið. Var þá þungbúið loft og nokkur rigning. Jóhannes skyldi ganga norður heiðina .vestarlega. Bráðlega urðu fyrir honum tvö lömb, ákaflega tygg, er hann elti í ótal króka, en irna er ein flatneskja og ýmist ár eða vötn. Gerðist nú hvoru- tvegja í senn, að þoku rak á og .Jóhannes varð algerlega viðskila ið meðleitarmenn sína. Mun hann hafa orðið áttaviltur í eltingar- leiknum við lömbin. Gekk hann allan daginn til kvölds en kom þá að á og gekk niður með henni alla nóttina. Þegar birti af degi, rofaði til þokuna og sá Jóhannes þá, að hann myndi vera kominn nálægt bygð, en það sá hann, að ekki myndi hann staddur í Norðlend- ingafjórðungi. Hjelt hann nú á- fram sem mest hann mátti. Ekki var á honum þur þráður, og mat hafið hann ekki bragðað frá því hann lagði af stað morguninn áð- ur. Skór hans voru gatslitnir og allur var útgangur hans hinn öm- urlegasti. Nær hádegi á mánudag komst hann að örnólfsdal íÞverár- hlíð. Var honum veitttur þar góð- ur beini. Húsbændur vildu að hann háttaði ofan í rúm, en til þess var hann ófáanlegur. Fjekk hann gert að skóm sínum og hjelt svo tafar- laust af stað Norður. Bóndi sagði honum til vegar yfir Norðurárdal og skyldi hann fara Holtavörðu- heiði, en þar voru vegslóðar og vörður til leiðbeiningar. Þegar Jó- hannes kom að Norðurá, var hún í vexti og óð hann hana undir hend- ur. Á leiðinni norður Holtavörðu- heiði hvíldi hann sig öðru hvoru og blundaði en gætti þess ávallt að leggja svipu sína þannig, að ólin sneri í norður, svo að hann gæti verið viss á áttum, er hann vaknaði. Allar ár óð hann, sem á leið hans urðu og voru sumar djúp- ar, en veður var þá gott og bjart. Heim á tvo bæi kom hann og fjekk mjólk að drekka, en viðstöður hafði hann þar engar. Kom hann um miðjan dag á þriðjudag á mið- fjarðarrjett. Var þá verið að út- búa flokk manna til þess að leita hans á Tvídægru. Þótti það með eindæmum vasklegagertaf illabún- um unglingi á 16. ári að ganga alla þessa leið í einni lotu á ekki lengri tíma. Framh. í næstu Lesbók. Skrítlur M. við fangavörðinn: — Leyfið þjer mjer að koma inn og tala við manninn, sem braust inn hjá okkur. ■— Hvað viljið þjer honum? — Jeg þarf að spyrja hann, hvernig hann hafi komist inn án þess að vekja konuna mína. ★ Tannlæknirinn kemur bálreiður heim til sín. — Hugsaðu þjer Soffía. Jeg mætti Larsen listmálara áðan og krafði hann um peningana, sem hann skuldar mjer síðan í fyrra, en þá hló hann upp í opið geðið á mjer, svo að skein í mínar eigin tennur. ★ — Af hverju veistu, að hann er farandsali? — Af því að vísifingurinn á honum er slitinn upp að fremsta lið af því að hringja á dyrabjöll- um.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.