Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.1943, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.1943, Blaðsíða 3
LB3BÖK MORGUNBLAÐSINS 863 rak um þessar niundh' verzlun, ásamt með gistihúshaldinu. Eldsvoðann bar að um nótt, og komst sumt fólkið út með nauni- indum Þó sluppu allir heilu, eji ekki höldnu, því fjárhagslegur skaði varð mjög mikill fyrir alla, sem hlut áttu að máli. Þó varð tjónið mest fyrir hóteleigandann, því allar eignirnar voru mjög lágt tryggðar, og svo engar að- stæður til að byrja hótelrekstur að nýju. Þetta skeði skömmu fyr- ir jól. sem urðu því fremur dapur- leg í þetta sinn. En Vigfús lét ekki hugfallast, tók hann sér fari með skipi, sem átti leið til út- landa nokkrum dögum síðar, keypti húsavið í Svíþjóð og lét reysa stórhýsi á næsta sumri, og stendur það enn, — Gamla hó- tel Akureyri. Varð nú enn meiri myndarbragur á hótelrekstrinum en áður, og var það mál manna, að gistihúsið áAkureyri væri um langt skeið framar öðrum slíkum húsum á landinu, bæði hvað sal- arkynni og stjórn snerti. Vigfús var fyrirhyggjusamur og hagsýnn í öllum búrekstri, greindur vel, hagmæltur og hnittinn í ræðum. Ljúfustu áhugamál hans og um- ræðuefni voru saga landsins, stjórnmál og ættfræði, enda var hann vel að sér á þessum svið- um. Vmsum trúnaðarstörfum gegndi hann fyrir ]>æjarfélagið, var t. d. í bæjarstjórn um skeið, sáttanefndarmaður og gjaldkeri sjúkrahússins; var það all- mikið starf, því sjúklingar voru þar margir í tíð Guðmundar Ilannessonar, er þá var eini skurðlæknirinn á Norður- og Austurlandi, og þótti takast vel. Streymdu sjúklingar til hans úr öllum áttum; margir þeirra áttu onga vandamenn á Akureyri, og varð gjaldkerinn þeim tíðum skjól og forsvar, og oft sást hann ganga einn á eftir líkkistu ein- stæðings úr fjarlægri sveit upp-í kirkjugarðinn, enda var Vigfús valmenni og raungóður á alla lund. Laust eftir tvítugsaldur hafði Vigfús farið utan, stimdaði verzl- unarnám í Kaupmannahöfn og varð meðal annars vel að sér í Norðurlandamálum og frönsku, og ofan á þessa undirstöðu hlóð hann með sjálfsmentun, því hann las margt góðra bóka rneðan honum entist sjón, en hún var mjög far- in að bila hin síðustu árin. Vigfús fæddist í Sunnudal í Vopnafirði 24. sept 1843, sonur Sigfúsar bónda þar Sigfússonar Jónssonar bónda á Ljótsstöðum (d. 3.okt. 1794) Sigfúss. á Klepp- járnsstöðum Jónssonar yngra, bónda á Skjöldólfsstöðum. Kona Jóns var Guðrún Hallgrímsdóttir prests, er kominn var af Illhuga „gamla' ‘ Hólaráðsmanni, er síðar varð prestur í Múla í Aðaldal (J.551). Jón yngri var sonur Gunnlaugs prests í Möðrudal. (Olöf kona hans var komin af séra Olafi skáldi í Sauðanesi, dá- inn 1608 ) Faðir séra Gunnlaugs var Sölvi prestur í Möði’udal Magnússon Björnssonar. Magnús þessi var' mikilsháttar maður og bjó á Reykjum í Tungusveit í Skagafirði; kemur hann oft við sögu nyrðra um og eftir miðja 16. öld. Kona hans var Sigríður Grímsdóttir lögmanns N. og A. (1519—1521) á - Stóruökrum í Skagafirði. Kona Gríms, en móðir Sigríðar, var Guðný Þorleifsdótt- ir hirðstjóra. Móðir Vigfúsar hóteleigandi hóteleiganda var Dagbjört Arngrímsdóttir á Víði- völlum í Fnjóskadal. Jónssonar. Ivona Jóns, en móðir Arngríms var Hugrún Arngrímsdóttir Björnssonar lögréttumanns, Arn- grímssonar sýslumanns Hrólfs- sonar sýslumanns, Sigurðssonar sýslumanns, Hrólfssonar sterka lögréttumanns. Ungur kvongaðist Vigfús Mar- gréti Ágústsdóttur homopata á Ljótsstöðum Jónssonar prests á Möðrufelli í Eyjafirði. Eignuð- ust þau eitt barn, er lifði stutta stund, og konuna misti Vigfús einnig innan fárra ára. Réðist hann þá húskennari til ungrar ekkju á Vopnafirði, Maríu Þor- valdsdóttur. Fyrri maður hennar var Grönvold, verzlunarstjóri hjá örum & Wulf; hafði faðir hans að sögn verið einn af hershöfð- ingjum Napoleons mikla. Frú María átti 4 börn með þess- um manni sínum, og lifir eitt þeirra enn, Thorvald heyki meistari í Gautaborg; fór haim ungur utan og er nú háaldraður. Þektast af hinum börnunum var (’arl J. Grönvold, sem um nokkurt áraskeið var verzlunarstjóri á Siglufirði; dáinn skömmu eftir aldamót; á hann hér marga af- komendur. Hin systkinin, Gústav og Octavía, gift Jóni presti HaU dórssyni frá Hofi, dóu bæði í blóina aldurs Árið 1872 giftu þau sig Vigfús og María og eignuðust þau 6 börn: Jóhann, verzlunarstjóri og eonsul á Akureyri, kvæntur önnu Schiöth, dáinn 1905. Ágústa, gift Olgeiri Friðgeirssyni, verzlun- arstjóra á Fáskrúðsfirði, dáin 1896. Maren, gift Einari Gunn- arssyni consul á Akureyri, Oddný, gift Ingólfi lækni Gíslasyni, Val- gerður og Ilalldóra, sem reka verzlun á Akureyri. Frú María var dóttir Þorvaldar Jónssonar á Stóra-Eyrarlandi, voru þær marg- ar systur og þóttu kvenkostir góðir, svo sem Soffia Beck á Svínaskálastekk, amma þeirra Richards Beck prófessors og Kristins Andréssonar alþingis- manns. önnur var Oddný Lillien- dahl, ættmóðir Lilliendahlanna og amma Karls Isfeld. Þriðja ólöf Ivarsen, sem á marga afkomendur í Kaupmannahöfn. Systur þeirra Margrét og Geirþrúður eiga líka marga efnilega afkomendur og sömuleiðis Jón Þorvaldsson bróð- ir þeirra, langafi dr. Brodda Jó- hannessonar. Frú María var greind og góð kona og manni sínum hinn mesti styrkur, hún dó rúml. sjötug í febrúar 1908 en Vigfús dó 73 óra að aldri 1. okt. 1916 eftir stutta legu. Þau Vig- fús og María voru fyrirmymdar húsbændur, ólu börn sín vel upp og sáu þeim fyrir menntun og hjú um sínum voru þau sem foreldr- ar og greiddu götu þeirra. Vigfús lagði oft yngri mönnum lífsregl- ur og ræddi við kunningja sína og vini um landsins gagn og nauð- synjar Hann hafði tröllatrú á landinu okkar og taldi engan efa á því að miklar framfarir væru t'ramundan. ef fólkið athugaði sinn gang og ynni samvizkusam- lega og í eindrægni hver á sinu sviði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.