Lesbók Morgunblaðsins - 11.12.1949, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 11.12.1949, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 561 hart norðan veður rak á um nótt. Sleit þá kjötskipið upp, hrukku akker frá botni, því festarnar heldu, en það rak fyrir veðrinu og brim- rótinu á klett og gekk kjölurinn undan. En þótt brim berði að öll- um megin, komust allir menn lífs af. Stýrimaður hljóp að herberg- isglugga Gísla og æpti á dönsku „að Satan skyldi hafa slátur alt“. Gísli spurði, ef menn allir komust af, og lofaði guð er hann heyrði að svo var. Ull, tólg og prjónles rak hrönnum saman á ströndina og fekst mikið af vörunum aftur. Þó varð vart að mörgu var hvinskað, og voru þó fengnir menn til að vaka. Keyptu 10 menn í fjelagi skipsskrokkinn fyrir nær 60 spesí- ur. Seldu síðan viðuna aftur, járn, kaðla og eir. Varan var boðin upp sú er rak og hlaut Gísli sjálfur alla með litlu verði. Hugðu menn að alllítill mundi skaði hans verða. Gísli kom eitt sinn út í Vest- manneyum og seldi þar um hríð. Fór síðan á land og reið til Reykja- víkur. Var þar rígur í öðrum kaup- mÖnnum við hann, sökum þess að hann ljet vörur með lægra verði en þeir. En eigi þótti margra færi að hnippast við hann í orðum. Var hann harðorður og bar þeim margt á brýn. Hjet hann þeim og því, að minka skyldi aðflutningur að norð- an til Reykjavíkur, er allmikill hafði verið áður. Vitum vjer þetta með fullum sanni sagt, þótt ósnyrti- legri væri þá sum orð hans, fram- ar en hjer er sagt, við þá er hann átti orðastað. Varð því fátt um kveðjur með honum og þeim, og reið hann úr Reykjavík norður fjöll við annan mann, og fekk mik- il illviðri, snjókrapa og bleytu. Gísli var annar brautryðjandi ís- lenskrar verslunar, hinn Bjarni riddari Sigurðsson, og hefir þeim oft verið líkt saman. Báðir unnu íslendingar í alda raðir yrtu á þjóðhöfðingja í Ijóði, kunnu vel að mæta manni og mál að reifa í konungs skála. Þágu vist og veglegt sæti völdum meður jöfra höldum. Vörðu stafn á döglings dreka, dugðu best í háska mestum. Ennþá meðal íslendinga íturmenni getur að líta, er í stafni stjórnarkarfa standa fast í mestum vanda. Þú ert, Gísli, gjörr ið besta, gildur æ og hjartamildur. Altaf sannur íslendingur, orð þín ganga vart úr skorðum. Varstu hverju sviði sannur, sagan geymir það um daga. Framar öðrum fórstu víða, fjör og gleði starfi rjeðu. — Trúnni helgu traustur kraftur, tál fanst ei í þínu máli. í landsins fornu kristnu kirkju krafðist þú að fólkið trúi. þrekvirki á því sviði, og verða íslenskri verslunarstjett til sóma og hvatningar um ókomin ár. Það er ævintýri líkast, að fátæki pilturinn frá Málmey, skyldi geta rutt sjer framabraut á þeim árum er einna verst hafa komið yfir land- ið og í harðri samkepni við hina útlendu kaupmenn, sem vildu gína yfir allri verslun á íslandi. Þetta sýnir best hvílíkur hæfileikamaður og atorkumaður Gísli hefir verið. Og með þakklæti má þjóðin jafnan Gamla Fróns á þjóðar þingum þjettur stóðst að máli rjettu. Aldrei veill og aldrei hálfur, áttir lausn í mála sáttum. Hvarvetna í stjórn og starfi sterkur lagðir úrskurð merkan. Vörður laga huga heilum, hreinum vildir lyfta skildi. Meðan þú á feðra foldu fórst með völd, í bygðum hölda, liðsemd góðu ljeðir máli, lattir síst, til dáða hvattir. Stóðstu fast um frelsi þjóðar, uns fjekk að lokum endi þekkan. Fullveldis á dýrum degi dugðir þú, en vjer að búum. Gæfustund á grundu helgri gullu horn við Lögberg forna. Lýstir þú, sem lýðir minnast, landið undan danskri grundu. — Þinni hönd er holt að fela heiður lands yfir ljúpið breiða, og að tengja traustu bandi Týliland og Noregs-strandir. Kr. H. Breiðdal. minnast þess, að hann bætti kjör hennar eftir megni þegar henni reið mest á. Hann hefir líka feng- ið góða dóma: „Gísli var mjög mik- ilhæfur maður og allajafna í mikl- um metum utan lands sem innan“. — „Þótti að honum mikill mann- skaði“ — „Gísli Símonarson þótti jafnan reynast löndum sínum ágæt- lega, og var talinn prýði íslenskr- ar kaupmannastjettar á sinni tíð“ — „Hann hafði verið hinn mesti sýslunarmaður, hreinskilinn og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.