Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1955, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
21
Kvöld í
Iíeykjavík
— Jóla-
skreyting
á naestu vertíð. — Fiskafli þessa árs
varð um 32 þúsund lestum meiri heldur
en í fyrra.
SLYSFARIR
Strandferðaskipið Esja fekk á sig
brotsjó á Húnaflóa og laskaðist nokk-
uð (1.)
Þrettán ára piltur, Unnsteinn Krist-
jánsson á Litlu Völlum í Bárðardal.
varð fyrir slysaskoti og beið bana (1.)
Sjö ára drengur varð fyrir bíl í
Hveragerði og slasaðist svo mikið að
hann beið bana af (7. og 9.)
Dýpkunarskipið Grettir fór til Rifs-
óss til að dýpka hann, en strandaði og
skemmdist svo að varðskipið Ægir varð
að draga það til Reykjavíkur. Eru nú
verri horfur á um notkun hafnarinnar
í Rifi á næstu vertið (11.)
Gunnar Friðþjófur Gunnarsson, skip-
verji á togaranum Ingólfi Arnarsyni,
fell fyrir borð og drukknaði (14.)
Tröllafoss lenti í fárviðri á Atlants-
hafi á leið hingað frá Vesturheimi.
Gengu stórsjóir yfir skipið og brutu
stóra bíla, sem voru á þilfari og er
tjónið metið til hundraða þúsunda (15.)
Einar Ólafsson vélstjóri á vb. Frey-
faxa fell í sjógangi niður stiga í vélar-
rúmið og slasaðist mikið (19.)
Ölvaður maður ók bíl á Ijóskersstaur
í Hafnarfirði, braut staurinn og stór-
skemmdi bílinn (21.)
Páll Jóhannesson trésmiður á Pat-
reksfirði varð fyrir því óhappi að
lenda með báðar hendur í trésmíðavél,
og missti framan af 6 fingrum (23.)
Þorsteinn Þorsteinsson póstur milli
Patreksfjarðar og Brjánslækjar varð
úti í póstferð á Kleifaheiði (30.)
Lítil einkaflugvél fauk í roki á Kefla-
víkurflugvelli og barst um 300 metra
leið. Eigandinn var í henni. Sakaði
hann ekki, en flugvélin skemmdist
talsvert (31.)
Dauðaslys á árinu urðu sem hér
segir: Sjóslys og drukknanir 20 (39),
umferðaslys 12 (15), ýmis slys 19 (24).
í svigum eru tölur fyrir árið 1953 (31.)
Óslóartréð á
Austurvelli j
i Rvík