Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.1956, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
635
Hvert stefnir?
Lærdómsrík málaferli í Danmörku
ur inn mikli hiti. Margir eldgígar
eru í fjallendi, og halda því sumir
að þrýstingurinn af þunga fjall-
anna sé svo mikill, að hann geri
efnin undir niðri fljótandi. Sam-
kvæmt þessu ætti þá aðdráttarafl-
ið að vera helzta orsök eldgosa.
Um aldamótin var því haldið
fram að efnabreytingar niðri í
jörðinni mundu valda eldgosum.
Menn sögðu að sjávarvatn seitlaði
stöðugt niður um sprungur í jarð-
lögunum, og niðri í jörðinni bland-
aðist það öðrum efnum og við
það myndaðist hitinn. Þótt þessi
skoðun þætti góð og gild á sínum
tíma, þá eru menn nú farnir að
draga hana í efa, enda þótt það
sé viðurkennt að efnabreytingar
undir yfirborði jarðar auki mjög
hita gosanna.
Sumir kenna geislavirkum efn-
um um jarðhitann, sem veldur gos-
unum. Djúpt í jörð hafa in geisla-
virku efni verið um tugi milljóna
ára, og útgeislan þeirra veldur því
að jörðin þenst út. Og svo kemur
að því að þessi þensla verður svo
mikil, að jarðskorpan brestur þar
sem veilur eru í henni og gos brýzt
út. Þessi skoðun hefir ekki fengið
mikið fylgi vegna þess, að það
þykir nú sannað að mjög lítið sé
af úraníum í kviku jarðarinnar.
Áralangar athuganir á eldfjöll-
unum á Hawaii hafa leitt til þess
að sumir vísindamenn halda því
fram, að eldgos standi í sambandi
við sólbletti. Aðrir segja að þetta
sé vitleysa, en halda því fram, að
aðdráttarafl sólar og tungls valdi
eldgosum. Enn aðrir jarðfræðing-
ar, þar á meðal japanskir, halda
því fram að eldgosin stafi af snún-
ingi jarðar, því að ið fljótandi efni
inni í henni flytjist þá til undir
jarðskorpunni og brjótist út þar
sem fyrirstaða er minnst.
Allar þessar bollaleggingar sýna,
að menn eru enn engu nær um
það, hvers vegna eldfjöll eru dreifð
UNG STÚLKA réðist í skrifstofu
borgarsjúkrahússins í Árósum. Hún
var ráðin upp á tímakaup. Þegar hún
hafði starfað þar í nokkra mánuði,
fekk hún bréf frá Verslunar- og skrif-
stoíumannafélaginu um það, að hún
yrði að ganga í félagið. Hún neitaði.
Nú skyldi maður ætla, að í Dan-
mörk væri svo mikið þegnfrelsi, að
menn réði því sjálfir hvort þeir gengi
í eitthvert félag eða ekki. Og unga
stúlkan þóttist viss um þetta.
Þá kom nýtt bréf og í því stóð: „Vér
viljum vekja athygli yðar á því, að
allir, sem starfa hjá bænum eru 1
verklýðsfélagi, og þess vegna verðið
þér að ganga í félag vort“.
Hún spurði skrifstofustjórann að þvi,
hvort það væri skylda sín að ganga
í félagið, en hann kvað það ekki vera,
hún yrði aðeins að greiða gjald í at-
vinnutryggingarsjóð. Nú þóttist hún
örugg. Hún vildi ekki ganga í félagið,
vegna þess, að með því móti styrkti
hún ákveðinn stjómmálaflokk. Öll fé-
lög starfsmanna gjalda .skatt til Verka-
mannaflokksins. Með því að ganga í
slikt félag, styður hver þann flokk,
þótt honum sé það þvert á móti skapi.
En unga stúlkan er einörð og þykist
lifa í frjálsu landi, þar sem mönnum
sé það í sjálfsvald sett, hvaða stjóm-
málaflokk þeir styðja. Hún neitaði
því enn að ganga í félagið.
----o-----
Enn kom bréf frá félaginu, og nú
var henni hótað því að hún yrði rekin
úr stcðu sinni: „Svo framarlega sem
þér hafið ekki gengið í félag vort inn-
an viku, munum vér sjá til þess að
bæarstjórn segi yður upp“.
um alla jörð. Ef til vill er engin
ein orsök til eldgosa, heldur stafi
þau af margskonar samtíma or-
sökum.
Þetta varð ekki misskilið. En stúlk-
an gafst ekki upp að heldur.
En nú var ekki hægt að reka stúlk-
una aðeins vegna þess, að hún var
ekki í félaginu. En þá var fundið upp
á öðru. Henni var tilkynnt, að ef hún
gengi ekki þegar í félagið, þá mundi
verða uppistand í sjúkrahúsinu, því að
hitt starfsfólkið mundi neita að starfa
með henni. Ef hún skoraðist undan að
ganga í félagið, mundu allir aðrir
starfsmenn sjúkrahússins leggja nið-
ur vinnu.
Þetta kom henni á óvart. Gat það
átt sér stað að hún væri svo illa
kynnt meðal samverkafólks síns? Hún
hafði aldrei tekið eftir því að neinn
hefði hom í síðu siémi, og hún hafði
alls ekki orðið vör við að neitt uppi-
stand væri í aðsígi út af sér. Hún
spurði hitt fólkið, en allir gáfu henni
bezta vitnisburð og enginn kvaðst hafa
hom í síðu hennar. Hún fekk þetta
skriflegt hjá þeim. Og sú yfirlýsing
var ekki í samræmi við tilkyrming-
una um uppistand.
----o-----
Hún lét ekki beygja sig. Hún var
einráðin í því að styðja ekki þann
stjórnmálaflokk, er hún vildi ekkert
eiga saman við að sælda, En svo fekk
hún uppsögn. Hún bað um að fá skrif-
legt hverjar ástæður væri til þess að
sér væri sagt upp. Hún vildi fá svart
á hvítu sönnun fyrir því, að hér væri
um pólitíska ofsókn að ræða. En for-
stjóri sjúkrahússins neitaði, en sagði
að uppsögnin mundi verða afturköll-
uð, ef hún gengi í íélagið.
Stúlkan fór frá sjúkrahúsinu og nú
hefir hún höfðað mál út af þessari
kúgunartilraun. Það mál er enn á
döfinni og verður engu spáð um hvern-
ig það fer. En úrslita þess er beðið
með eftirvæntingu í Danmörk, og það
er ekki ósennilegt að úrslitin, hver
svo sem þau verða, þyki einnig merki-
leg á hinum Norðurlöndunum.