Lesbók Morgunblaðsins - 23.08.1959, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
361
Þúsundþjalasmidurirm Bernstein
Á ÞESSARI öld, þegar sérhæfing-
in virðist vera skilyrði fyrir hvers
konar afrekum, er litið á menn
með alhliða hæfileika eins og hvert
annað undur. Leonard Bernstein
er einn af þeim. Starf hans síðustu
fimmtán árin hefur náð til a. m. k.
fimm starfsgreina, sem hann hefur
stundað jafnhliða og náð mark-
verðum árangri í öllum. Hann hef-
ur verið hljómsveitarstjóri og
konsert-píanóleikari; hann hefur
samið alvarleg tónverk. auk þess
sem hann hefur samið gamansama
söngleiki og aðra létta tónlist. Loks
hefur hann haldið fyrirlestra og
hljómleika í sjónvarpi, og fyrir það
starf hefur hann hlotið heiðurs-
titilinn „áheyrilegasti talsmaður
tónlistarinnar“.
Þessi tápmikli og gáfaði ungi
maður hefur nú lokið fyrsta starfs-
ári sínu sem stjórnandi elztu sin-
fóníuhljómsveitar Ameríku, New
York Fílharmóníuhlj ómsveitarinn-
ar. Síðan Toscanini lét af stjórn
hljómsveitarinnar árið 1936, hefur
önnur eins hrifning ekki ríkt í
Carnegie Hall og nú. Hljómsveitin
leikur aftur fyrir fullu húsi, hún
hefur endurnærzt og er þess al-
búin að vinna nýja sigra. Sam-
bandið milli Bernsteins og hljóm-
sveitarmanna er líka óvenjulegt.
eins og sjá má a* eftirfarandi lýs-
ingu tónlistargagnrýnandans Paul
Henry Lang á æfingu hjá hljóm-
sveitinni. Hann segir: „Hljóm-
sveitarmennirnir eru óþvingaðic
og í góðu skapi, og sjálfur er Bern-
stein vingjarnlegur og brosandi,
jafnvel þegar á móti blæs. Hann
vinnur samvizkusamlega, og það
gefa hljómsveitarmennirnir einn-
ig. Þar reiðir enginn upp svipuna,